Bæjarráð Hornafjarðar
1091. fundur
13. júlí 2023
kl.
10:00
-
14:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 53
Fundargerðin samþykkt.
2.
Sorpútboð 2023
Framlögð fundargerð fyrir opnun tilboða í úrgangskerfi sveitarfélagsins. Um þrjá verkhluta er að ræða og bárust tilboð í eftirfarandi verkhluta:Verkhluti 1 - Hirða úrgangs frá heimilum og stofnunum. 4 tilboð bárust frá Íslenska Gámafélaginu, Kubbi ehf og Funa ehf. auk frávikstilboðs frá Kubbi.Verkhluti 2 - Rekstur söfnunarstöðvar. 5 tilboð bárust frá Íslenska Gámafélaginu, Kubbi ehf., Funa ehf., Hringrás auk frávikstilboðs frá Kubbi.Verkhluti 3 - Rekstur urðunarstaðar ásamt jarðgerð. 4 tilboð bárust frá Kubbi ehf., Hringrás og Rósaberg auk frávikstilboðs frá Kubbi.
Stefán greindi frá kostnaðaráætlun og tilboðs tölum. Starfsmönnum falið að greina tilboðin m.t.t. þeirra krafna sem gerðar eru í útboðslýsingu og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
3.
Aðstaða fyrir flöskumóttöku
Samningur við Körfuknattleiksdeild Sindra sem umboðsaðila Endurvinnslunnar, um tímabundna aðstöðu fyrir móttöku skilagjaldskyldra umbúða innan svæðis söfnunarstöðvar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samning um tímabunda aðstöðu fyrir móttöku skilagjaldskyldra umbúða innan svæðis söfunarstöðvar.
4.
Sala á eignum sveitarfélagsins
Skúli fór yfir ástand íbúða sem eru lausar og eru í eigu sveitarfélagsins.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Starfsumhverfi leikskóla
Óskað er eftir að taka umræðu um samráðshóp um aðgerðir í leikskólamálum
Málinu vísað til fræðslu- og tómstundanefndar.
6.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2022
Innviðaráðuneytið hefur gefið út álit í máli vegna mismunar á gjaldtöku í sund og íþróttir hjá Grímsnes- og Grafningshrepps sem hefur gefið íbúum með lögheimili í sveitarfélaginu afslátt af árskortum í sund, þreksal og íþróttasal.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
7.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar Innbæ er lokið. Alls voru 1.843 á kjörskrá og greiddu 392 atkvæði eða 21,27%. Niðurstaða kosningarinnar er eftirfarandi, 52% sögðu já eða 204, 47% sögðu nei eða 184, 1% auðir seðlar og ógildir eða 4.
Bæjarráð þakkar starfsmönnum fyrir vel heppnaða framkvæmd á íbúakosningunni. Beðið er eftir greinargerð frá kjörstjórn vegna kosninganna.
Bæjarráð mun vinna úr niðurstöðum kosninganna í framhaldinu.
Bæjarráð mun vinna úr niðurstöðum kosninganna í framhaldinu.
8.
Gjörningur í minningu komu Ásgríms til Hafnar fyrir 120 árum
Erindi frá Menningarmiðstöð Hornafjarðar þar sem kemur fram að Almar S. Atlason óskar eftir að fremja tjaldgjörning og fá að dvelja í tjaldi frá 15. júlí -10. ágúst á áberandi stað við Hrossabitahaga. Tilefni gjörningsins er að árið 1912 kom Ásgrímur Jónsson til Hafnar og bjó í tjaldi í einn mánuð og málaði vatnslitamyndir.
Bæjarráð býður Almar velkomin til Hornafjarðar og hlakkar til að fylgjast með gjörningnum.
9.
Samþykktir almannavarnanefndar Hornafjarðar
Samþykktir almannavarnarnefndar Hornafjarðar yfirfarnar og lagðar fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samþykktir almannavarnarnefndar.
