Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1047. fundur
18. ágúst 2022 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202110002
Hildur Ýr greindi frá starfi fjölmenningar í sveitarfélaginu.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með fjölbreytt og öflugt starf sem er unnið í málefnum fjölmenningar.
2.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 202207008
Erindi frá Þroskahjálp og Örykrjabandalaginu þar sem bent er á að skv. lögum eiga sveitarfélögin að stofna notendaráð.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísað því til áframhaldandi vinnu velferðarnefndar.
3.
Krafa um bætur vegna úrskurðar Kærunefndar jafnréttismála
Málsnúmer 202010090
Bæjarstjóri hefur leitað sátta við málsaðila.
Bæjarráð fagnar því að sátt hafi náðst í þessu erfiða mál og allir aðilar gangi sáttir frá borði.
4.
Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Málsnúmer 202207060
Ársskýrslan lögð fram til kynningar.
5.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
6.
Áskorun frá bæjarstjórn Vestmannaeyja um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
Málsnúmer 202208038
Bæjarstjórn Vestmannaeyja sendi frá sér áskorun um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og skoraði á aðrar sveitarstjórnir að taka undir hana.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar tekur undir áskorun Bæjarstjórnar Vestmannaeyja og áréttar að jafnt aðgengi allra landsmanna að heilbrigðisþjónustu á að vera grundvallaratriði í samfélagsuppbyggingunni. Sú er hins vegar ekki raunin fyrir fólk á landsbyggðinni í dag. Heilsugæslan á landsbyggðinni er undirmönnuð og aðgengi íbúa að grunnheilbrigðisþjónustu er skert. Það þarf að búa þannig um hnútana að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni geti mannað stöður heilbrigðisstarfsfólks þannig að þær geti veitt þá grunnheilbrigðisþjónustu sem þeim er ætlað. Þá liggur fyrir að flestar flóknar aðgerðir eru í dag einungis framkvæmanlegar á Landspítalanum. Það þarf að auka öryggi sjúklinga á landsbyggðinni með því að styrkja og breyta fyrirkomulagi sjúkraflugs m.a. með tilkomu sérhæfðrar sjúkraþyrlu og ákveða þarf staðsetningu flugvallar í Vatnsmýrinni til framtíðar. Þannig tryggjum við að allir landsmenn geti notið þjónustu Landspítalans með fullnægjandi hætti.