Bæjarráð Hornafjarðar
1098. fundur
19. september 2023
kl.
10:00
-
11:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 26
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 64
Fundargerðin samþykkt.
3.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Sveitarfélagið Hornafjörður skrifaði undir samning um samræmda móttöku flóttafólks þann 13. janúar 2023 og rennur hann út í upphafi næsta árs. skv. 13. gr samningsins skal liggja fyrir ákvörðun um hvort að samið verði um framhald þjónustunnar.
Bæjarráð samþykkir að endurnýja samning um móttöku flóttafólks.
4.
Endurnýjun á bifreiðum sveitarfélagsins
Ósk um að endurnýja bifreið á umhverfis- og skipulagssviði, fyrirhugað er að leggja tveimur bifreiðum og kaupa eina í staðin.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar því til gerðar viðauka og vinnu fjármálastjóra.
5.
Ábending - Hæfi skipulagsfulltrúa Sveitarfélags Hornafjarðar
Samningur við EFLU um embætti skipulagsfulltrúa sem Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur mun taka að sér fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð samþykkir að Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir verði skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins og samþykkir samninginn við EFLU.
6.
Gjaldtaka á örfélög innan þjóðgarðs
Erindi frá fyrirtækjum í Öræfum til sveitarfélagsins og Vatnajökulsþjóðgarðar þar sem bent er á aðstöðumun fyrirtækja í Vatnajökulsþjóðgarði.
Bæjarráð tekur undir málflutning örfyrirtækja í Öræfum og hvetur svæðisráð Suðursvæðis og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs að taka málið upp.
7.
Málstefna
Erindi frá innviðaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á að mjög fá sveitarfélög hafa sett sér málstefnu í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga þar um.
Starfsmönnum falið að undirbúa vinnu að málstefnu fyrir sveitarfélagið.
8.
Ályktun - Skógarreitir og græn svæði innan byggðar
Ályktun frá aðalfundi Skógræktarfélags Íslands þar sem sveitarfélög eru hvött til þess að huga sérstaklega að verndun og varðveislu skógarreita, trjálunda og grænna svæða innan byggðar og í næsta nágrenni.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Fundargerð 174
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11.
Fundarboð - Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Boðað er til aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundabúnaði Teams þriðjudaginn 19. september klukkan 13:00.
Bæjarstjóri fer á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
12.
Samráðsfundur - Endurskoðun á vinnureglum um vetrarþjónustu
Erindi frá Vegagerðinni þar sem boðað er til samráðsfunda um breytingu á reglum um vetrarþjónustu á þjóðvegum.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa - Nýnemaball FAS
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir nýnemaballi í Sindrabæ.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
14.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Erindi frá innviðaráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga miðvikudaginn 20. september.
Fjármálastjóra falið að mæta á ársfund Jöfnunarsjóðsins fyrir hönd sveitarfélagsins.