Bæjarráð Hornafjarðar
1089. fundur
15. júní 2023
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 25
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 60
Fundargerðin samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 257
Fundargerðin samþykkt.
4.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Ekki hafa náðst samningar við umsækjanda, bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og kanna hvort hægt sé að opna Gömlubúð sem allra fyrst.
5.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Íbúakosningin hefst 19. júní og stendur til og með 10. júlí. Opnunartími íbúakosningarinnar verður frá 09:00-12:00 og 13:00-15:00 á fyrstu hæð í Ráðhúsi.
Bæjarráð hvetur íbúa sveitarfélagsins til þess að nýta sér kosningarétt sinn og hvetur jafnframt alla sem eru 16 ára og eldri að kjósa.
6.
Framkvæmda og Viðhaldsáætlun - Vikulegir fundir
Sigfinnur fór yfir malbikunarframkvæmdir sem fara á í á þessu ári.
7.
Frumkvöðlahreiður í Hornafirði
Sveitarfélagið Hornafjörður, Háskólafélag Suðurlands, Nýheimar Þekkingarsetur og Samtök Sunnlenskra sveitarfélaga gerir með sér samkomulag um rekstur frumkvöðlaseturs á Höfn. Sveitarfélagið mun annast reksturinn í samstarfi við Háskólafélagið.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að funda með öllum aðilum sem koma að málinu.
8.
Beiðni - Malbik og viðhald á bílaplani við golfskála
Erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið annist malbikun á bílaplani við Golfvöllinn. Einnig er óskað eftir viðræðum um frágang á göngustígnum við golfskálann.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
9.
Beiðni um smölun ágangsfjár úr heimalandi
Erindi frá Stefáni Helga Helgasyni þar sem óskað er eftir smölun ágangsfé úr heimalandi í samræmi við 33. gr. laga nr. 6/1986.
Bæjarstjóra falið að hafa samband við hlutaðeigandi aðila og vinna áfram að málinu.
10.
Ábending um netöryggi í Öræfum
Erindi frá Sigrúnu Sigurgeirsdóttur þar sem fram kemur að netöryggi í Öræfum er ekki öruggt þegar rafmagnsleysi verður í Öræfum.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til vinnu starfsmanna.
11.
Málefni Sindra
Aðalstjórn Ungmennafélagsins Sindra óskar eftir frekari stuðningi við rekstur félagsins og jafnframt einskiptis stuðningi til að mæta þeim útgjöldum sem aðalstjórn hefur lagt út fyrir meistaraflokka félagsins.
Bæjarráð samþykkir að veita Ungmennafélaginu Sindra styrk fyrir innleiðingu á bókhaldskerfi að hámarki fjórar milljónir króna. Einnig felur bæjarráð starfsmönnum að vinna með UMF Sindra að áætlun um endurnýjun á ökutækjum félagsins til að tryggja betur öryggi iðkenda á ferðalögum. Um er að ræða einsskiptis aðgerð vegna erfiðrar fjárhagsstöðu félagsins. Vísað til fjárrmálastjóra og viðauka II.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa - Humarhátíð hátíðartjald
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfis til áfengisveitinga í tjaldi á hátíðarsvæði Humarhátíðar.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
13.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa - Ungmennadansleikur Humarhátíð
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfi fyrir ungmennaball í Sindrabæ.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
15.
Beiðni - Frestur til framkvæmda á lóð
Erindi frá Jóni Þór Sigurðssyni þar sem óskað er eftir frest á framkvæmdum á lóðinni Hagaleiru 3.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. október nk.
16.
Andmæli við minnisblaði Sambands Íslenskra sveitarfélaga vegna ágangs búfjár
Erindi frá Jóni Guðmanni Péturssyni, Kristínu Magnúsdóttur, Ívari Ingimarssyni og Lilju S. Jónsdóttur þar sem fram koma athugasemdir við álit og leiðbeiningar Sambands íslenskra sveitarfélaga til sveitarfélaga vegna álits Umboðsmanns og úrskurðar dómsmálaráðuneytisins vegna ágangsfjár.
Lagt fram til kynningar.
17.
Umsókn um lóðir - Sandeyri 2-7
Erindi frá Marina Travel þar sem óskað er eftir framlengingu á frest til framkvæmda á lóðunum Sandeyri 2-7.
Síðasta breyting á deiliskipulaginu Útbæ á Höfn tók gildi 13. júní sl.
