Bæjarráð Hornafjarðar
1111. fundur
19. desember 2023
kl.
10:00
-
12:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 261
Fundargerðin samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 29
Fundargerðin samþykkt.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 107
Fundargerðin samþykkt.
4.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 2
Fundargerðin samþykkt.
5.
Íbúaráð Öræfum - 2
Fundargerðin samþykkt.
6.
Atvinna með stuðningi - Átaksmánuður 2023
Átaksverkefni nóvember mánaðar hjá Sveitarfélaginu Hornafirði í tengslum við innleiðingu heildarstefnunnar Hornafjörður Náttúrulega! var að greina tækifæri til að efla þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu Atvinna með stuðiningi á vegum Vinnumálastofnunar.Farið var yfir greiningu á möguleikum Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem atvinnurekanda, að vera leiðandi í því að stuðla að inngildandi vinnumarkaði í sveitarfélaginu með þátttöku í verkefninu Atvinna með stuðningi sem er á ábyrgð VMST.Velferðarnefnd vísar niðurstöðunni til frekari umræðu í bæjarráði og felur starfsmanni nefndarinnar að fylgja því eftir í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarráð felur starfsmanni að vinna áfram að verkefninu. Bæjarráð fagnar því að stofnanir sveitarfélagsins eru að stíga þetta skref í atvinnu- með stuðningi.
7.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Rekstur á Gömlubúð var auglýstur til leigu, ein umsókn barst.Páll Guðbrandsson gerði grein fyrir umsókn sinni um rekstur á Gömlubúð.
Bæjarráð mun halda áfram viðræðum við umsækjanda í lok janúar.
8.
Beiðni um afnot af Mikley
Erindi frá Benedikti Gunnarssyni þar sem hann óskar eftir afnotum af Mikley.
Bæjarráð felur starfsmönnum að afla upplýsinga um afnotarétt af Mikley.
9.
Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir Þorrablót aldraðra í Sindrabæ
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfis fyrir þorrablót í Sindrabæ.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
10.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sínum og bæjarstjóra Reykjanesbæjar með heilbrigðisráðherra vegna kostnaðarskiptingu við byggingu hjúkrunarheimila.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
11.
Krísuástand í raforkumálum á Íslandi
Síðastliðin 9 ár hefur Skinney-Þinganes hf. notast rafmagn við framleiðslu fiskimjöls og lýsi, en nú er enga orku að hafa þar sem ekki er nægt rafmagn til í kerfinu. Félagið hefur þess vegna fest kaup olíukatli sem er ætlaður sem varaafl fyrir verksmiðjuna og knúinn er af dísel olíu.
Bæjarráð lýsir furðu sinni og vonbrigðum með að við hér á landi séum komin í þá grafalvarlegu stöðu að fyrirtæki sem hafa fjárfest mikið og lagt metnað sinn í að reka sína framleiðslu á innlendum sjálfbærum orkugjöfum, sé nú sett í þá stöðu að þurfa að fjárfesta í tækjum sem framleiða orku og keyra á dísel olíu.
Bæjarráð skorar á stjórnvöld að fara nú þegar í aðgerðir til að tryggja næga raforku til notenda og koma í veg fyrir að keyra þurfi á innfluttri og mengandi orku. Öðruvísi munum við aldrei ná okkar loftslagsmarkmiðum.
Bæjarráð lýsir furðu sinni og vonbrigðum með að við hér á landi séum komin í þá grafalvarlegu stöðu að fyrirtæki sem hafa fjárfest mikið og lagt metnað sinn í að reka sína framleiðslu á innlendum sjálfbærum orkugjöfum, sé nú sett í þá stöðu að þurfa að fjárfesta í tækjum sem framleiða orku og keyra á dísel olíu.
Bæjarráð skorar á stjórnvöld að fara nú þegar í aðgerðir til að tryggja næga raforku til notenda og koma í veg fyrir að keyra þurfi á innfluttri og mengandi orku. Öðruvísi munum við aldrei ná okkar loftslagsmarkmiðum.
12.
Hagsmunir Hornafjarðar í samgöngumálum
Starfsmenn skila inn gognum a manudag
Málinu frestað vegna skorts á gögnum.
13.
Umsókn - Lóð undir verslun og þjónustu
Beiðni frá Suðurhús ehf. þar sem óskað er eftir lóðarvilyrði um lóð undir verslunarsvæði á nýju svæði ÍB5.
Starfsmönnum falið að vinna drög að samningi um lóðarvilyrði við Suðurhús ehf.
14.
Umsókn um byggingarheimild - Miðós 17, viðbygging
Málið verður afgreitt hjá byggingarfulltrúa.
15.
Útsvar 2024
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um samkomulag við ríkið um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk. Samkomulagið felur í sér breytt útsvarshlutfall sveitarfélaga og breytingu á tekjuskatti til móts við það svo að áhrif á íbúa verði engin.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.