Bæjarráð Hornafjarðar
1055. fundur
11. október 2022
kl.
15:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umsögn - Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda
Lagt fram til kynningar.
2.
Eignarskiptayfirlýsing vegna reiðskemmu og félagshúsnæðis
Bæjarráð samþykkir eignaskiptaryfirlýsinguna.
3.
Ósk um stuðning við starfsmannaferðar á Sjónarhól
Bæjarráð fagnar frumkvæði starfsmanna Sjónarhóls og felur fræðslustjóra að ræða nánar við hlutaðeigandi um mögulegan styrk sveitarfélagsins til verkefnisins.
4.
Greinagerð - Aðstaða Knattspyrnudeildar Sindra
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og greinargerð Knattspyrnudeildar Sindra. Bæjarráð tekur undir með þeim að aðstæður á knattspyrnuvöllum á Höfn eru ekki eins og best verður á kosið. Sveitarfélagið mun taka upp viðræður við UMF Sindra um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja hjá sveitarfélaginu og hefur þegar boðað til fundar um málið.
5.
Skipulag íbúðarsvæðis
Bæjarráð óskar eftir því að skipulagsstjóri taki saman minnisblað um stöðuna á framtíðar- uppbyggingarsvæðum okkar byggt á nýjustu gögnum þannig að hraða megi uppbyggingu eins og kostur er.
6.
Fundargerð 913 - Samband íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
7.
Umsögn - Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum
Skipulagsstjóra falið að rýna breytingar og undirbúa drög að umsögn.