Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1057. fundur
26. október 2022 kl. 13:00 - 14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Málsnúmer 202208062
Ólöf fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun 2023-2026 og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2.
Ágóðahlutagreiðsla EBÍ
Málsnúmer 202210065
Hlutdeild sveitarfélagsins í Sameignasjóði EBÍ er 1,608% og greiðsla ársins 804.000 kr.
3.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202201083
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Skýrsla um stöðu slökkviliða á Íslandi
Málsnúmer 202210012
Bæjarráð óskar eftir uppfærðri aðgerðaráætlun fyrir Slökkvilið Hornafjarðar.
5.
Umsögn um útgáfu leyfa
Málsnúmer 202210072
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar í Sindrabæ.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.