Bæjarráð Hornafjarðar
1080. fundur
13. apríl 2023
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 55
Fundargerð samþykkt.
2.
Stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju
Á fundinn komu Lovísa Bjarnadóttir og Anna Sigurbjörg Sævarsdóttir. Þær kynntu fyrirhugaðar áætlanir um stofnun Þjónustusláturhúss og Matarsmiðju í sveitarfélaginu. Hugmyndin er að byrja á stofnun Matarsmiðju og óskað er eftir að sveitarfélagið haldi sínum stuðningi við verkefnið þrátt fyrir að byrjað verði á Matarsmiðju eingöngu og stofnun Þjónustusláturhúss verði síðar í ferlinu.
Bæjarráð þakkar góða heimsókn á fundinn og fagnar hugmyndunum og samþykkir erindi hópsins.
3.
Könnun til sveitarfélaga á Suðurlandi
Erindi frá Markaðsstofu Suðurlands var sent til allra sveitarfélaga á Suðurlandi. Þar er óskað er eftir því að sveitarstjórn eða bæjarráð ásamt fulltrúa sveitarfélagsins í "Faghópi sveitarfélaganna um ferðamál á Suðurlandi" eða starfsmanni sem fer með málefni ferðaþjónustu hjá sveitarfélaginu fjalli um og svari sameiginlega könnun. Könnun sem er hluti af stefnumótunarvinnu Markaðsstofu Suðurlands og auk þess verða upplýsingar nýttar inn í samningagerð við ríki og sveitarfélög í haust.Á síðasta fundi bæjarráðs Hornafjarðar þann 5. apríl sl. var óskað eftir því að Markaðsstofan kæmi á næsta fund og héldi kynningu á starfi stofunnar.
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir framkvæmdastjóri kom á fundinn í fjarfundi og kynnti starf Markaðsstofunnar. Bæjarráð þakkar góða yfirferð á hlutverki og helstu verkefnum stofunnar og lýsir ánægju með faglegt og kraftmikið starf.
Bæjarráð felur Atvinnu- og ferðamálafulltrúa að gera drög að svörum sem bæjarráð mun bæta við og senda inn.
Bæjarráð felur Atvinnu- og ferðamálafulltrúa að gera drög að svörum sem bæjarráð mun bæta við og senda inn.
4.
Jökulfellsvöllur - Vallaraðstæður
Bæjarráði barst bréf frá Knattspyrnudeild Sindra þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði vegna heimaleiks sem halda þurfti á Reyðarfirði, þar sem Jökulfellsvöllur er ekki kominn undan vetri.
Sveitarfélagið styður UMF-Sindra með beinum fjárframlögum með samningi sem er vísitölutengdur og tryggir Sindra árlega hækkun. Sá styrkur greiddur skv. reikningi mánaðarlega. Þetta eru bein fjárframlög og inni í þessu er ótalin kostnaður sveitarfélagsins vegna reksturs og uppbyggingar íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu og viðhalds þeirra.
Sveitarfélagið hefur ekki greitt sérstaka aðra styrki til að mæta ferðakostnaði mismunandi deilda innan Sindra. Bæjarráð vill ekki skapa fordæmi með slíku en er að sjálfsögðu alltaf til umræðu um samstarfssamninginn við ungmennafélagið okkar svo rekstur þess verði sjálfbær.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að vinna málið hratt áfram með Sindra í samráði við fræðslu og frístundanefnd.
Eins fljótt og auðið er vill bæjarráð svo fund með forsvarsmönnum Sindra um stöðuna og framhaldið í rekstri Sindra svo að hægt sé að tryggja áframhaldandi blómlegt starf félagsins í þágu samfélagsins okkar allra.

5.
Umsögn - Hvítbók um málefni sveitarfélaga
Vísað er til tilkynningar í samráðsgátt stjórnvalda þar sem óskað er eftir umsögnum um hvítbók í málefnum sveitarfélaga, sem felur í sér drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.