Bæjarráð Hornafjarðar
1092. fundur
27. júlí 2023
kl.
10:00
-
14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Sorpútboð 2023
Jóhann Helgason ráðgjafi Verkís fór yfir tilboð í sorphirðu, sorpeyðingu og móttökustöðvar sveitarfélagsins.
Starfsmanni falið að ganga til samninga við Funa í verklið 1 og Hringrás í verkliði 2 og 3.
2.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Fjármálastjóri fór yfir viðauka tvö við fjárhagsáætlun ársins. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðaukanum verði mætt með viðbótarlántöku að fjárhæð 50 m.kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.*
Bæjarráð samþykkir viðaukann.*
3.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Greinargerð yfirkjörstjórnar og starfsmanna um íbúakosningu sem fram fór 19. júní til 10. júlí sl. lögð fram. Kosið var um aðal- og deiliskipulag þéttingu byggðar í Innbæ. Á kjörskrá voru 1843Alls greiddu atkvæði, 392 eða 21,27 %Já sögðu 204 eða 52% nei sögðu 184 eða 47% Auðir og ógildir 4 eða 1%Sú nýbreytni átti sér stað í þessum kosningum að 16 ára og eldri máttu kjósa. Ekki hefur verið gerð greining á aldursamsetningu kjósenda en nokkuð var um að nýi aldurshópurinn kaus í kosningunni.
Bæjarráð þakkar yfirkjörstjórn og íbúum fyrir að taka þátt í kosningunni.
4.
Deiliskipulag - Þétting byggðar Innbæ
Bæjarráð virðir niðurstöðu íbúakosningarinnar, aðal- og deiliskipulagið þétting byggðar í Innbæ heldur gildi sínu.
Starfsmönnum falið að auglýsa lóðirnar til úthlutunar og vinna gjaldskrá fyrir þær byggingalóðir sem eru undir deiliskipulaginu.
Berist umsóknir um lóðir á næstu vikum þá mun lóðunum vera úthlutað á fundi bæjarstjórnar í september.
Starfsmönnum falið að auglýsa lóðirnar til úthlutunar og vinna gjaldskrá fyrir þær byggingalóðir sem eru undir deiliskipulaginu.
Berist umsóknir um lóðir á næstu vikum þá mun lóðunum vera úthlutað á fundi bæjarstjórnar í september.
5.
Kröfubréf - Skaðabótakrafa vegna vanefnda á samningi
Svar vegna kröfubréfs frá Auðuni Helgasyni fyrir hönd Litla Horns lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir áliti lögfræðings á ábyrgðarhlutverki sveitarfélagsins vegna atvinnustarfsemi á bryggjuaðstöðu á Austurfjörutanga á meðan enginn samningur er í gildi.
Ásgerður gerir athugasemd við ferli málsins og óskar eftir að málið verði tekið upp þegar bæjarstjóri kemur úr sumarfríi.
Ásgerður gerir athugasemd við ferli málsins og óskar eftir að málið verði tekið upp þegar bæjarstjóri kemur úr sumarfríi.
6.
Heimagreiðslur eða foreldragreiðslur
Þórgunnur greindi frá að ekki er hægt að taka inn hluta af þeim börnum sem sótt var um vistun á leikskólann Sjónarhól vegna manneklu. Meðfylgjandi eru reglur sem eru í gildi frá 2021.
Lagt fram til kynningar.
7.
Malbikunarframkvæmdir 2023
Bæjarráð óskaði eftir að fá upplýsingar um malbikunarframkvæmdir ársins.
Viðbótaframkvæmdir á malbiki er um 50 milljónir.
Auknu fjármagni til malbikunar vísað til vinnu fjármálastjóra og gerðar viðauka III.
Auknu fjármagni til malbikunar vísað til vinnu fjármálastjóra og gerðar viðauka III.
8.
Beiðni - Ný klæðning á bílastæði og heimreið Hafnarkirkju
Erindi frá sóknarnefnd Hafnarsóknar þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið leggi nýja klæðningu á heimreið að Hafnarkirkju.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur starfsmönnum að meta kostnað og undirbúa vinnuna í samstarfi við sóknarnefnd Hafnarsóknar.
Málinu vísað til viðaukagerðar III.
Málinu vísað til viðaukagerðar III.
9.
Framkvæmdir 2023
Uppfærð kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við fráveitu á Bogaslóð og bílastæðis við Kátakot.
Viðbótarfjármagni vísað til fjármálastjóra og gerðar viðauka III.
10.
Umsókn - Lóð undir verslun og þjónustu
Erindi frá Skúla Gunnari Sigfússyni þar sem óskað er eftir lóð undir verslunarmiðstöð gengt Mjólkurstöðinni.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu.
Starfsmanni falið að undirbúa aðalskipulagsbreytingu og gerð deiliskipulags vegna verslunar- og þjónustusvæðis.
Starfsmanni falið að undirbúa aðalskipulagsbreytingu og gerð deiliskipulags vegna verslunar- og þjónustusvæðis.
11.
Breyting á aðalskipulagi - Leiðarhöfði
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna uppbyggingar á Leiðarhöfða. Breyting er gerð á landnotkun og stækkun á opnu svæði við Leiðarhöfða og fellt er út íbúðarsvæði ÍB4.Skipulagslýsing vegna breytingar á Leiðarhöfða í aðalskipulagi var kynnt frá 1. maí með fresti til að skila inn umsögnum og ábendingum til 15. maí en var svo framlengt til 22. maí og aftur til 10 júní þegar í ljós kom að nýjasta útgáfa skipulagslýsingarinnar hafði ekki verið lögð fram sem kynnt gögn. Umsagnir bárust frá Náttúrustofu Suðausturlands, Minjastofnun Íslands, HAUST og Skipulagsstofnun.
