Bæjarráð Hornafjarðar
1048. fundur
25. ágúst 2022
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
Fundargerð samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 16
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 92
Fundargerð samþykkt.
4.
Framkvæmdir 2022
Umhverfis - og skipulagsstjóri greindi frá framkvæmdum sem hægt er að fara í á þessu ári.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Fyrirhugað sorpútboð 2022
Minnisblað verkefnisstjóra umhverfismála lagt fram. Lagt er til að bjóða sorpmálin út þannig að verkþáttum verði skipt upp og bjóða út sérstaklega s.s. sorphirðu, flutning á efnum, rekstur urðunarstaðar og gámaleigu.
Bæjarráð samþykkir að bjóða sorpmálin út í aðskildum verkþáttum eins og lagt er til, vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
6.
Staðan í starfsemi velferðarsviðs
Velferðarnenfd leggur til að eftirfarandi stöðugildi í fjölskyldu-og félagsþjónustu verði til frambúðar:1 stg. í virkniþjónustu (var tilraunaverkefni)0,70 stg. í tölfræði og gæðamálum (var tilraunaverkefni)0,50 stg. vegna innleiðingar á auknum verkefnum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 og voru samþykkt 11. júní 2021. (ný verkefni).
Bæjarráð samþykkir auka stöðugildi.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
7.
Reglur um daggæslu í heimahúsi
Búið er að skipta reglum um daggæslu í heimahúsi og reglur um niðurgreiðslu til dagforeldra.
Bæjarráð samþykkir reglur um daggæslu í heimahúsum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra
Bæjarráð samþykkir reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Ósk um endurskoðun á samningi
Bæjarráð óskaði eftir tilboðum í rekstur líkamsræktarstöðvar, engin tilboð bárust. Núverandi rekstaraðili hafði sýnt áhuga á rekstrinum og var starfsmönnum falið að ganga til samninga við hana.
Bæjarráð samþykkir viðauka samning við S.S sport um rekstur á líkamsræktarstöð.
10.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Farið yfir tíma- og verkáætlun fjárhagsáætlunar og minnisblað vegna rammaúthlutunar. Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana 2023-2026.
Lagt fram til kynningar.
11.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Bæjarstjórn lagði til að siðareglurnar verði teknar upp til endurskoðunar í nefndum og bæjarráði
Vísað til umfjöllunar í fastanefndum sveitarfélagsins.
12.
Reglur um úthlutun lóða
Lögfræðingur sveitarféalgsins og bygginafulltrúi unnu breytingar á reglunum.
Umræður um reglur um úthlutun lóða.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
13.
Vatnajökulsþjóðgarður -Vettvangsferð vegna húsnæðismála
Drög að dagskrá heimsóknar fulltrúa Vatnajökulsþjóðgarðar, Framkvæmdasýslu ríkiseigna og umhverfis- orku og loftlagsráðuneytisins til sveitarfélagsins 7. september.
Bæjarráð fagnar heimsókn þessara stofnanna og hlakkar til að taka vel á móti þeim til að fara yfir þá kosti sem eru í stöðunni um framtíðaráform í húsnæðismálum Vatnajökulsþjóðgarðs í Sveitarfélaginu Hornafirði.