Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1026. fundur
15. febrúar 2022 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði
Málsnúmer 202105132
Farið yfir hugmyndir um nýja hótelbyggingu í ÓSlandi.
2.
Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt
Málsnúmer 202011051
Sæmundur Helgason vék af fundi.
Farið yfir teikningar af nýrri viðbyggingu við Sundlaug Hafnar.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að verkefninu.
3.
Íbúðir í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202201017
Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja undirbúning sölu á íbúð á Sandbakkavegi 4 sem er að losna úr leigu.
4.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Bæjarstjóra falið að funda með Innanríkisráðuneytinu og Þjóðskrá.
5.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Úrskurður stjórnsýslukæru Hildar Ýrar Viðarsdóttur hrl. Fh. Önnu Regínu Heiðarsdóttur og Hlyns Kristjánssonar vegna ákvörðunar bæjarráðs um að hafna beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11, Höfn lagður fram.
Úrskurðurinn byggir á greinargerð kæranda, sveitarfélaginu barst ekki tölvupóstur þar sem gefinn var kostur á andmælum.
Bæjarstjóra falið að kanna ástæðu þess að tölvupósturinn barst ekki til sveitarfélagisns.
Starfsmönnum falið að vinna svör við úrskurðinum til Innviðaráðuneytisins.
6.
Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf
Málsnúmer 202112075
Sveitarfélagið Hornafjörður og Vatnajökulsþjóðgarður gera með sér viljayfirlýsingu um að vinna hugmyndavinnu sem miðar að því að bæta skrifstofuaðstöðu hjá starfsfólki þjóðgarðsins á Höfn og að skoðaðir verði möguleikar á því að setja upp jöklasýningu í samstarfi beggja aðila og mögulega með aðkomu fjárfesta.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna sem stendur til að undirrita 21. febrúar.
7.
Auglýsing - Ákvarðanataka við stjórn sveitarfélaga.
Málsnúmer 202202044
Vegna farsóttar af völdum COVID-19 hefur innviðaráðherra tekið svofellda ákvörðun, með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.Til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitar­félaga er öllum sveitarstjórnum heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér tímabundin frávik frá ákvæðum sam­þykkta þeirra um stjórn sveitarfélaga, sem mæla fyrir framkvæmd fjarfunda, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitar­stjórnarlaga.Sveitarstjórnum er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi þar sem allir fundarmenn taka þátt í fundinum með rafrænum hætti.Heimild þessi öðlast þegar gildi og gildir til 31. mars 2022.
Lagt fram til kynningar.
8.
Framboð í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 202202049
Erindi frá kjörnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem þar sem auglýst er eftir framboðum til stjórnar l Lánasjóðs sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa - Árnanes
Málsnúmer 202201093
Matthildur vék af fundi undir þessum lið.Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististaðar í flokki IV-A- Hótel að Árnanesi veitingarstaðar.
Bæjarráð óskar eftir nánari gögnum.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Haukaberg Homestay
Málsnúmer 202101091
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi í Hraunhól 7 til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili. Óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna skylirða í fyrri umsögn.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
11.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202102059
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerðir HAUST
Málsnúmer 202202046
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerðir stjórnar Nýheima Þekkingarseturs
Málsnúmer 202202047
Fundargerðin lögð fram til kynningar.