Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1045. fundur
21. júlí 2022 kl. 12:00 - 14:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Líkamsræktarstöð - rekstur og uppbygging
Málsnúmer 202205045
Bæjarráð samþykkir að auglýsa rekstur líkamsræktarstöðvar og hvetur áhugasama að sækja um og eiga samtal við sveitarfélagið.
2.
Akstursþjónusta bílaleiga
Málsnúmer 202205013
Fjármálastjóri og starfsmenn velferðarsviðs leggja til að þrjár bifreiðar verði teknar í rekstrarleigu hjá Heldi ehf. Lagt er til að samningur verði gerður fyrst um sinn til eins árs til reynslu og að bifreiðar sem nú eru í notkun á sviðinu verði seldar.
Bæjarráð samþykkir að bifreiðar sveitarfélagsins sem eru í notkun á velferðarsviði verði seldar og gerður verið eins árs samningur við bílaleiguna Höldur ehf.
3.
Sorphirða og urðun - Tilboð - Haust 2022
Málsnúmer 202207028
Verkefnastjóri umhverfismála hefur unnið að breytingu á rekstri sorpmála í sveitarfélaginu í samræmi við ákvörðun bæjarráðs þann 3. maí. Leitað var tilboða í gáma- og tækjaleigu fyrir sorpmóttökustöðina sem sveitarfélagið mun reka frá og með 1. ágúst og eru þau lögð fram. Jafnframt er lagt fram tilboð Funa ehf. í þjónustu við gámasvæði sorpmóttökustöðvarinnar. Lagt er til að bæjarráð samþykki hagkvæmustu tilboðin.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Hringrás ehf. um leigu á gámum undir endurvinnanlegan úrgang, leigu á tækjum og móttöku á endurvinnanlegum úrgangi þ.m.t. raftækjum og spilliefnum. Bæjarráð samþykkir einnig að semja við Funa ehf. um leigu á gámum undir óendurvinnanlegan úrgang ásamt þjónustu við þá gáma. Breytingarnar rúmast innan gildandi fjárheimildar.
Starfsmönnum falið að vinna málið áfram.
4.
Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar
Málsnúmer 202206034
Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins hefur heiti fræðslu- og frístundanefndar verið breytt úr tómstundanefnd í frístundanefnd. Erindisbréfinu hefur verið breytt samkvæmt nýju heiti nefndarinnar og efnislega var bætt við heilsueflandi samfélagi og fulltrúum á fundum nefndarinnar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar.
5.
Ósk um styrk - Austur Ultra
Málsnúmer 202207039
Erindi frá Gunnlaugi B. Ólafssyni fyrir hönd Austur Ultra hlaupsins þar sem hann óskar eftir styrk að upphæð 400 þús. kr. til Björgunarfélags Hornafjarðar fyrir gæslu í hlaupinu.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til Austur Ultra hlaupsins að upphæð 400 þús. kr. fjármunirnir verði teknir af óráðstöfuðu.
Bæjarráð bendir á að styrkumsóknir til bæjarráðs eru auglýstar í lok árs.
6.
Styrkir bæjarráðs 2022
Málsnúmer 202201054
Erindi frá Leikfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir að halda styrk sem veittur var til Götuleikhúss í tilefni afmælis leikfélagsins í staðinn verði unnið að leiksýningu í samstarfi við Smáleikhúsið í lok árs.
Bæjarráð samþykkir beiðni leikfélagsins og óskar þeim góðs gengis á næsta leikári.
7.
Áskorun til ráðherra
Málsnúmer 202207047
Smábátafélagið Hrollaugur skorar á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að tryggja 48 daga til strandveiða strax í sumar og í komandi framtíð. Þar kemur fram að strandveiðipotturinn eigi ekki eftir að duga út júlí mánuð og þá verði rúmlega 700 bátar verkefnalausir.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur heilshugar undir með Smábátafélaginu Hrollaugi.
8.
Kæra til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna byggingar á lóð Stafafellsfjöll 8
Málsnúmer 202207029
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem greint er frá að nefndinni hefur borist kæra vegna byggingar á lóð nr. 8 í Stafafellsfjöllum.
Lagt fram til kynningar.
9.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Lóðarhafar að Hagaleiru 11 Anna R. Heiðarsdóttir og Hlynur Kristjánsson kærðu sveitarfélagið til Innviðaráðuneytisins vegna ákvörðunar bæjarráðs að synja þeim um niðurfellingu gatnagerðargjalda. Ráðuneytið tók málið til umfjöllunar og úrskurðar sveitarfélagið til að endurgreiða gatnagerðargjöldin. Sveitarfélagið gerði athugasemd við málsmeðferðina þar sem sveitarfélagið fékk ekki upplýsingar um að kæra væri til umfjöllunar í ráðuneytinu og fékk ekki tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.Sveitarfélagið óskaði eftir endurupptöku málsins þar sem sjónarmið sveitarfélagsins voru ekki til hliðsjónar ákvörðunar ráðuneytisins og sendi greinargerð með sjónarmiðum sveitarfélagsins. Ráðuneytið hefur tvívegis synjað sveitarfélaginu um endurupptöku málsins. Engar skýringar eða leiðir eru til að rekja það að kæra lá fyrir í ráðuneytinu þar sem of langur tími var liðinn til að rekja tölvupósta.