10.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Erindi frá Framkvæmdasýslunni þar sem greint frá að í útboði byggingar á hjúkrunarheimili fari 1% af framkvæmdakostnaði til listskreytingar á hjúkrunarheimilinu. Fimm manna dómnefnd verður skipuð verkkaupar tilnefna sinn hvor dómnefndarfulltrúann og SÍM mun tilnefna tvo aðila, og arkitekt hússins. SÍM mun tilnefna þrjá óháða listfræðinga og þeir munu leggja til nöfn fimm listamanna og fimm til vara. Verkkaupar geta haft skoðun á því hvaða nálgun verður höfð á valinu. Almennt er þess krafist að listfræðingar nálgist tilnefninguna með jafnréttissjónarmiðum út frá kynjum, aldri og reynslu, en hægt væri að óska sérstaklega eftir því að einn eða fleiri tilnefndir listamenn kæmu úr héraði.
Bæjarráð leggur áherslu á að leitað verði til listamanna úr héraði.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við Framkvæmdasýsluna.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við Framkvæmdasýsluna.
11.
Lausaganga/ágangur búfjár
Erindi frá Bændasamtökunum þar sem bændasamtökin fara yfir þær umræður sem hafa átt sér stað lausa göngu búfjár og um smölun ágangsfjár.
Lagt fram til kynningar.
12.
Samningur vegna reksturs tjaldsvæðis 2017-2032
Bæjarráð leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu á tjaldsvæðinu á Höfn. Núverandi samningur er um margt óskýr að mati bæjarráðs. Bæjarráð felur starfsfólki að fá lögfræðiálit á samningnum með það að markmiði að leysa úr þeim ágreiningsefnum sem hafa skapast til að bæta upplifun gesta og efla uppbygginguna.
13.
Framkvæmda og Viðhaldsáætlun
Brynja og Vignir fóru yfir framkvæmdir sumarsins.
14.
Kröfubréf - Skaðabótakrafa vegna vanefnda á samningi
Kröfubréf frá Auðuni Helgasyni lögfræðingi Litlahorns ehf. þar sem gerð er krafa á Hornafjarðarhöfn/sveitarfélagið að greiða 10.827.360 kr. eða semja um greiðslu skuldarinnar.
Lögfræðingi sveitarfélagsins falið að vinna að svarbréfi vegna kröfunnar.
15.
Áhyggjur af fjölgun ferðamanna - Álag á innviðum
Svar frá heilbrigðisráðuneytinu vegna ályktunar bæjarstjórnar um álag á innviði í sveitarfélaginu. Þar kemur fram að heilsugæslustöðvar eru fjármagnaðar með greiðslulíkani þar sem fjármögnun fer eftir fjölda einstaklinga sem skráðir eru á stöðinni að viðbættum margföldunarstuðlum vegna áætlaðrar líkamlegrar, andlegra og félagslegra þarfa skráðra.
Tæknilegt svar heilbrigðisráðuneytisins við áhyggjum sem bæjarráð lýsti yfir vegna viðkvæmrar stöðu sveitarfélagsins þegar kemur að slysum og óhöppum á svæðinu, veldur vonbrigðum. Að vísa
í greiðslulíkan þar sem fjármögnun fer eftir fjölda kennitalna í sveitarfélaginu passar afar illa við stöðuna hér í Hornafirði, enda er álag á öryggisinnviði vegna fjölda ferðafólks með öllu óásættanlegt!
Heilbrigðisyfirvöld verða einfaldlega að bregðast við mönnunarvanda heilbrigðisstarfsfólks á HSU hér í Hornafirði og tryggja ásættanlega mönnun með öllum tiltækum ráðum.
Bæjarráð óskar einnig eftir upplýsingum um hvernig þjálfun vettvangsliða á hendi HSU er háttað. Þá styður bæjarráð heilshugar, hvernig heilbrigðisráðuneytið tekur undir það sem fram kom í ályktun almannavarnarnefndar og bæjarstjórnar Hornafjarðar, um samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og HSU varðandi bráðaviðbragðsþjónustu innan þjóðgarðs suðursvæðis, og hvetur ráðuneytið til að tryggja fjármögnun þess verkefnis.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu fast eftir.
í greiðslulíkan þar sem fjármögnun fer eftir fjölda kennitalna í sveitarfélaginu passar afar illa við stöðuna hér í Hornafirði, enda er álag á öryggisinnviði vegna fjölda ferðafólks með öllu óásættanlegt!
Heilbrigðisyfirvöld verða einfaldlega að bregðast við mönnunarvanda heilbrigðisstarfsfólks á HSU hér í Hornafirði og tryggja ásættanlega mönnun með öllum tiltækum ráðum.
