Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1074. fundur
2. mars 2023 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 49
Málsnúmer 2302013F
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 253
Málsnúmer 2302016F
Fundargerð samþykkt.
3.
Humarhátíð
Málsnúmer 202301049
Atvinnu- og menningarmálanefnd auglýsti eftir áhugasömum til að halda utan um Humarhátíð 2023. Einn hópur áhugasamra íbúa sótti um. Atvinnu- og menningarmálanefnd vann umgjörð fyrir Humarhátíð og vísar henni til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að áhugasamir íbúar í forsvari Önnu Ragnarsdóttur Pedersen, Emil Örn Morávek Jóhannsson, Guðrún Stefanía V. Ingólfsdóttir og Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir haldi Humarhátíð 2023 í samstarfi við íþrótta og félagasamtök í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir framlagða umgörð hátíðarinnar.
4.
Skrifstofuhúsnæði Litlubrú - störf án staðsetningar
Málsnúmer 202011007
Bæjarráð fól Árdísi að vinna gjaldskrá fyrir skrifstofu fyrir störf án staðsetninga eru drög að henni lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir skrifstofuhúsnæði fyrir störf án staðsetningar.
5.
Upplýsingamiðstöð - Gamlabúð
Málsnúmer 202301099
Árdís og bæjarstjórii hafa fundað með aðilum frá Ríki Vatnajökuls.
Ríki Vatnajökuls hefur óskað eftir samtali við sveitarfélagið um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Gömlubúð í sumar. Ríki Vatnajökuls og FASK og sveitarfélagið munu boða til fundar 24. mars þar sem m.a. þessar hugmyndir verða ræddar.
Í ljósi þess að fleiri aðilar hafa sýnt áhuga á að nýta húsið samþykkir bæjarráð að auglýsa húsið til leigu fyrir áhugasama.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu og útbúa auglýsingu.
6.
Viðhaldsdýpkun innan hafnar 2022 2026
Málsnúmer 202301048
Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 210.000.000 kr.
Bjóðandi tilboðsupphæð
Dýpkunarfélagið Trölli ehf. 233.310.000 kr. 11,1% yfir kostnaðaáætlun
Björgun ehf. 254.310.000 kr. 21% yfir kostnaðaráætlun
Bæjarráð samþykkir að Vegagerðin gangi til samninga við lægstbjóðanda, Dýpkunarfélagið Trölla ehf.
7.
Framkvæmdir 2023
Málsnúmer 202302088
Framkvæmdir sem ekki náðist að framkvæma á árinu 2022 lagðar fram og
vísað til gerðar viðauka og vinnu hjá fjármálastjóra.
8.
Aðstaða fyrir flöskumóttöku
Málsnúmer 202302077
Erindi frá Körfuknattleiksdeild Sindra sem hefur rekið Flöskumóttöku Endurvinnslunnar frá í desember við Söfnunarstöðina sem átti að vera tímabundin aðstaða. Óskað er eftir að halda áfram með aðstöðuna á svæðinu og fá 120 fm. svæði fyrir tvo gáma og geymslusvæði fyrir reksturinn.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
9.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Málsnúmer 202302007
Umsókn Þingavað ehf. um lóð að Álaugarvegi 10.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Hverfisráð - Íbúaráð
Málsnúmer 202211120
Auglýsing um þátttöku í íbúaráð lögð fram
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa - Konukvöld Knattspyrnudeildar Sindra
Málsnúmer 202302085
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn fyrir tækifærisleyfi tímabundið áfengisleyfi í Sindrabæ fyrir Knattspyrnudeild Sindra 4. mars.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa - Árshátíð FAS
Málsnúmer 202302084
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir árshátíð FAS í Sindrabæ 2. mars.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.