Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1029. fundur
8. mars 2022 kl. 14:30 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 34
Málsnúmer 2202014F
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 244
Málsnúmer 2202013F
Fundargerð samþykkt.
3.
Nytjasmiðjan-regnhlíf hringrásarhagkerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202108014
Elísabet Björney Lárusdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur, kynnir helstu niðurstöður úttektar á meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
4.
Nýr slökkvibíll - útboð
Málsnúmer 202203004
Sveitarfélagið tók þátt í útboði á vegum Ríkiskaupa vegna kaupa á nýjum slökkvibíl. Niðurstaðan er enn til skoðunar hjá Ríkiskaupum en aðeins eitt tilboð barst sem var 20% yfir kostnaðaráætlun.
Ákvörðun frestað til næsta fundar.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202201083
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkir einróma að taka undir yfirlýsingu Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, um að evrópskir sveitarstjórnarmenn fordæmi brot á sjálfstæði og sjálfræði Úkraínu og lýsi yfir stuðningi og samstöðu með sveitarfélögum í Úkraínu og íbúum þeirra. Sveitarfélagasambandið í Úkraínu er meðlimur í CEMR og undanfarin ár hefur átt sér mikil uppbygging í úkraínskum sveitarfélögum, með stuðningi evrópskra sveitarfélaga, til að efla sjálfsforræði þeirra og bæta þjónustu.
Bæjarráð tekur undir bókun Sambands íslenskra sveitarfélaga.
6.
Stríðsástand í Úkraínu
Málsnúmer 202203023
Bæjarráð tekur undir yfirlýsingu Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, um að evrópskir sveitarstjórnarmenn fordæmi brot á sjálfstæði og sjálfræði Úkraínu og lýsi yfir stuðningi og samstöðu með sveitarfélögum í Úkraínu og íbúum þeirra. Sveitarfélagasambandið í Úkraínu er meðlimur í CEMR og undanfarin ár hefur átt sér mikil uppbygging í úkraínskum sveitarfélögum, með stuðningi evrópskra sveitarfélaga, til að efla sjálfsforræði þeirra og bæta þjónustu.
Í ljósi stríðsástands í Úkraínu felur bæjarráð starfsmönnum að skoða innviði sveitarfélagsins m.t.t. móttöku flóttamanna frá Úkraínu og setja sig í samband við Rauðakross Íslands.
7.
Örútboð vegna reksturs tölvuþjónustu
Málsnúmer 202202106
Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að auglýsa örútboð en Ríkiskaup munu annast útboð vegna hýsingar og reksturs tölvuþjónustu fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa örútboð vegna hýsingar og reksturs tölvuþjónustu sveitarfélagsins.
8.
Eftirlit með fjármálum sveitarfélaga
Málsnúmer 202203009
Erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu með upplýsingum um almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga á árinu 2022.
Lagt fram til kynningar.
9.
Hækkun lífeyrisskuldbindinga 2021
Málsnúmer 202203011
Í ljós hefur komið að lífeyrisskuldbindingar margra sveitarfélaga vegna ársins 2021 hafa hækkað verulega. Rekja má hækkunina til nokkurra þátta sem eru raktar í minnisblaði sem fylgir málinu.Hækkunin fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð nemur 165 m.kr. fyrir árið 2021 miðað við 23 m.kr. árið 2020.
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsókn um styrk - Lionshreyfing Íslands
Málsnúmer 202203007
Erindi frá Lionshreyfingu Íslands þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið styðji við landssöfnun Lionshreyfingarinnar og Blindrafélagsins um fjölgun leiðsöguhunda fyrir blinda.
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. í landsöfnunina.
Fjármagnið tekið af óráðstöfuðu.
11.
Umsókn um lóð - Ósland L og M
Málsnúmer 202104035
Erindi frá Humarhöfninni ehf. þar sem óskað er eftir frest á framkvæmdum á lóð M í Óslandi.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 15.júní nk.
12.
Umsókn um lóð - Júllatún 8 og Júllatún 10
Málsnúmer 202202093
Umsókn Humarhafnarinnar ehf. um lóðir við Júllatún 8 og Júllatún 10.
Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum, niðurstöðu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Umsókn um lóð - Víkurbraut 34
Málsnúmer 202110058
Umsókn Jóns Malmquist Guðmundssonar um lóð að Víkurbraut 34.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Áskorun frá Sveitarfélaginu Vogar vegna Suðurnesjalínu 2
Málsnúmer 202203018
Erindi frá Sveitarfélaginu Vogar sem hvetur sveitarfélög landsins og Samband íslenskra sveitarfélaga til að veita umsögn og taka afstöðu til frumvars til laga um að veita Landsneti framkvæmdaleyfi til lagningar Suðurnesjalínu 2 í lofti í sveitarfélaginu.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar tekur undir að standa þarf vörð um lögvarið skipulagsvald sveitarfélaga. Jafnframt hvetur bæjarráð sveitarfélög og aðra landeigendur til að taka tillit til hagsmuna heildarinnar þegar kemur að skipulagsgerð þjóðhagslega mikilvægra innviða.
15.
Umsögn - Búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 51.mál.
Málsnúmer 202203017
Erindi frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar og hjúkrunarheimilum.
Lagt fram til kynningar.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa - Árshátíð FAS
Málsnúmer 202203010
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi fyrir árshátíð FAS í Sindrabæ.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.