Bæjarráð Hornafjarðar
1103. fundur
23. október 2023
kl.
12:15
-
14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 105
Fundargerðin samþykkt.
2.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2023
Fræðslu og frístundanefnd leggur til að aðrar gjaldskrár hækki í samræmi við vísitöluhækkun enda er sveitarfélagið með lægri gjaldskrár en mörg önnur sveitarfélög.
Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu á gjaldskrá Sundlaugar Hafnar.
Málnu vísað til næsta fundar.
Málnu vísað til næsta fundar.
3.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Launaáætlun fyrir árið 2024 lögð fram til umræðu.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
4.
Lausaganga stórgripa
Erindi frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi þar sem bent er á að í Búfjársamþykkt sveitarfélagsins eru ekki skýr ákvæði um lausagöngu stórgripa. Einnig er bent á að samþykktina þarf að endurskoða vegna breytinga á ábyrgð stofnanna.
Bæjarráð samþykkir að endurskoða búfjársamþykkt sveitarfélagsins.
Vísað til vinnu atvinnu- og menningarmálanefndar.
Vísað til vinnu atvinnu- og menningarmálanefndar.
5.
Starfsmannamál umhverfis- og skipulagssviðs
Óskað hefur verið eftir að auglýsa eftir skipulagsfulltrúa á umhverfis- og skipulagssvið.
Samþykkt með tveim atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir situr hjá.
Samþykkt með tveim atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir situr hjá.
6.
Sorpútboð 2023
Hringrás hefur óskað eftir breyttum opnunartíma í söfnunarstöðinni, á laugardögum 10:00-14:00 í stað 11:00-15:00.
Bæjarráð samþykkir breyttan opnunartíma á söfnunarstöðinni.
Starfsmönnum falið að auglýsa breytinguna.
Starfsmönnum falið að auglýsa breytinguna.
7.
Ósk um umsög - Tillaga til þingályktunar um samgönguáætlum fyrir árin 2024-2038
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028, 315. mál.Umsagnarfrestur er til 26. október.
Starfsmönnum falið að vinna umsögn fyrir sveitarfélagið.
8.
Ákvörðun EBÍ um ágóðahlutagreiðslu ársins til aðildarfélaga EBÍ
Erindi frá eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem tilkynnt er ákvörðun stjórnar EBÍ um ágóðahlutagreiðslu ársins til aðildarsveitarfélaga EBÍ. Hlutdeild sveitarfélagsins er 1.608% og fjáræðin sem greidd er verður 804.000 kr.
Lagt fram til kynningar.
9.
Samantekt um kostnaðarþátttöku fyrir samstarf sveitarfélaga um stafræna þróun og umbreytingu
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem lagður er fram kostnaður í starfrænum málum fyrir árið 2024.
Vísað til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.