Bæjarráð Hornafjarðar
1096. fundur
5. september 2023
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 63
Fundargerðin samþykkt.
2.
Framkvæmda og Viðhaldsáætlun
Brynja og Vignir greindu frá framkvæmdum sumarsins.
3.
Sorpútboð 2023
Brynja greindi frá að samningur við Hringrás um rekstur söfnunarstöðvar og urðunarstaðar var undirritaður í lok ágúst.
4.
Gjaldskrá byggingamála
Fjármálastjóra og byggingafulltrúa falið að gera greiningu á gjaldskrá byggingamála og skoða samanburð við sambærileg sveitarfélög.
5.
Endurbætur á Sindrabæ
Erindi frá Jóhanni Morávek skólastjóra Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og felur umhverfis- og skipulagssviði til að yfirfara fyrirliggjandi teikningar. Ákvörðun um framkvæmdir verður tekin í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.
6.
Beiðni - Framlegnging á styrktarsamningi
Framlenging á styrktarsamningi við Björgunarfélagið Kára í Öræfum lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninginn við Björgunarfélagið Kára í Öræfum.
7.
Ársþing SASS
Erindi frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, SASS þar sem kemur fram að ársþing SASS verður haldið á Vík í Mýrdal dagana 26-27. október 2023.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsögn Rekstrarleyfi Gistihúsið Seljavellir
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II B stærra gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.