Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1093. fundur
10. ágúst 2023 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Sorpútboð 2023
Málsnúmer 202108112
Funi ehf. óskar eftir rökstuðningi vegna útboðsins og höfnun á hans tilboði og vanhæfi.
Starfsmönnum falið að svara Funa ehf. og vinna málið áfram.
2.
Verðkönnunn Götulýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202302049
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið. Verðfyrirspurn um uppsetningu á götulýsingu á nýjum LED lömpum fór fram 14. júlí til 31. júlí. Þrjú fyrirtæki fengu send gögn, Raf-Horn ehf., Mætti ehf. og Vattará ehf.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 16.054.800 kr.
Mætti, 67.280.974 kr.
Raf-Horn 12.891.584 kr.
Vattará sá sér ekki fært að taka þátt í verðkönnunni.
Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga til samninga við Rafhorn sem er lægstbjóðandi.
3.
Verðkönnun.Stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll - lóð
Málsnúmer 202306111
Verðkönnun á stækkun lóðar við Sjónarhól lögð fram til upplýsinga.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 51.902.650 kr.
Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. bauð 62.229.811 kr. 20% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkti tilboð Gröfuþjónustunnar með tölvupósti.
4.
Samgönguáætlun 2024-2038
Málsnúmer 202206037
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna umsögn sveitarfélagsins um samgönguáætlun 2024-2038.
5.
Flugsæti til Hafnar - útboðsmál
Málsnúmer 202306106
Vegagerðin vinnur að verðkönnun á flugi til Hafnar bæjarráð hefur óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins enn eru viðræður við tilboðsgjafa í vinnslu.
6.
Samgöngumál á Suðurlandi
Málsnúmer 202306101
Fyrir komandi ársþing SASS ætlar samgöngunefnd samtakanna að skila af sér uppfærðri samgönguáætlun fyrir 2023 - 2032. Sem lið í undirbúningi er óskað eftir að bæjarráð gefi svör við spurningum nefndarinnar um stefnu í samgöngumálum sveitarfélagsins og hugmyndir um verkefni á suðaurlandi.
Starfsmanni falið að senda svar bæjarráðs til SASS.
7.
Kröfubréf - Skaðabótakrafa vegna vanefnda á samningi
Málsnúmer 202307002
Álit lögfræðings sveitarfélagsins á ábyrgðarhluta sveitarfélagsins v. hafnarstarfsemi.
Bæjarráð þakkar fyrir greinargott svar við spurningu þess um ábyrgð sveitarfélagsins vegna bryggjuaðstöðu á Austurfjörutanga en í álitinu er mörgum spurningum svarað.

Um árabil var samstarfssamningur á milli Hornafjarðarhafnar og Litlahorns um hafnaraðstöðu á Austurfjöru, eða frá 24. maí 2006. Litlahorn sagði upp samningnum 24. maí 2021, 15 árum eftir undirritun hans. Ríkur samningsvilji hefur verið af hálfu sveitarfélagsins að endurnýja samninginn en á sama tíma er ekki um einfalt mál að ræða og í mörg horn að líta fyrir opinberan aðila sem gerir samning sem þennan við einkaaðila.
Bæjarráð felur bæjarstjóra, sem einnig er hafnarstjóri, og hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar að taka þegar upp viðræður við Litlahorn ehf, með það að markmiði að gera samning sem skýrir rekstrarform og eiganda hafnarinnar og fellur að Hafnarlögum nr. 61/2003. Að öðrum kosti mun bæjarráð krefjast þess að starfsemi verði hætt.


8.
Umsókn um lóð - Sæbraut 4
Málsnúmer 202308006
Umsókn Eimskipa um lóð að Sæbraut 4 gengt söfnunarstöðinni lögð fram.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina* og felur starfsmanni að útbúa tvær lóðir við Sæbraut, grenndarkynna lóðina og óska eftir umsögnum.
9.
Breyting á deiliskipulagi - Hafnarbraut 4-6
Málsnúmer 202308009
Umsókn um leyfi til að hefja vinnu að skipulagi á lóðum nr. 4 og 6 við Hafnarbraut sem íbúðir í stað hótels.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirætlanir umsækjanda.
10.
Umsókn um styrk fyirr ADH samtökin
Málsnúmer 202307058
Erindi frá ADHD samtökunum þar sem óskað er eftir styrk til samtakanna í formi fjár eða samstarfs í formi fræðslu í sveitarfélaginu um ADHD og fyrir fólk með ADHD.
Bææjarráð er jákvætt fyrir fræðslu og kynningu ADHD samtakanna og felur starfsmönnum að útfæra það í samstarfi við samtökin.
11.
Beiðni - Styrkur til gæslu við Austur Ultra
Málsnúmer 202307068
Erindi frá Gunnlaugi Ólafssyni þar sem hann óskar eftir styrk til Björgunarfélags Hornafjarðar til gæslu í utanvegahlaupi Austur Ultra sem haldið verður þann 12. ágúst nk.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til Austur Ultra hlaupsins að upphæð 300 þús. kr. fjármunirnir verði teknir af óráðstöfuðu. Bæjarráð bendir á að styrkumsóknir til bæjarráðs eru auglýstar í lok árs.
12.
Ársskýrsla - 2022
Málsnúmer 202307061
Árskýrsla HAUST fyrir árið 2022 lögð fram.
Árskýrsla HAUST lögð fram til kynningar.
13.
Umsögn - Sjóvörn og færsla hringvegar um Jökulsárlón
Málsnúmer 202307020
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar við Sjóvörn og færslu hringvegar um Jökulsárlón, nr. 0368/2023: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu). Á seinustu árum hefur ströndin við Jökulsárlón í Vatnajökulsþjóðgarði smám saman færst innar. Nú er svo komið að nauðsynlegt er að grípa til aðgerða til að tryggja öryggi þeirra sem leið eiga um Hringveginn. Það verður gert með sjóvörn og færslu Hringvegarins.
Framkvæmdirnar er í samræmi við skipulag. Um er að ræða fyrri áfanga í færslu vegarins í þá legu sem aðal- og deiliskipulag gera ráð fyrir og stuttan tengiveg á milli áfanga sem verður tímabundinn vegur. Auk þess sjóvarnargarður á stuttum kafla þar sem sjávarrof er hvað mest. Fjallað er um varnir gegn landbroti í kafla 34 í aðalskipulagi.
Markmið framkvæmdarinnar er að auka öryggi samgangna og koma í veg fyrir að ágangur sjávar taki í sundur Hringveginn við Jökulsárlón og setji þar með samgöngur á milli landshluta í uppnám.
Bæjarráð telur að framkvæmdirnar hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar. Mikilvægt er að farið verði eftir þeim mótvægisaðgerðum sem kynntar eru í kynningarskýrslunni og að verkið verði unnið í samráði við Vatnajökulsþjóðgarð og Umhverfisstofnun. Sveitarfélagið telur einnig að mikilvægt sé að við skipulag framkvæmda sé tekið tillit til umferðarálags um brúnna, sem er einbreið og yfirsýn yfir hana frá veginum sitt hvorumegin mjög takmörkuð.
Bæjarráð hvetur til þess að framkvæmdin verði kláruð með nýrri tvíbreiðri akstursbrú sem fyrst þar sem núverandi brú er stórhættuleg. Hægt er að nýta núverandi brú sem göngubrú og auka þannig öryggi gangandi vegfarenda.