Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1044. fundur
7. júlí 2022 kl. 12:00 - 15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 247
Málsnúmer 2206011F
Bæjarráð tekur undir afstöðu hafnarstjórnar varðandi fjármögnun dýpkunar og skiptingu á kostnaði við ríkið og felur starfsmönnum að undirbúa rökstuðning.
Bæjarráð felur forstöðumanni Hornafjarðarhafna og bæjarstjóra að rýna erindisbréf og skipurit Hornafjarðarhafna.
Fundargerð samþykkt.
2.
Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202206063
Yfirkjörstjórn leggur til að kjörstaðir verði sameinaðir í einn fyrir næstu kosningar, eingöngu verði opinn kjörstaður á Höfn.
3.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Vegna breytinga sem gerðar voru á sveitarstjórnarlögum getur sveitarfélagið ekki haldið íbúakosningu fyrr en reglugerð um framkvæmd íbúakosningar liggur fyrir, hún mun fara í samráðsgátt um miðjan ágúst skv. upplýsingum frá innviðaráðuneytinu.
Innviðaráðuneytið leggur til að sveitarfélagið ákveði dagsetningu á íbúakosningu eftir að reglugerðin hefur verið samþykkt í ljósi þess að ekki er hægt að halda hana fram að því. Innviðaráðuneytið hefur staðfest að í þessu tilviki verður að túlka skilyrðið um ársfrest sveitarstjórnarlaga í samræmi við það. Í því samhengi er það innviðaráðuneytið sem hefur eftirlit með því að ársfresturinn er virtur, sbr. 109. gr. og 112. gr. sveitarstjórnarlaga og ráðuneytið mun ekki gera athugasemd við að umrædd íbúakosning verði haldið eftir ársfrestinn vegna aðstæðna.
4.
Björgunarmiðstöð - ósk um samstarf
Málsnúmer 202206064
Erindi frá Björgunarfélaginu og Slysavarnardeildinni Framtíð þar sem óskað er eftir samstarfi um uppbyggingu á nýrri björgunarmiðstöð þar sem Björgunarfélagið, Slysavarnardeildin Framtíð, Slökkvilið Hornafjarðar og sjúkraflutningar gætu haft sameiginlega aðstöðu.
Fulltrúar frá Björgunarfélaginu og Slysavarnardeildinni Framtíð gerðu grein fyrir hugmyndum um nýja björgunarmiðstöð.
Bæjarráð fagnar hugmyndum félaganna og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
5.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201805104
Sveitarfélagið er að fullu sýknað að kröfum Ice lagoon ehf.
6.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Opnun tilboðs í byggingu nýs hjúkrunarheimilis verður 8. júlí.
Bæjarráð óskar eftir fundi með Fjársýslu ríkisins og þeim ráðuneytum sem koma að málinu.
7.
Líkamsræktarstöð - rekstur og uppbygging
Málsnúmer 202205045
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Íþróttahús - hönnun á nýju íþróttahúsi á Höfn
Málsnúmer 202206057
Farið yfir þarfagreiningu og framtíðarsýn fyrir nýtt íþróttahús.
Starfsmönnum falið að vinna nánari sviðsmyndagreiningu.
9.
Starfsáætlun Sjónarhóls 2022
Málsnúmer 202205096
Þórgunnur greindi frá stöðu ráðninga á leikskólann Sjónarhól.
10.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2022
Málsnúmer 202204080
Bæjarráð samþykkir viðauka 2 samkvæmt framlögðum gögnum. Útgjaldaaukningu verður mætt með lækkun á handbæru fé.*
11.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 3.b
Málsnúmer 202109090
Við útboð á fráveituframkvæmd, var ákveðið að undanskilja dælubúnað þar sem sveitarfélagið hefur hugá að breyta smám saman dælubúnaði sínum og koma fyrir þurrdælubúnaði til að bæta endingu dælnanna og minnka viðhald. Um leið batnar aðstaða til að sinna dælunum fyrir starfsmenn. Um er að ræða talsverðan aukinn kostnað í upphafi en gert er ráð fyrir að hann borgi sig upp á innan við 10 árum.
Bæjarráð samþykkir 30 m.kr. viðbótarfjárheimild vegna fráveituáfanga 3.b með vísan í 10. lið um afgreiðslu á viðauka 2 við fjárhagsáætlun ársins.
12.
Framkvæmd Víkurbraut 24
Málsnúmer 202009069
Síðasta sumar var frágangi á lóð á Víkurbraut 24 frestað þar sem ekki var ljóst hvort stækka þyrfti leikskólalóð eða byggja hús á lóðinni. Í farvatninu er að byggja leikskólann á öðrum stað á lóðinni, óskað er eftir heimild til að klára lóðina. Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að kostnaður sé 5.000.000 kr.Ekki var gert ráð fyrir þessum kostnaði við gerð fjárhagsáætlunar, enda var ekki ljóst hvaða leiðir yrðu farnar við fjölgun leikskólaplássa
Bæjarráð samþykkir 5 m.kr. viðbótarfjárheimild vegna lóðafrágangs á Víkurbraut 24 með vísan í 10. lið um afgreiðslu á viðauka 2 við fjárhagsáætlun ársins.
13.
Umsókn um lóð - Hraunhóll 3
Málsnúmer 202204044
Þórólfur Örn Einarsson óskar eftir að skila lóðinni aftur til sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin og felur starfsmönnum að auglýsa lóðina.
14.
Umsókn um lóð - Borgartún 3 og 5
Málsnúmer 202108114
Arcanum Fjallaleiðsögumen óska eftir framlengingu á fresti á framkvæmdum á lóðinni Borgartún 5 og óska eftir til að hefja framkvæmdir á fyrrihluta ársins 2023.
Bæjarráð samþykkir að veita þriggja mánaða frest.
15.
Umsókn um lóð - Borgartún 1 og 2
Málsnúmer 202109001
Afturköllun á lóðum að Borgartúni 1, og 2 hefur verið send til lóðarhafa, hann hefur ekki gert athugasemd við afturköllun lóðanna.
Bæjarráð samþykkir að lóðirnar verði afturkallaðar.
16.
Umsókn um lóð - Bugðuleira 8
Málsnúmer 202205147
Umsókn Björgunarfélags Hornafjarðar um lóð að Bugðuleiru 8.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina.*
17.
Umsókn um lóð - Sæbraut 5
Málsnúmer 202206007
Umsókn Björgunarfélags Hornafjarðar um lóð að Sæbraut 5.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina.*
18.
Umsókn - Tækifærisleyfi - Brenna
Málsnúmer 202206088
Félag sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum óskar eftir tímabundnu starfsleyfi fyrir brennu.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
19.
Auka aðalfundur SASS - fundargerð
Málsnúmer 202205106
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Fundargerð - stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202203039
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Landsþing - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202206044
Aðalfulltrúar sveitarfélagsins eru Gauti Árnason og Eyrún Fríða Árnadóttir, einnig hefur bæjarstjóri rétt á setu á landsþinginu.