Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1067. fundur
12. janúar 2023 kl. 10:00 - 11:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 49
Málsnúmer 2301002F
Bryndís Bjarnason vék af fundi undir lið sjö.
Varðandi lið sjö um byggingaráform við Dalbraut 2, leggur bæjarráð til að unnin verði óveruleg breyting á aðalskipulagi vegna stækkkunar lóða um tíu metra til norðurs. Fundargerðin samþykkt.
2.
Fyrirhugað sorpútboð 2022
Málsnúmer 202108112
Tilboð í gerð útboðsgagna og framkvæmd útboðs fyrir úrgangskerfi sveitarfélagsins.
Fjögur tilboð bárust frá Eflu, Verkís, Hvata og Kvöðli sem var með frávikstilboði þar sem tilboðið var þrennskonar miðað við tímafjölda og náði ekki til allra verkþátta. Mat á tilboðum byggir á 60% kostnaðarmati og 40% mati á tæknilegu hæfi og reynslu.
Efla 2.466.800 kr. til 4.228.800 kr.
Verkís 3.202.500 kr.
Hvati 5.541.800 kr.
Kvöðull 2.116.800 kr. 688.800 kr. 2.385.600 kr.
Bæjarráð samþykkir að ganga að tilboði frá Verkís.

3.
Borgað þegar hent er - Innleiðing við heimili
Málsnúmer 202301015
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á að fara, rýmisleiðina með álagningakerfi HMS, auk þess að hafa fjármuni og sjá fram á að geta haft hraðar hendur.
Bæjarráð er tilbúið að taka þátt í verkefninu en telur óraunhæft að því verði lokið fyrir fyrsta gjalddaga fasteignagjalda á árinu sem er 1. febrúar nk.
4.
Ósk um stuðning við rekstur crossfit stöðvar
Málsnúmer 202212117
Erindi frá iðkendum Fenris Elite ehf. um stuðning við rekstur crossfit stöðvar. Á fundi bæjarráðs 22. desember var starfsmönnum falið að kalla eftir frekari upplýsingum í samræmi við umræður á fundinum.
Í kjölfar áskorunar iðkenda Fenrir Elite hafa starfsmenn verið í samræðum við forsvarsmenn félagsins og ræddu um hvort Fenrir gæti nýtt sér hluta húsnæðis við Álaugarvegi 7 þar sem Sporthöllin er með aðstöðu.
Bæjarráð getur ekki brugðist frekar við áskorun iðkenda um rekstrarstyrk fyrir félagið.
5.
Beiðni - Styrkur vegna Ítalíuferðar
Málsnúmer 202301001
Erindi frá Kór Menntaskólans við Laugarvatn þar sem óskað er eftir styrk fyrir tónleikaferð til Ítalíu.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en sér sér ekki fært að verða við erindnu..
6.
Ósk um samstarf - ljósabúnaður á vatnstanki
Málsnúmer 202301018
Erindi frá Þorsteini Sigurbergssyni þar sem hann óskar eftir að sveitarfélagið komi að rekstri á ljósabúnaði á vatnstanki sveitarfélagsins.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar því til styrkjaumsókna bæjarráðs.
7.
Yfirdráttarheimild
Málsnúmer 201912086
Fjármálastjóri óskar eftir samþykki bæjarráðs til að sækja um ótímabundna yfirdráttarheimild að fjárhæð 60.000.000 kr. fyrir sveitarfélagið til að mæta skammtímasveiflum í sjóðsflæði.
Bæjarráð veitir fjármálastjóra heimild til að sækja um ótímabundna yfirdráttarheimild í viðskiptabanka sveitarfélagsins.