Bæjarráð Hornafjarðar
1056. fundur
20. október 2022
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 44
Fundargerð samþykkt.
2.
Þjóðlenda - starfsemi í Kollumúla
Auglýsing um nýtingu þjóðlendu í Kollumúla, samkvæmt lögfræðingi Forsætisráðuneytisins þá uppfyllir hún skilyrði um slíkar auglýsingar á þennan hátt, og þeir skilmálar sem þykja mestu varða eru teknir fram.Þar sem leiguverð er ekki hluti af matsþáttum vegna umsóknarinnar, verður eingöngu getið til um það í leigusamningi í framhaldinu.
Bæjarráð samþykkir auglýsignu um nýtingu lóðar úr þjóðlendu í Lónsöræfum nyrðri L222185 undir aðstöðuhús fyrir dagdvalar- og tjaldgesti í Kollumúla og salernishús, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingu á aðstöðuhúsi fyrir skálaverði á lóðinni. Auglýsingatími er til 9. nóvember.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
3.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Launaáætlun 2023 lögð fram.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjármálastjóra.
4.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2022
Fjármálastjóri fór yfir viðauka IV.
Bæjarráð samþykkir viðauka IV og vísar honum til bæjarstjórnar.
Viðbótarfjárheimildum verði mætt með lækkun á haldbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka IV og vísar honum til bæjarstjórnar.
Viðbótarfjárheimildum verði mætt með lækkun á haldbæru fé.
5.
Styrktarbeiðni - Rekstrarstyrkur 2023
Samtök um kvennaathvarf óska eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2022 að fjárhæð kr. 200,000.
Vísað til afgreiðslu hjá félagsmálastjóra.
6.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Það þarf að skipa tvo kjörna fulltrúa úr bæjarráði í stýrihóp barnvæns samfélags, einn úr meirihluta og einn úr minnihluta og þrjá úr ungmennaráði.
Bæjarráð tilnefnir Gunnhildir Imsland og Eyrúnu Fríðu Árnadóttur.
7.
Kosning í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands
Tilnefna þarf nýjan varamann í stað Hugrúnar Hörpu og leggja fyrir bæjarsjórn.
Bæjarráð tilnefnir Önnu Ragnarsdóttir Pederssen.
8.
Ósk um umsögn við tillögu til þingsályktunar - endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 9.mál.
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar, endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 9. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. október nk.
Lagt fram til kynningar.
9.
Ósk um umsögn - frumvarp til laga um almannatryggingar
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga umalmannatryggingar (skerðing á lífeyri vegna búsetu), 44. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. október nk
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundarboð - Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hefur ákveðið að halda skuli aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga þann 11. nóvember nk. Ef sveitarfélög hafi áhuga á að ganga í Samtök orkusveitarfélaga þarf að senda erindi þess efnis til stjórnar samtakanna þannig að hægt sé að taka erindið fyrir á aðalfundi sbr. samþykktirnar 11. nóvember en þann dag klukkan 13:00 verður aðalfundur samtakanna haldinn í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Bæjarráð samþykkir að ganga í samtök orkusveitarfélaga.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
11.
Fundargerð - Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
A. Jonsson ehf og Iceguide ehf óskar eftir lóð fyrir atvinnuhúsnæði að Álaugarvegi 12. Til skoðunar er að selja núverandi húsnæði að Heppuveggi 9 og byggja annað húsnæði m.a. fyrir starfsemi félaganna.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn í Múlanum Neskaupstað 26. október kl. 13:30.
Bæjarstjóri og fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn HAUST fara með atkvæði sveitarfélagsins.