Bæjarráð Hornafjarðar
1049. fundur
1. september 2022
kl.
10:00
-
12:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 248
Fundargerðin samþykkt.
2.
Framkvæmdir 2022
Brynja greindi frá vinna við úttekt á kosnaði í samræmi við umræður á síðasta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð fagnar framkomnum tillögum og mun koma með tillögur til starfsmanna sem allra fyrst.
3.
Fjölmenning - stefnumótun
Fjölmenningarráð hefur skoðað tvær leiðir varðandi stefnumótun í málaflokknum, fjölmenningarstefnu og mannréttindastefnu. Mótun heildstæðrar mannréttindastefnu er á málaskrá nýs meirihluta.Fjölmenningarráð fagnar því að myndun mannréttindarstefnu sé í málefnasamningi nýs meirihluta og óskar eftir upplýsingum frá bæjarráði um hvenær sú vinna eigi að fara af stað og með hvaða hætti.
Mótun heildstæðrar mannréttindastefnu var á stefnuskrá allra flokka.
Starfsmönnum falið að leggja fram tillögu að vinnulagi við gerð mannréttindastefnu.
Starfsmönnum falið að leggja fram tillögu að vinnulagi við gerð mannréttindastefnu.
4.
Umsókn - Leyfi fyrir auglýsingar á gamla vatnstanki
Körfuknattleiksdeild Sindra óskar eftir afnot af vatnstanknum á Fiskhól með því að selja auglýsingar á tankinn.
Bæjarráð fagnar metnaði körfuknattleiksdeildarinnar og því mikilvæga starfi sem hún stendur fyrir.
Áður en afstaða er tekin til erindisins óskar bæjarráð eftir að staðsetning og notkun auglýsingaskilta sem rekin eru af íþróttafélögum verði skoðaðar.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Áður en afstaða er tekin til erindisins óskar bæjarráð eftir að staðsetning og notkun auglýsingaskilta sem rekin eru af íþróttafélögum verði skoðaðar.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
5.
Starfshópur - Tillögur um nýtingu vindorku
Starfshópurinn um nýtingu vindokrku hefur tekið til starfa og ákveðið að hefja samráðsferli strax. Sveitarfélögum er boðið að senda sjónarmið sín til starfshópsins. Einnig er gert ráð fyrir því að starfshópurinn fundi með hagaðilum síðar á þessu ári þar sem um gagnkvæmari samskipti verði að ræða.
Vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
6.
Bókun - Samræmd móttaka flóttafólks
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem stjórn sambandsins hvetur sveitarstjórnir til þess að kynna sér efni samkomulags um samræmda móttöku flóttafólks og taka afstöðu til þess hvort sveitarfélögin geti tekið þátt í þessu mikilvæga samfélagslega verkefni.
Bæjarráð felur starfsmönnum að hafa samband við tengilið vegna móttöku flóttamanna og kanna getu sveitarfélagsins til þess að taka þátt í verkefninu.
7.
Kosning í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarð
Erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa í Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs ef þeir fulltrúar sem eru í ráðinu óska eftir að víkja.
Bæjarstjóra falið að hafa samband við fulltrúa sveitarfélagsins sem eru skipaðir í ráðið.
8.
Beiðni um styrk - Útgáfa á spilastokk með vitamyndum
Erindi frá Vitafélaginu þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 80.000 kr. til útgáfu á spilastokk með 52 vitamyndum og þar af fjórum af Hornfiskum vitum.
Bæjarráð samþykkir að veita 80.000 kr. í verkefnið.
9.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Gunnar Ásgeirsson óskar eftir fresti til að hefja framkvæmdir á lóð Hafnarbraut 6.
Bæjarráð samþykkir að veita frest á framkvæmdum til 1. desember.
10.
Fundargerð - stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.