Bæjarráð Hornafjarðar
1100. fundur
3. október 2023
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 55
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 65
Fundargerð samþykkt.
3.
Kaup á listaverkum Svavarssafn
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
4.
Verðkönnun.Stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll - Niðurrekstur staura
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 10.530.000 kr.
Ósk-Ás ehf. gerði frávikstilboð upp á 11.703.000 kr. 11% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Ósk-ÁS ehf.
Ósk-Ás ehf. gerði frávikstilboð upp á 11.703.000 kr. 11% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Ósk-ÁS ehf.
5.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Fjármálastjóri fór yfir viðauka fjögur við fjárhagsáætlun ársins.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Staða verkefnastjóra í stafrænni þróun - Krafa um greiðslu bóta
Krafa frá Magna Lögmönnum fyrir hönd Sveinbjörns Imsland þar sem er gerð krafa um greiðslu bóta vegna ráðningar í starf verkefnastjóra stafrænna lausna og tækni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara kröfunni.
7.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
8.
Fundargerðir - stjórn Nýheima þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Innviðir fyrir orkuskipti
Erindi frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu þar sem bent er á að vinna þarf hratt að uppbyggingu hleðsluinnviða og dreif- og flutningskerfi raforku.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
11.
Ósk um umsögn um frumvarpi til laga um fasteignalán neytenda nr.1182016
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016. Umsagnarfrestur er til 13. október.
Lagt fram til kynningar.
12.
Ósk um umsögn við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlanir í málefnum sveitarfélaga
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga og aðgerðaráætlun fyrir árin 2024-2038. Umsagnarfrestur er til 13. október.
Lagt fram til kynningar.
13.
Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Málstefna
Drög að málstefnu lögð fram til kynningar.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
15.
Ósk um afstöðu sveitarfélaga á Suðurlandi
Beiðni um umsögn landshlutasamtakanna um svæðisbundin samráð sveitarfélaga í þágu farsældar barna. Einnig er óskað eftir mati á hvernig væri hægt að haga uppbyggingu um skólaþjónustusvæði, hvort ytri mörk gætu verið þau sömu og svæðisbundinna farsældarráða og hvernig slíkri samvinnu gæti verið háttað.
Bæjarráð sér sér ekki fært að veita umsögn í ljósi stutts fyrirvara og vísar málinu til skoðunar hjá velferðarsviði.