Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1024. fundur
1. febrúar 2022 kl. 14:30 - 15:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 36
Málsnúmer 2201014F
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 243
Málsnúmer 2201008F
Fundargerð samþykkt.
3.
Tölvuþjónusta - rekstur
Málsnúmer 202201096
Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning á útboði á tölvuþjónustu.
4.
Áskorun um málefni upplýsingamiðstöðva
Málsnúmer 202201099
Erindi frá stjórn FASK Ferðamálafélagi Austur Skaftafellssýslu, þar sem félagið hvetur sveitarfélagið til að nýta sér samstarf við Vatnajökulþjóðgarð um upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn.
Bæjarráð þakkar FASK fyrir erindið og bendir á að Vatnajökulsþjóðgarður hefur tryggt rekstur upplýsingamiðstöðvar á þessu rekstarári.
5.
Athugasemd - Gjaldtaka fyrir aðgang að landi - Horn
Málsnúmer 202201095
Afrit af bréfi Umhverfisstofnunar til landeigenda að Horni vegna gjaldtöku fyrir aðgang að landinu.
Lagt fram til kynningar.
6.
Leiga á íbúð í Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 202201085
Erindi frá Þorbjörgu Arnórsdóttur forstöðumanni Þórbergsseturs vegna leigu íbúða í Hrollaugsstöðum.
Bæjarráð hefur nú þegar úthlutað þeim íbúðum sem auglýstar voru til útleigu. Þegar íbúðir losna verða þær auglýstar á ný.
7.
Áskorun til bæjarstjórnar - mótmæla skerðingu á strandveiðikvóta
Málsnúmer 202201102
Erindi frá Smábátafélaginu Hrollaugi.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og tekur undir áhyggjur vegna samdráttar á fiskveiðikvóta sem snertir atvinnugreinina í heild og tekur undir að hvert starf við fiskveiðar og afleidda þjónustu er mikilvægt fyrir samfélagið.

8.
Farsældarlögin innleiðing og fleira
Málsnúmer 202111060
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs að óska formlega eftir samstarfi við Vestmannaeyjabæ og félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu á sviði barnaverndar.

9.
Umsögn - Úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 12.mál.
Málsnúmer 202201100
Lagt fram til kynningar.
10.
Til upplýsingar - Breyting á reglugerð nr.12122015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Málsnúmer 202201089
Breyting á reglugerð nr. 1212/2015. Um er að ræða frestun gildistöku reglugerðar nr. 230/2021 um eitt ár.Skv. reglugerð nr. 230/2021 ber sveitarfélögum að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil sín m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins. Gildir þetta um einstaka liði rekstrar og efnahags óháð stærð eignarhlutarins. Skv. reglugerðinni skyldi þessi breyting taka gildi þegar á árinu 2021 og eiga við ársreikning þess árs og fjárhagsáætlun 2022 og svo áfram. Með hinni nýju reglugerð, nr. 14/2022, er sveitarfélögum heimilt að ákveða að þessi breyting taki gildi 2022. Jafnframt er þeim sveitarfélögum sem hyggjast nýta sér þessa heimild skylt að taka tilliti til þessa í fjárhagsáætlun 2022 með samþykkt viðauka eigi síðar en 1. júní nk.
Bæjarráð samþykkir að nýta umrædda heimild og felur fjármálastjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2022 sem komi til afgreiðslu bæjarstjórnar í síðasta lagi í maí nk.
11.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir að fresta framkvæmdum á lóð að Sandeyri 10, bæjarráð veitti frest áður til 31. desember 2021.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 15. maí 2022.
12.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Málsnúmer 201904026
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir að fresta framkvæmdum á lóð að Sandeyri 8, bæjarráð veitti frest áður til 31. desember.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 15. maí 2022.
13.
Umsókn um lóð Júllatún 21
Málsnúmer 201705099
Árdís Erna Halldórsdóttir óskar eftir frest vegna byggingarframkvæmda á lóð Júllatún 21.
Bæjarráð veitir frest til 1. maí 2022.
14.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Málsnúmer 202111056
Brimdís Klara Runólfsdóttir og Arnar Freyr Logason skila lóð Júllatún 8 aftur til sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilum og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.