Bæjarráð óskar einnig eftir upplýsingum um hvernig þjálfun vettvangsliða á hendi HSU er háttað. Þá styður bæjarráð heilshugar, hvernig heilbrigðisráðuneytið tekur undir það sem fram kom í ályktun almannavarnarnefndar og bæjarstjórnar Hornafjarðar, um samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og HSU varðandi bráðaviðbragðsþjónustu innan þjóðgarðs suðursvæðis, og hvetur ráðuneytið til að tryggja fjármögnun þess verkefnis.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu fast eftir.
16.
Ráðning sviðstjóra fjármála og stjórnsýslusviðs
Geirlaug gerði grein fyrir ráðningarferli sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Bæjarráð samþykkir að falla frá ráðningu að sinni, að undangengnu ráðningarferli, þar sem enginn umsækjenda var talinn uppfylla allar hæfniskröfurnar sem fram komu í auglýsingu nægilega vel.
17.
Framkvæmd. Stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll
Framkvæmdir við viðbyggingu á leikskólanum voru boðnar út í apríl en því miður bárust engin tilboð í verkið. Umhverfis- og skipulagssvið leggur til að breytingar á skólalóðinni verði teknar út úr verkinu og þær gerðar í sumar og verkið aftur boðið út á haustdögum. Verðkönnunargögn vegna jarðvinnu eru tilbúin og verða send út í vikunni.
Bæjarráð samþykkir að fara í verðkönnun vegna jarðvinnu á viðbyggingu við leikskólann.
18.
Landeignaskrá - Sameining lóða fyrir björgunarmiðstöð
Vegna áforma um byggingu björgunarmiðstöðvar á Höfn er fyrirhugað að sameina lóðir Álaleira 6 og Bugðuleira 8 í lóð Sæbraut 5 samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti. Allar þrjár lóðirnar voru úthlutaðar Björgunarfélagi Hornafjarðar árið 2022.
Bæjarráð heimilar sameiningu umræddra lóða í lóð Sæbraut 5.*
19.
Landeignaskrá Fagurhólsmýri - stofnun 3 landeigna (Hamarendi, Grænalaut, Kringlubakki)
Halldóra Oddsdóttir, Jónína Sigurgeirsdóttir og Sigrún Sigurgeirsdóttir, eigendur Fagurhólsmýrar 1, 2 og 3 óska eftir útskiptingu þriggja landeigna úr sameignarlandi Fagurhólsmýrar. Fyrirhugað er að stofna þrjár íbúðarhúsalóðir samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum þannig að hver eigandi fái eina lóð.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun lóða, enda samræmist hún skipulagsáætlun enda hefur hún ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.* Bæjarráð hvetur landeigendur til þess að láta vinna deiliskipulag fyrir jörðina áður en að uppbyggingu kemur.
20.
Landeignaskrá Flatatún - stofnun millispildu
Suðureignir ehf., eigandi lóðarinnar Flatatúns óskar eftir stofnun millispildu úr lóðinni. Fyrirhugað er að sameina spilduna inn í aðliggjandi lóð Hofsnes Mói.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.*
21.
Landeignaskrá - Skálafellssel, Skálafell 2a, stofnun lögbýla
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir óskar umsagnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna stofnunar lögbýla á landeignum Skálafellssels landeignarnúmer L229403 og Skálafell 2A landeignarnúmer L210711. Ástæða umsókna er hvítlauksræktun. Ekki er til gildandi deiliskipulag en samkvæmt aðalskipulagi er Skálafellssel að mestu leyti á landbúnaðarsvæði og Skálafell 2A að öllu leyti á viðskipta- og þjónustusvæði VÞ17. Um skráningu lögbýla gilda ákvæði V. kafla jarðalaga 81/2004.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við skráningu Skálafellssels sem lögbýli enda er landeignin að mestu leyti á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins og telur bæjarráð að hún hafi þann húsakost og það landrými og aðstöðu að unnt sé að stunda þar hvítlauksræktun. *
Hins vegar er Skálafell 2A, 1.520 m² lóð, að öllu leyti innan verslunar og þjónustusvæðis VÞ17. Þar sem fyrirhugað landbúnaðarstarfsemi samræmist ekki þeirri landnotkun, eins og hún er skilgreind í 16. kafla greinargerðar aðalskipulagsins, getur bæjarráð ekki fallist á að lóðin Skálafell 2A verði skráð sem lögbýli. Bæjarráð bendir umsækjanda á að heimilt er að sækja um breytingu á aðalskipulagi til sveitarfélagsins.*
Hins vegar er Skálafell 2A, 1.520 m² lóð, að öllu leyti innan verslunar og þjónustusvæðis VÞ17. Þar sem fyrirhugað landbúnaðarstarfsemi samræmist ekki þeirri landnotkun, eins og hún er skilgreind í 16. kafla greinargerðar aðalskipulagsins, getur bæjarráð ekki fallist á að lóðin Skálafell 2A verði skráð sem lögbýli. Bæjarráð bendir umsækjanda á að heimilt er að sækja um breytingu á aðalskipulagi til sveitarfélagsins.*
22.
