Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1042. fundur
9. júní 2022 kl. 12:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 15
Málsnúmer 2205015F
Fundargerð samþykkt.
2.
Akstursþjónusta bílaleiga
Málsnúmer 202205013
Stuðnings og virkniþjónusta sveitarfélagsins óskar eftir að breyta fyrirkomulagi á þeim bifreiðum sem eru í þjónustu við þjónustuþega stuðnings og virkniþjónustu. Samtals eru 23 notendur sem nýta sér akstursþjónustu frá stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs með einum eða öðrum hætti, bæði innan og utan þéttbýlis á Höfn. Samkvæmt þarfagreiningu þarf að fjölga bifreiðum til þess að anna þjónustunni.Óskað er eftir að selja tvær bifreiðar sem eru í eigu sveitarfélagsins, þar sem rekstrarkostnaður er mun hærri en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir og fá þrjár bifreiðar í langtímaleigu. Tilboð í rekstarleigu fyrir þrjár bifreiðar lögð fram.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða mismunandi útfærslur og útbúa viðauka við fjárhagsáætlun ársins í samræmi við beiðni stuðnings- og virkniþjónustu og meta áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu og sjóðstreymi.
3.
Ráðning bæjarstjóra 2022-2026
Málsnúmer 202206016
Formaður lagði til að Sigurjón Andrésson verði ráðinn bæjarstjóri fyrir kjörtímabilið 2022-2026 skv. ráðningarsamningi.
Formaður lagði til við bæjarráð að ráðning bæjarstjóra verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkir samhljóða ráðningu Sigurjóns Andréssonar.*
Bæjarráð býður Sigurjón og fjölskyldu velkomin til Sveitarfélagsins Hornafjarðar og óskar Sigurjóni velfarnaðar í nýju starfi.
4.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201805104
Ólöf Ingunn Björnsdóttir gerði grein fyrir niðurstöðu Hæstaréttar vegna áfrýjunarbeiðni Ice Lagoon ehf.
Hæstiréttur hafnar beiðni Ice Lagoon ehf. um áfrýjunarleyfi á sýknudómi Landsréttar. Jafnframt fellir Hæstiréttur úr gildi ákvæði dóms Landsréttar um frávísun frá héraðsdómi á viðurkenningarkröfu Ice Lagoon ehf. á skaðabótaskyldu sveitarfélagsins vegna áætlaðs tjóns á rekstri Ice Lagoon ehf. vegna ákvörðunar sveitarfélagsins 20. maí 2010. Sá þáttur málsins verður því lagður fyrir Landsrétt til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju dags. 20. júní nk.
5.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Innviðaráðuneytið úrskurðaði í kærumáli gegn sveitarfélaginu um að höfnun á niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11, sé ólögmæt. Sveitarfélagið fékk ekki upplýsingar um að kærumál væri í vinnslu hjá ráðuneytinu og óskaði því eftir endurupptöku á úrskurðinum og að sveitarfélagið fengi tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum að vegna málsins. Rökstuðningur var sendur Innanríkisráðuneytinu með ósk um endurupptöku málsins. Þann 1. júní sl. barst bréf frá ráðuneytinu þar sem ráðuneytið telur að ekkert í greinargerð sveitarfélagsins geti breytt fyrri afstöðu ráðuneytisins.
Sveitarfélagið hefur leitað til Sambands íslenskra sveitarfélaga um ráðgjöf og aðstoð í málinu.
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu starfsmanna í samstarfi við sambandið.
6.
Stafafellsfjöll: kæra v. byggingaframkvæmda á lóð í Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 201709479
Bæjarráð samþykkir niðurfellingu dagsekta í máli þessu þar sem umrædd óleyfisbygging hefur nú verið fjarlægð af lóðinni í samræmi við tilmæli sveitarfélagsins.
7.
Framkvæmd - Hafnarbraut - Hellulagnir
Málsnúmer 202105072
Óskað var eftir kostnaðartölum vegna frágangs á hellulögn á Hafnarbrat.
Vísað til áframhaldandi vinnu umhverfis- og skipulagsstjóra.
8.
Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf
Málsnúmer 202112075
Beðið er eftir svari frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
9.
Gjaldskrá um húsnæði og búnað
Málsnúmer 202205041
Tillaga að breytingum á gjaldskrá fyrir útleigu á íþróttahúsi.Megin breytingin er fólgin í því að að hækka lítilega útleiguna, ekki er innifalið í verði þjónusta vegna uppsetningar á drapperingum og fl.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
10.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Ólöf gerði grein fyrir stöðu málsins, en samkvæmt upplýsingum frá Framkvæmdasýslunni 30. maí sl. eru gögn ekki enn farin til bjóðanda. Ekki hafa fengist svör við síðastu fyrirspurn um stöðu málsins sem send var til Framkvæmdasýslunnar 7. júní sl.