Bæjarráð samþykkir tillögu að aðalskipulagsbreytingu að Leiðarhöfða skv. 3. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 og senda tillöguna til Skipulagsstofnunar til athugunar.*
12.
Deiliskipulag hafnarsvæðis Krossey - endurskoðun
Skipulagslýsing vegna endurskoðunar deiliskipulags í Krossey á Höfn.Fyrirhugaðar breytingar ná m.a. til umferðarskipulags, lóðamarka, byggingarreita. Meginmarkmið er að vinna að markvissri uppbyggingu á hafnarsvæðinu.
Bæjarráð samþykkir skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Krossey með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.*
13.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 3, einbýlishús
Jón Þór Sigurðsson sækir um heimild til þess að hafa þrjú bílastæði á lóð Hagaleiru 3, svo hægt sé að vera með aukastæði fyrir gesti. Gildandi deiliskipulag gerir einungis ráð fyrir tveim bílastæðum.
Bæjarráð heimilar að vikið sé frá kröfum deiliskipulags samkv. framlögðum gögnum. Frávik eru óveruleg og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og er því fallið frá breytingu á skipulagi og grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.*
14.
Byggingarleyfisumsókn - Hagi 3, einbýlishús
Guðmundur Davíð Sigurðsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús með innbyggðri bilgeymslu á u.þ.b. 1,5 ha. landareign Haga 3 (L231921). Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, samkvæmt aðalskipulagi er lóðin á landbúnaðarsvæði.
Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna fyrirætlan umsækjanda skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Erindið skal grenndarkynna eigendum Haga og Haga 2.*
15.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Heppuvegur 6, nýting á rými fyrir gistingu
Fyrir hönd húseiganda Heppuvegar 6, rými 0202 er lögð fram fyrirspurn hvort áform um breytingu á áðurnefndu rými samræmist skipulagsskilmálum lóðarinnar.
Bæjarráð getur ekki falist á að tillagan samræmist skilmálum aðalskipulags.*
16.
Byggingarleyfisumsókn - Hamarendi, einbýlishús
Þorsteinn Óskarsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Hamarenda, lóð úr Fagurhólsmýrajarða sem er í stofnunarferli. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en skv. aðalskipulagi lóðin er á landbúnaðarsvæði. Umsækjandi óskar eftir "að ekki þurfi að fara í vinnu að deiliskipulagi að þessu sinni þar sem um lítið einbýli er að ræða. Svæðið er stórt og þær þrjár lóðir sem stofnaðar hafa verið langt frá hvor annarri. Byggingar á hinum lóðum munu ekki eiga sér stað á næstunni samkvæmt upplýsingum frá verðandi leigutökum þeirra. Ekki á þessari, né hinum lóðunum mun myndast þétt byggð íbúahúsa, þ.e. að fleiri íbúðarhús standi saman í einskonar götu eins og til að mynda í Borgartúni á Hofi. Framkvæmdin er lítil og fyrirhöfn og kostnaður við deiliskipulag teljum við óþarft að sinni."
Bæjarráð samþykkir að farið verði í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Erindi skal kynna eigendum Fagurhólmýrajarða.*
17.
Byggingarleyfisumsókn - Smyrlabjörg 1-2/Lóð, tvö starfmsmannahús
Hótel Smyrlabjörg ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir tvö starfsmannahús skv. innsendum uppdráttum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, en skv. aðalskipulagi svæði merkt VÞ18. Í greinargerð aðalskipulags kemur fram eftirfarandi "Smyrlabjörg. Ferðaþjónusta, gisting og greiðasala. Uppbygging vegna hennarskal heimil skv. deiliskipulagi. Allt að 100 gistirými. Svæðisafmörkun ~ 3ha."
Uppbygging á umræddu svæði án deiliskipulagsgerðar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga er í ósamræmi við greinargerð aðalskipulags. Bæjarráð getur því ekki fallist á að heimilt verði að veita leyfi til framkvæmda án deiliskipulagsgerðar.*
18.
Umsögn um útgáfu leyfa - Rekstrarleyfi Svínafell 1 Háaleiti
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við leyfi til gististaðar í flokki II -C minna gistiheimili að Svínafelli 1 Háaleiti.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um afgreiðsla slökkviliðsins verði jákvæð.
19.
Umsögn um útgáfu leyfa - Rekstrarleyfi gististaður Hellisholt
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við leyfi til gististaðar í flokki II -B stærra gistiheimili að Hellisholti 2.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um afgreiðsla slökkviliðsins verði jákvæð.
20.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Bæjarráð óskaði eftir upplýsingum um byggingaráform og hvaða starfsemi myndi eiga sér stað á lóðinni. Ætlunin er að byggja 600 til 1000 m² iðnaðarhúsnæði undir starfsemi 29.mars ehf. annarsvegar sem er í þrifum og þjónustu við olíudreifingu og fiskimjölsverksmiðjur landsins og svo að byggja undir pokaþvottastöð HL verktaka ehf. sem sér um þrif og viðgerðir á fjölnota stórsekkjum fyrir fiskimjöl.Starfsemin er ekki mengandi.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina.*
21.
Umsókn um lóð - Ægissíða 38
Umsækjandi óskar eftir að fá að nota lóðina undir beit.
Starfsmanni falið að kanna málið og finna lausn á landi bæjarins.