Umsögn um útgáfu leyfa - Heppa veitingar ehf
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn um leyfi til reksturs í flokki III veitingaleyfi - A veitingahús.
Bæjarráð veitti jákvæða umsögn með fyrirvara um að skilyrði byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra verði framfylgt. Afgreiðslan fór fram með tölvupósti.
23.
Umsögn um útgáfu leyfa - Rekstrarleyfi gistiskáli Reynivellir
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við umsókn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II gistiskáli.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með þeim fyrirvörum sem byggingafulltrúi setur.
24.
Umsögn um útgáfu leyfa - Rekstrarleyfi Borgarhöfn 2-3 Neðribær
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við umsókn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-C minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
25.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Lóðarhafar óska eftir að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir lóðarskilin.
26.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Kynning á skipulagsvinnunni.
Brynja greindi frá vinnu við deiliskipulag ÍB5 sem mun fara fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd í ágúst og verður auglýst samhliða endurskoðun á aðalskiplagi.
27.
Lóðir C-F Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram ný tillaga að breytingu á deiliskipulagi útbæ þar sem byggingareitur er stækkaður á lóðum C-F.
Bæjarráð hafnar beiðni um breytingu á deiliskipulagi útbæ og tekur undir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar frá 30. maí. Bæjarráð beinir því til umsækjanda að vinna innan skilmála deiliskipulagsins.*
28.
Lóðir J og K, Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um hugmyndir Góðrar framkvæmdar ehf. um uppbyggingu við Ósland á fundi 12.desember 2022, 30. maí og 12. júní 2023. Umsækjandi hefur brugðist við athugasemdum og leggur fram frekari útfærsla á hugmyndum á lóðum J og K við Ósland.
Bæjarráð samþykkir að unnin verði deiliskipulagstillaga byggð á framlagðri tillögu.*
29.
Umsókn um byggingarheimild - Flatey, kornhlaða
Flateyjarbúið ehf. sendir nýja útgáfu af aðaluppdráttum vegna framkvæmda við kornhlöðu að Flatey. Breytingarnar fela í sér m.a. að reist verði skýli utan um búnað til að hlífa honum og taka vind- og veðurálag af búnaði. Fyrri útgáfa af uppdráttum hefur verið afgreidd og samþykkt í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framkvæmdina og samþykkir að heimilt sé að klára byggingu kornhlöðu við Flatey í samræmi við innsendar teikningar.* Bæjarráð tekur undir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar frá 30.05. og minnir á að ef um frekari byggingar verði að ræða skal grenndarkynna þær fyrir eigendum félagsræktar Flateyjar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga.*
30.
Umsögn - Skattalegt umhverfi orkuvinnslu
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem aðildarsveitarfélög samtaka orkusveitarfélaga senda inn ábendingu eða tillög til starfshóps sem skoðar skattalega umhverfi orkuvinnslu.
Bæjarráð furðar sig á að enginn fulltrúi nærsamfélagsins, þ.e. sveitarfélaganna, eigi sæti í starfshópnum og hvetur til þess að úr því verði bætt.
Þá leggur bæjarráð áherslu á að sveitarfélögin og landeigendur fái sanngjarnt endurgjald vegna orkumannvirkja og flutningslína á sínu landi.
Þá leggur bæjarráð áherslu á að sveitarfélögin og landeigendur fái sanngjarnt endurgjald vegna orkumannvirkja og flutningslína á sínu landi.
31.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðin lögð fram til kynningar.