Bæjarráð lýsir enn og aftur yfir óánægju með vinnslu málsins hjá Framkvæmdasýslunni og ítrekar kröfur sveitarfélagsins sem settar voru fram í fyrrnefndum tölvupósti til Framkvæmdasýslunnar. Er þess krafist að sökum verulegra tafa á verkefninu, þar sem upphaflega átti nýtt hjúkrunarheimili að vera tekið í notkun 2021, að það fjármagn sem sveitarfélagið hefur nú þegar greitt í verkefnið, um 196 m.kr., verði verðbætt og vaxtareiknað þar til framkvæmdir hefjast og gangi upp í hlutdeild sveitarfélagsins.
Berist ekki svar frá Framkvæmdasýslunni í byrjun næstu viku óskar bæjarráð eftir fundi með fulltrúum Framkvæmdasýslunnar og ráðuneytisins.
11.
Ósk um endurskoðun á samningi
Málsnúmer 202204046
Erindi frá SS Sport ehf. þar sem óskað er eftir endurskoðun á samningi um rekstur líkamsræktarstöðvarinnar. Í erindinu kemur fram að iðkendum hefur fækkað töluvert eftir lokanir af völdum Covid og forsendur rekstrar þar með brostnar.
Bæjarráð óskar eftir mati lögfræðings á samningsstöðu sveitarfélagsins gagnvart samkeppnislögum og útfærslumöguleikum við samningsgerð. Í kjölfarið óskar bæjarráð eftir fundi með forsvarsmanni S.S. Sport.
12.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Starfsmönnum falið að undirbúa íbúakosningu og nýja spurningu og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
13.
Kosningar í nefndir 2022-2026
Málsnúmer 202205115
Velferðarnefnd
Björgvin Hlíðar Erlendsson (D)verður aðalmaður í stað Ragnheiðar Rafnsdóttur
Ragnheiður Rafnsdóttir (D) verður varamaður í stað Andra Ágústssonar
Atvinnu- og menningarmálanefnd
Hjördís E. Olgeirsdóttir (D) verður aðalmaður í stað Tinnu Rutar Sigurðardóttur
Tinna Rut Sigurðardóttir (D) verður varamaður í stað Hjördísar E. Olgeirsdóttur
Fræðslu- og frístundanefnd
Andri Ágústsson(D) verður aðalmaður í stað Hjördísar E. Olgeirsdóttur
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir (K) verður varamaður í stað Sigríðar Þórunnar Þorvarðardóttur


14.
Verkefni - Römpum upp Ísland
Málsnúmer 202203103
Erindi frá Römpum Ísland þar sem átaksverkefnið að setja rampa fyrir hjólastóla á sem flesta staði á Íslandi.
Bæjarráð samþykkir að veita 400 þús. kr. í verkefni og verði það fé tekið af óráðstöfuðu.
15.
Umsögn - Frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (íbúakosningar)
Málsnúmer 202205142
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um sveitarstjórnarlög (íbúakosningar á vegum sveitarfélaga), 571. mál.
Bæjarráð felur starfsmönnum að senda umsögn skv. umræðum á fundinum.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa - Fagranes
Málsnúmer 202203045
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu á leyfi til reksturs gististaða í flokki II C minna gistiheimili.
Frestað.
17.
Umsókn um lóð Hagatún 16
Málsnúmer 202104132
Erindi frá Lárusi Páli Pálssyni þar sem óskað er eftir framlengingu á framkvæmdafresti vegna Hagatúns 16 þar sem ekki er búið að fjalla um ósk hans um stækkun á lóð ekkert deiliskipulag af svæðinu er til.
Bæjarráð samþykkir að veita þriggja mánaða frest til að hefja framkvæmdir frá þeim tíma sem lóðarmörk liggja fyrir.
18.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Málsnúmer 202206024
Umsókn Ragnars Þórs Gunnarssonar og Unu Guðjónsdóttur um einbýlishúsalóð að Álaleira 15.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina.*
19.
Umsögn um útgáfu leyfa - Tækifærisleyfi Íþrottahús Humarhátíðardansleikur
Málsnúmer 202206011
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu tækifærisleyfis fyrir Humrahátíðardansleiks í Íþróttahúsinu 26. júní.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
20.
Umsögn um útgáfu leyfa - Íþrottasvæði við Heppuskóla
Málsnúmer 202206014
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfis fyrir Humarhátíð útisvæði.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.