Að teknu tilliti til umfangs framkvæmda samþykkir bæjarráð að veita frest til 31. desember 2023 til afla samþykkis byggingaráforma.
Að teknu tilliti til umfangs framkvæmda samþykkir bæjarráð að veita frest til 31. desember 2023 til afla samþykkis byggingaráforma.
18.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Álaleira 6, björgunarmiðstöð, fyrirspurnaruppdrættir
Björgunarfélag Hornafjarðar sótti um byggingarheimild til að byggja björgunarmiðstöð á Álaleiru 6 samkvæmt framlögðum teikningum. Fyrirhuguð staðsetning er í samræmi við aðalskipulag þar sem svæðið er skilgreint sem athafnasvæði. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið. Grenndarkynning fór fram frá 25. apríl til 23. maí engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð samþykkir að veita megi heimild til framkvæmda og samþykkir grenndarkynninguna skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. *
19.
Umsókn um byggingarheimild - Silfurbraut 15 - sólskáli
Umsókn Ásgerðar Haraldsdóttur og Birgis Sigurðssonar um heimild til að setja sólskála garðmegin við íbúð að Silfurbraut 15. Samþykki eigenda raðhúsalengjunnar liggja fyrir, en ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Bæjarráð samþykkir að veita megi heimild til framkvæmda að setja megi sólskála við íbúð að Silfurbraut 15 án skipulagsgerðar og samþykkir grenndarkynninguna samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.*
20.
Umsókn um byggingarheimild - Reynivellir, starfsmannabúðir
Umsókn Suðurhúsa ehf. um byggingarheimild fyrir starfsmannabúðir að Reynivöllum samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum til þriggja ára, vegna byggingar hótels. Ekki er til gildandi deiliskipulag en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði.
Bæjarráð samþykkir að veita megi heimild til framkvæmda án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. laganna.*
21.
Umsókn um byggingarheimild - Hnappavellir 1, starfsmannabúðir
Umsókn Þingvangs ehf. um heimild til að staðsetja starfsmannabúðir að Hnappavöllum 1 vegna framkvæmda sem fyrirhugaðar eru í Skaftafelli 3A til 3C. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði. Samþykki landeiganda liggur fyrir. Erindið var grenndarkynnt skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 11. maí með athugasemdarfresti til 8. júní 2023. Ein athugasemd barst.
Bæjarráð samþykkir að veita megi heimild til framkvæmda og samþykkir grenndarkynninguna án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að bæjarráð geri svör skipulagsnefndar að sínum.*
22.
Reglur um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði
Endurskoðaðar reglur um gáma, báta og aðra lausafjármuni í sveitarfélaginu lagðar fram. Markmið reglnanna er að tryggja að öllum öryggis- og hollustukröfum sem tilheyra lausafjármunum sé fylgt, að brunavarnir séu fullnægjandi, og að lausafjármunir skapi ekki óþægindi fyrir nágranna
Bæjarráð samþykkir endurskoðaðar reglur um gáma, báta og lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði.*
23.
Hjáleiga í Öræfum - Breyting á aðalskipulagi
Umsókn Friðrik Friðriksson f.h. Suðureigna ehf. um breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Breytingin nær til lóðarinnar Hjáleigu (L233485) í Öræfum sem er nú skráð sem landbúnaðarland en óskað er eftir að verði íbúðarsvæði til samræmis við framlögð drög að deiliskipulagi.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna að breytingu á greinargerð aðalskipulagi varðandi landnotkun.*
24.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn er tekið fyrir að nýju ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar eftir yfirferð skipulagsgagna. Skipulagið var auglýst 13. apríl 2022. Athugasemdarfrestur var til 25. maí en var síðan framlengdur til 5. júní. Ekki náðist að ljúka ferli deiliskipulagsins í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga í samræmi við umsögn Skipulagsstofnunar: Íbúðarsvæðis á Leiru, miðbæjarskipulags og skipulags knattleikjahúss við Víkurbraut. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir.
Málinu frestað og verður unnið samhliða nýju deiliskipulagi á svæðinu.
25.
Miðsvæði - Breyting á deiliskipulagi
Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi, breytingin felur í sér breytingu á skipulagsmörkum deiliskipulags miðbæjar vegna skipulags aðliggjandi svæðis.
Bæjarráð samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar.*
26.
Umsögn um útgáfu leyfa - Gilstiheimilið Dyngja
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við reksrarleyfi í flokki II B stærra gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.