Bæjarráð Hornafjarðar
1027. fundur
22. febrúar 2022
kl.
15:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 11
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 33
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 87
Fundargerð samþykkt.
4.
Reglur um frístundastyrk
Tillaga að breytingum á reglum um frístundastyrk voru samþykktar af fræðslu- og tómstundastyrk. Breytingarnar eru minniháttar og snúa fyrst og fremst að orðalagi og breytingum sem hafa orðið á því hvernig frístundastyrkurinn er nýttur.
Bæjarráð samþykkir breytingu á reglum um frístundastyrk.
5.
Reglur um starfsemi leikskóla
Breytingar á reglum um starfsemi leikskóla snúa að ýmsum þáttum svo sem innritun og meiri fyrirsjáanleika í leikskólastarfinu en einnig meiri sveigjanleika gagnvart foreldrum.
Bæjarráð samþykkir breytingu á reglum um starfsemi leiksskóla og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins
Breyting á samþykktum lagðar fram til umræðu.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
7.
Matarþjónusta - tölfræði
Á árinu 2021 tók Vigdísarholt yfir Skjólgarð og þar á meðal matarþjónustu sem stofnanir sveitarfélagsins hafa síðan keypt af þeim aðila án þjónustusamnings.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera samning við Vigdísarholt til eins árs eða til júní 2023 í samræmi við gildistíma samnings um skólamat. Á þeim tíma verði tekin ákvörðun um útboð.
8.
Humarhátíð 2022
Engar umsóknir komu vegna humarhátíðar 2022. Lagt er til að skipuð verði nefnd á vegum sveitarfélagsins sem mun halda utan um skipulag og framkvæmd humarhátíðarinnar.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
9.
Landsmót unglingadeilda
Unglingadeild Björgunarfélags Hornafjarðar sækir um stuðning sveitarfélagsins við landsmót sem fyrirhugað er að halda í sumar. Málinu fylgir drög að samningi sem var gerður árið 2021 þegar átti að halda landsmótið en af því varð ekki vegna Covid.
Bæjarráð samþykkir veita unglingadeildinni Brandi stuðning við landsmót næsta sumar en landsmótið hefur frestast undanfarin tvö ár. Starfsmönnum er falið að gera samning við unglingadeildina.
10.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Innanríkisráðuneytið og Þjóðskrá Íslands hafa tilkynnt að ekki verður tilbúið rafrænt kosningakerfi í mars mánuði. Óvíst er hvenær það verður tilbúið til notkunar. Niðurstaðan er því sú að halda verður staðbundnar kosningar vegna deiliskipulags í innbæ í samræmi við 107. gr. sveitarstjórnarlaga.
Í ljósi þess að Þjóðskrá Íslands getur ekki tryggt rafrænt kosningakerfi leggur bæjarráð til að kosningin fari fram samhliða sveitarstjórnarkosningum 14. maí n.k. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Úrskurður stjórnsýslukæru Hildar Ýrar Viðarsdóttur hrl. fh. Önnu Regínu Heiðarsdóttur og Hlyns Kristjánssonar vegna ákvörðunar bæjarráðs um að hafna beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11, Höfn lagður fram.Komið hefur í ljós að innanríkisráðuneytið sendi sveitarfélaginu ósk um sjónarmið sveitarfélagsins en þeir tölvupóstar bárust ekki til sveitarfélagsins vegna bilana í málakerfi ráðuneytisins.
Rekstraraðili tölvuþjónustu sveitarfélagsins gat ekki fundið tölvupósta frá ráðuneytinu þar sem tilkynnt var um kæruna.
Bæjarráð felur starfsmönnum að óska eftir skoðun á því hvort erindi hafi sannarlega farið úr póstkerfi ráðuneytisins, jafnframt að málið verði tekið upp að nýju þar sem sjónarmið sveitarfélagsins verði tekin til skoðunar.
Bæjarráð felur starfsmönnum að óska eftir skoðun á því hvort erindi hafi sannarlega farið úr póstkerfi ráðuneytisins, jafnframt að málið verði tekið upp að nýju þar sem sjónarmið sveitarfélagsins verði tekin til skoðunar.
12.
Krafa um endurgreiðslu gatnagerðagjalda Hagaleira 11
Erindi frá Landslögum Fh. Önnu Regínu Heiðarsdóttur og Hlyns Kristjánssonar þar sem óskað er eftir endurgreiðslu gatnagerðargjalda skv. úrskurði innanríkisráðuneytisins.
Bæjarráð felur starfsmönnum að tilkynna aðilum máls um beiðni sveitarfélagsins um endurupptöku á málinu, sjá málsnúmer 202202048.
13.
Kæra vegna ákvörðunar Bæjarstjórnar frá 11.nóvember 2021 vegna byggingar á lóð Stafafellsfjöll 8
Úrskurður liggur fyrir í kærumáli þar sem Olga Friðjónsdóttir eigandi lóðar nr. 7 í Stafafellsfjöllum kærir þá ákvörðun bæjarstjórnar að víkja frá kröfu um 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi vegna byggingar frístundahúss á lóð nr. 8 í Stafafellsfjöllum.Úrskurðarorð eru eftirfarandi:Felld er úr gildi ákvörðun sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 11. nóvember 2021 um að víkja frá kröfu 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi vegna byggingar frístundahúss á lóð nr. 8 í Stafafellsfjöllum.
Bæjarráð vísar málinu til vinnslu starfsmanna.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa - Árnanes
Matthildur vék af fundi undir þessum lið.Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki IV-A- Hótel að Árnanesi og veitingarstað.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn fyrir 50 manns í veitingasal og 46 manns í gistingu skv. umsögn slökkviliðsstjóra.