Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1039. fundur
10. maí 2022 kl. 14:30 - 15:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 3.b
Málsnúmer 202109090
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir lið 1. og 2.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 150.004.000 kr.
Eitt tilboð barst frá Rósaberg ehf. 126.646.923 kr. 84% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rósaberg ehf.
2.
Tilkynning um framkvæmd og verðkönnun - Silfurbraut 2-4, breyting á upphitun
Málsnúmer 202203062
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 27.264.500 kr.
Eitt tilboð barst frá Króm og hvítt ehf. upp á 21.831.430 kr. 80% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði frá Króm og hvítt ehf.
3.
Akstursþjónusta bílaleiga
Málsnúmer 202205013
Minnisblað um akstursþjónustu velferðarsviðs þar sem kemur fram að þarfagreining hafi verið gerð. Þar kemur fram að 23 notendur eru að nýta sér þjónustuna og að tveir bílar dugi ekki eins og staðan er í dag. Óskað er eftir þriðju bifreiðinni til þess að anna akstursþjónustunni.
Starfsmönnum falið að leita tilboða í rekstarleigu í þrjár bifreiðar fyrir velferðarsvið og skoða áhrif þess á fjárhagsáætlun með það fyrir augum að selja núverandi bílakost.
4.
Ósk um styrk vegna ráðstefnu um eldgos í bókmenntum, listum og lífinu
Málsnúmer 202205031
Erindi frá Rannsóknasetri H.Í. á Hornafirði setrið mun halda ráðstefnuna Eldgos í bókmenntum, listum og lífinu á Höfn 3. og 4. júní. Ráðstefnan er systurráðstefna við mjög vel heppnaða ráðstefnu, Jöklar í bókmenntum, listum og lífinu.
Bæjarráð samþykkir að veita 150 þúsund kr. styrk til ráðstefnunar, fjármagnið verður tekið af óráðstöfuðu.
Jafnframt bendir bæjarráð á að styrkumsóknir eru opnar í nóvember og desember ár hvert en í ljósi óvenjulegra aðstæðna til ráðstefnuhalds á síðasta ári samþykkir bæjarráð styrkbeiðnina.
5.
Lausaganga hunda við Laxá
Málsnúmer 202204029
Framhaldsumræða um erindi frá Sigfinni Þrúðmarssyni fundi nr. 1034 þann 12. apríl sl. Minnisblað um lausagöngu hunda við Laxá lagt fram. Hvorki lög eða reglugerðir banna lausagöngu hunda í dreifbýli með almennum hætti.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið.
Í samþykktum sveitarfélagsins er fjallað um hundahald, sjá meðfylgjandi minnisblað.
6.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir að fresta framkvæmdum á lóð að Sandeyri 10 vegna skipulagsbreytinga á svæðinu, bæjarráð veitti frest áður til 15. maí 2022.
Bæjarráð samþykkir að veita frest á framkvæmdum til 1. september nk. í ljósi aðstæðna.
7.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Málsnúmer 201904026
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir að fresta framkvæmdum á lóð að Sandeyri 8 vegna skipulagsbreytinga á svæðinu, bæjarráð veitti frest áður til 15. maí 2022.
Bæjarráð samþykkir að veita frest á framkvæmdum til 1. september nk. í ljósi aðstæðna.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa - Golfskálinn ehf., Dalbraut 12
Málsnúmer 202205024
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna veitingastofu í flokki II veitingaleyfi-C.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn fyrir 35 manns.
9.
Stöðuleyfisumsókn - Matarvagn - Svæði á móts við Gömlubúð
Málsnúmer 202205022
Sweet & Savory ehf. fékk leyfi bæjarráðs þann 27.04.2021 fyrir afnot af landi við bílaplan á lóð Hafnarbraut 38 á grundvelli samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu. Þar sem stöðuleyfi rennur út þann 15.06.2022, er óskað eftir nýju leyfi. Fyrirhugað er að staðsetja matarvagn á svæði á móts við Gömlubúð um miðjan júní. Óskað er leyfis bæjarráðs á grundvelli samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi fyrir matarvagn til móts við Gömlubúð til eins árs skv. samþykkt og gjaldskrá sveitarfélagsins um götu- og torgsölu.
10.
Umsögn-Frumvarp til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar
Málsnúmer 202205018
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar (umhverfivæn orkuöflun), 582. mál.
Bæjarráð fagnar frumvarpinu þar sem lagt er til breytt fyrirkomulag á stuðningskerfi vegna umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun fyrir þá sem hita hús sín með raforku.
11.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Málsnúmer 202203053
Hjördís Edda Olgeirsdóttir óskar eftir að skila inn lóð að Álaleiru 15.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina á kortavef sveitarfélagsins.
12.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Í bréfi frá heilbrigðisráðuneytinu tiil sveitarfélagsins þann 6. maí s.l. kom fram að heilbrigðisráðuneytið sendi fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi dags. 3. sl., þar sem óskað var eftir heimild fyrir hækkun á kostnaði fyrir fyrirhugaða byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði, Fjármálaráðuneytið hefur nú samþykkt endurskoðaða kostnaðaráætlun vegna hlutdeildar ríkissjóðs í byggingu Hjúkrunarheimilisins í samræmi þær reglur sem gilda á sviði skipan opinberra framkvæmda. FSRE er því heimilt að óska eftir nýju tilboði frá verktaka með fyrirvara um að samþykki liggi fyrir vegna hlutdeildar sveitarfélagsins í heildarkostnaði.
Bæjarráð fagnar því að fjárheimild hefur verið samþykkt hjá ríkinu vegna verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir hlutdeild sveitarfélgsins í endurskoðaðri kostnaðaráætlun vegna byggingar hjúkrunarheimilis.
13.
Umsókn - Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer 202205047
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir Gæti ehf.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.