Bæjarráð Hornafjarðar
1025. fundur
8. febrúar 2022
kl.
14:30
-
17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 32
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Drög að nýrri umhverfis- og loftlagsstefnu lögð fram til kynningar.
Bæjarráð vísar umhverfis- og loftlagsstefnunni til umræðu í fastanefndum sveitarfélagsins.
3.
Færanlegt húsnæði við leikskólann
Umræður um lausn á húsnæði leikskóla á Höfn.
Málinu vísað til umræðu í fræðslu- og tómstundanefnd og umhverfis- og skipulagsnefnd.
Málinu vísað til umræðu í fræðslu- og tómstundanefnd og umhverfis- og skipulagsnefnd.
4.
Útboð Hofgarður endurbætur 2022
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 58.515.748 kr.
Eitt tilboð barst frá Þingavað ehf. 62.650.395 kr. eða 7% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Þingvaðs ehf.
Eitt tilboð barst frá Þingavað ehf. 62.650.395 kr. eða 7% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Þingvaðs ehf.
5.
Staða sveitarsjóðs 2021
Farið var yfir stöðu framkvæmda fyrir árið 2021.
6.
Nafn á víkinni við Ránarslóð
Nafnasamkeppni var auglýst og óskað var eftir hugmyndnum um nafn á víkinni við Ránarslóð. 44 einstaklingar sendu inn hugmyndir að nafni.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að víkin beri örnefnið Mönguvík með tilvísun í Mönguhelli sem er hugmynd Ragnars Arasonar.
Bæjarráð samþykkir að víkin beri örnefnið Mönguvík og vísar því til samþykktar bæjarstjórnar.
7.
Fjöruhreinsun - Strandverðir Íslands
Erindi Veraldarvina þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu "Strandverðir Íslands - Hreinsun strandlengju Hornafjarðar sumarið 2022.
Bæjarráð samþykkir samstarf við verkefnið og vísar því til vinnu starfsmanna.
8.
Þjónustukjarni í Mjallhvít
Bæjarráð samþykkir endurbætur á íbúð í Mjallhvít.
9.
Umsókn:WiFi4EU_styrkur fyrir fríu almenningsneti
Sveitarfélagið Hornafjörður fékk samþykkta styrkumsókn hjá Evrópusambandinu í uppsetningu á fríu almennings neti. Styrkurinn er upp á 15.000 EUR sem reiknast í dag um 2.180.000 ísk. Kostnaður við verkið er um einni milljón hærri en styrkurinn er fyrir utan rekstur og viðhald.
Bæjarráð afþakkar styrkinn þar sem framkvæmdakostnaður er hærri heldur en styrkupphæðin.
10.
Húsnæðissjálfseignarstofnun á landsbyggðinni
Haldinn var upplýsingafundur á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 27. janúar þar sem farið var yfir helstu forsendur aukins samstarfs sveitarfélaga til að stuðla að uppbyggingu og framboði á almennum íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Gert er ráð fyrir því að öll sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins geti lagt íbúðir inn í félagið eða tekið þátt í uppbyggingu. Markmiðið er að ná fram stærðarhagkvæmni sem næst ekki með litlum hses. félögum sem eiga aðeins fáar íbúðir.Í samræmi við niðurstöðu fundarins stefna HMS og sambandið að því að boða til stofnfundar húsnæðissjálfseignarstofnunar (HSES) sem starfi í framangreindum tilgangi.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Humarhátíð 2022
Vonir standa til að hægt verði að halda veglega humarhátíð næsta sumar. Humarhátíðarnefnd mun ekki starfa áfram, auglýsa þarf eftir aðilum til að skipuleggja Humarhátíð 2022.
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að halda Humarhátíð 2022.
12.
Mannauðsmál - mannauðsstjóri að láni.
Attentus hefur unnið að uppfærslu á stefnum sem tengjast mannauðsmálum sveitarfélagsins. Lögð eru fram drög að fræðslustefnu, stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi, viðverustefnu og launastefnu til umræðu.
Lagt fram til kynningar.
13.
Kjördæmavika 2022
Boðað hefur verið til sameiginlegs fundar í fjarfundi fyrir Suðurkjördæmi þann 16. febrúar n.k.
Lagt fram til kynningar.
14.
Ósk um að limgerði við Ránarslóð verði fjarlægt
Erindi frá íbúum við Ránarslóð þar sem óskað er eftir að limgerði við götuna verði fjarlægt.
Vísað til vinnu starfsmanna umhverfis- og skipulagssviðs.
15.
Endurmat viðlagatrygginga 2022
Erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands, NTÍ þar sem kemur fram að eigendur mannvirkja, sem er skylt að vátryggja, að senda NTÍ sundurliðaðar upplýsingar um endurstofnverð nýrra mannvirkja fyrir 1. mars nk.
Starfsmönnum falið að svara NTÍ.
16.
Umsókn um lóð - Borgartún 7
Umsókn Sérgio Nunes Pancadas um lóð að Borgartún 7.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17.
Umsókn um lóð - Bíóbraggi, Heppa
Umsókn Íshússins ehf. um lóð Bíóbraggi á Heppu.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og óskar eftir fundi með lóðarumsækjendum.