Bæjarráð Hornafjarðar
1084. fundur
11. maí 2023
kl.
10:00
-
11:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Rekstur Gömlubúðar var auglýstur til leigu með það m.a. að markmiði að auka aðdráttarafl Hafnar sem áfangastað. Í samningnum kemur fram að rekstur leigutaka skal vera í samræmi við markmið og forsendur í umsókn um leigu á Gömlubúð sem opinn og lifandi áfangastað þar sem helsta aðdráttaraflið til framtíðar er fræðslu- og sýndarveruleikasafn. Starfsemi leigutaka skal starfrækt allan ársins hring.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
2.
Könnun til sveitarfélaga á Suðurlandi
Könnun meðal sveitarfélaga á Suðurlandi vor 2023 um starfsemi og hlutverk Markaðsstofu Suðurlands, Árdís vann svör fyrir hönd bæjarráðs.
Starfsmönnum falið að senda svörin til Markaðsstofu Suðurlands.
3.
Malbikunarframkvæmdir 2023
Alls bárust fjörgur tilboð í verkið, Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 107.964.000 kr.
Bjóðendur eru:
Colas Ísland ehf. 114.004.993 kr. 5.6 % yfir kostnaðaráætlun.
Malbikunarstöðin ehf. 99.817.200 kr. 7.5 % undir kostnaðaráætlun.
Malbikun Akureyrar hef. 89.133.000 kr. 17.4 % undir kostnaðaráætlun.
Malbikun Norðurlands ehf. 104.551.200 kr. 3.2 % undir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Malbikun Akureyrar ehf.
Bjóðendur eru:
Colas Ísland ehf. 114.004.993 kr. 5.6 % yfir kostnaðaráætlun.
Malbikunarstöðin ehf. 99.817.200 kr. 7.5 % undir kostnaðaráætlun.
Malbikun Akureyrar hef. 89.133.000 kr. 17.4 % undir kostnaðaráætlun.
Malbikun Norðurlands ehf. 104.551.200 kr. 3.2 % undir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Malbikun Akureyrar ehf.
4.
Sorpútboð 2023
Fyrirhugað sorpútboð lagt fram farið verður yfir gögnin. Kostnaðaráætlun er ekki uppfærð.
Lagt fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5.
Reglur um íbúakosningu
Bæjarstjórn samþykkti reglur um íbúakosningu á fundi sínum 10. maí.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Sjómannadagur 2023
Sjómannadagsráð er að skipuleggja dagskrá sjómannadagshelgarinnar með veglegast dagskrá sem býður upp á afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Sjómannadagsráð óskar eftir að Sveitarfélagið Hornafjörður bjóði bæjarbúum frítt í sund í tilefni Sjómannadagsins 4. júní.
Bæjarráð samþykkir ósk sjómannadagsráðs að bjóða frítt í sund á sjómannadaginn.
7.
Umsókn um lóð: Hagaleira 14
Ósk um frest á framkvæmdum á Hagaleiru 14.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. september 2023.
8.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Ósk Iceguide um að skila lóð að Álaugarvegi 12 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin.
9.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2023
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
10.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
11.
Fundargerðir -Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerðir - stjórn Nýheima þekkingarseturs
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
13.
Umsögn - Frumvarp til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem fjalla um íbúakosningar
Lagt fram til kynningar.
14.
Umsögn - Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsögn - Frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiksveiðiskipa
Lagt fram til kynningar.
16.
Umsögn - Skýrsla um vindorkumál
Vísað til umsagnar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa - Sjómannadagshátíð
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs um tímabundið tækifærisleyfi fyrir tímabundið áfengisleyfi.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
18.
Kynning - Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga
Ársreikningurinn lagður fram til kynningar.