Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1050. fundur
8. september 2022 kl. 10:00 - 11:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 41
Málsnúmer 2209001F
Fundargerð samþykkt.
2.
Ráðhús aðgengi utanhúss
Málsnúmer 202207054
Brynja greindi frá stöðu málsins.
3.
Reglur um úthlutun lóða
Málsnúmer 202010156
Gengið verður frá reglunum fyrir fundinn
Bæjarráð samþykkir reglur um lóðarúthlutun og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að verið er að klára að hnýta nokkra lausa enda.
Stefnt er að því að taka fyrstu skóflustungu innan skamms tíma.
5.
Humarhátíð 2022
Málsnúmer 202202017
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.
6.
Ákall nemenda í Félagsráðgjöf
Málsnúmer 202209012
Erindi frá nemum í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands sem berjast fyrir að félagsráðgjöf verði kennd í fjarnámi svo landsbyggðarfólk hafi möguleika á að stunda nám í félagsráðgjöf.
Bæjarráð tekur heilshugar undir ákall nemenda í félagsráðgjöf og hvetur menntastofnanir bjóði upp á nám í fjarnámi þannig að nemendur á landsbyggðinni geti stundað nám sitt óháð búsetu.
7.
Kosning í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 202208089
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Kosning í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands
Málsnúmer 202208078
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Kæra til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytingu á deiliskipulagi Hafnarvíkur - Heppu
Málsnúmer 202207045
Kærunefnd úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vísaði málinu frá.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa - Skaftafell 1 b - Alps Voyage ehf.- veitingaleyfi
Málsnúmer 202206039
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
11.
Fundargerð 912 - Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202209006
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Starfsendurhæfing Austurlands - Ársreikningur og ársskýrsla 2021
Málsnúmer 202207004
Árskýrsla og ársreikningur Starfsendurhæfingar Austurlands lögð fram.
13.
Umsókn um lóð - Dalbraut 2 a
Málsnúmer 202207063
Óskað er eftir uppbyggingu á lóðum Dalbraut 2A, 2B, og 2C. Fyrirhuguð er að reisa um 350 m² sex íbúða hús á hverri lóð fyrir sig. Vegna hæðarsetningar lóða er fyrirhuguð að reisa þriggja hæða hús með aðalinngangi á miðhæð. Fyrirhuguð er að mæni á húsum yrði aðeins upp fyrir mæni á Dalbraut 4.Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu til bæjarráðs.
Vísað til áframhaldandi vinnu.