Eftir ítarlega skoðun sveitarfélagsins og samráð við lögfræðing þess og Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkir bæjarráð að una ekki úrskurði ráðuneytisins og staðfestir þannig að synja lóðarhöfum um endurgreiðslu gatnagerðagjalda. Sveitarfélagið Hornafjörður viðurkennir ekki að framkvæmd þess hafi verið í trássi við jafnræðisreglu, enda séu sterk rök fyrir því að svo sé ekki.

Úrskurður ráðuneytisins er ekki bindandi fyrir Sveitarfélagið og telur sveitarfélagið að málsmeðferð hjá ráðuneytinu hafi verið haldin slíkum ágöllum að ekki sé tækt að una niðurstöðunni enda séu ríkir hagsmunir sveitarfélagsins í húfi.

Sveitarfélagið telur að ekki hafi verið um mismunum að ræða því þeir sem fengu frest á framkvæmdum voru ekki að sækja um lóð eftir að reglur um tímabundin afslátt af gatnagerðargjöldum rann út.
10.
Kæra til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytingu á deiliskipulagi Hafnarvíkur - Heppu
Málsnúmer 202207045
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem greint er frá að nefndinni hefur borist kæra vegna breytingar á deiliskipulagi Hafnavík Heppa.
Lagt fram til kynningar.
11.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Málsnúmer 202012081
Í breytingunni felst að lóðir C, G, H, D, E og F eru sameinaðar í eina lóð, lóð C-F. Byggingarmagn eykst um 4.831 m2 og hámarkshæð hækkar úr 9,5 m í 12 m. Byggðin hækkar úr 2 hæðum í 3 hæðir og bundin byggingarlína við Óslandsveg fellur niður. Settir eru nýir sérskilmálar fyrir lóð C-F en einnig eru gerðar breytingar á skilmálum í gildandi deiliskipulagi dags. 12.02.2016 og breytingu á deiliskipulagi dags. 27.07.2018 fyrir lóðir D, E og F.Kynningafundur um breytingu á deiliskipulagi útbæ Höfn var haldinn 15. júlí.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi útbæ Höfn og vísar málinu í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr 123/2010.*
12.
Umsókn um lóð - Borgartún 2
Málsnúmer 202207024
Umsókn Pawel Wiktors Rydzewski um lóð að Borgartúni 2.
Bæjarráð samþykkir lóðarumsóknina.*
13.
Umsókn um lóð - Borgartún 1
Málsnúmer 202207027
Umsókn Fjallsárlóns ehf. um lóð að Borgartúni 1.
Bæjarráð samþykkir lóðarumsóknina.*
14.
Umsögn um útgáfu leyfa - Árnanes 5B
Málsnúmer 202203092
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við leyfi til reksturs gististaðar í flokk IVB stærra gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
15.
Ósk um umsögn vegna flugeldasýningar
Málsnúmer 202207040
Erindi frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn um flugeldasýningu á Jökulsárlóni 13. ágúst.
Bæjarráð er jákvætt fyrir flugeldasýningunni.
16.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Tilboð í framkvæmdir við Hjúkrunarheimili, Sveitarfélagið Höfn í Hornafirði,
voru opnuð þann 8.júlí s.l.
Eitt tilboð barst og sjást yfirfarnar niðurstöðutölur tilboðs ásamt kostnaðaráætlun Framkvæmdasýslu ríkisins:
Húsheild ehf. kr. 2.080.668.062. 109,9%
Kostnaðaráætlun FSRE kr. 1.892.751.350 100,0%
Bæjarráð fagnar því að Framkvæmdasýsla ríkisins hafi yfirfarið tilboðið og mæli með því að tilboðinu verði tekið.
Tilboðið verður borið undir aðila til samþykktar hjá heilbrigðisráðuneytinu sem síðar fer til fjármálaráðuneytisins.
Bæjarráð samþykkir fyrir hönd sveitarfélagsins að tilboðinu verði tekið og vonast um leið að framkvæmdir hefjist sem allra fyrst.
17.
Ráðhús aðgengi utanhúss
Málsnúmer 202207054
Bæjarráð samþykkir að farið verði í útboð á aðgengi að Ráðhúsi utanhúss.
Vísað til fjármálastjóra til að meta áhrif á fjárhag og gerðar viðauka og veita heimild til umsóknar í framkvæmdasjóð jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa - Sauðanes Gistihús
Málsnúmer 202206074
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við leyfi til reksturs gististaðar II B stærra gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn fyrir gesti að hámarki 10 manns í samræmi við umsagnir byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra.