Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1114. fundur
23. janúar 2024 kl. 10:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 108
Málsnúmer 2401011F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 59
Málsnúmer 2401013F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Íbúaráð - Nes og Lón - 2
Málsnúmer 2312019F
Kom fram á fundinum að íbúaráðin í sveitarfélaginu eru áhyggjufull yfir þjóðvegi 1 og girðingamálum við þjóðveginn og hafa óskað eftir fundi með Vegagerðinni. Óskað hefur verið eftir sameiginlegum fundi allra íbúaráða og bæjarráði með Vegagerðinni.
Fundargerðin samþykkt.
4.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Málsnúmer 202307036
Kynning sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs á skýrslu starfshóps um leikskólamál sem unnið hefur verið að frá því í september sl.
Bæjarráð þakkar starfshópnum fyrir vinnu sína við gerð skýrslu um leikskólamál. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skýrsluna og mun taka efnisatriði skýrslunnar til frekari vinnu.
5.
Fjárhagsáætlun f.2024 - Fræðslu- og frístundasvið
Málsnúmer 202309001
Fræðslu- og frístundasvið óskar eftir aukafjárveitingu til að sækja ráðgjöf og þjálfun fyrir sérfræðing í málefnum fatlaðra í Grunnskóla Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir að vísa aukafjárveitingu að upphæð 1.500.000 kr. til fjármálstjóra og gerðar viðauka I.
6.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 202207008
Bæjarráð gerði smávægilegar lagfæringar á erindisbréfinu og samþykkir þær samhljóma.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi fulltrúa í notandaráð fatlaðs fólks.
Gunnar Páll Halldórsson til vara Guðjón Örn Magnússon. (K)
Tinna Rut Sigurðardóttir til vara Hjördís Edda Olgeirsdóttir. (D)
Kolbrún Rós Björgvinsdóttir til vara Gunnar Ásgeirsson. (B)
6.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202401050
Gjaldskrá um leigu á húsnæði og búnaði í eigu sveitarfélagsins uppfærð með tillögum að óskum bæjarráðs frá síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir reglur um húsnæði og búnað í eigu sveitarfélagsins og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Umhirða hrægáma
Málsnúmer 202401127
Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu óska eftir að hrægámar verði afgirtir og lokaðir. Auk þess kemur fram að fleiri en þeir sem greiða fyrir þjónustuna noti þá og það sé ekki sanngjarnt.
Erindið móttekið og vísað til vinnu verkefnisstjóra umhverfismála.
8.
Fundargerðir stjórnar SASS 2024
Málsnúmer 202401123
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Umsagnir við frumvarpi til laga um vindorku - Samtök orkusveitarfélaga
Málsnúmer 202401126
Erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga þar sem, annars vegar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og hins vegar um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi.Aðildarsveitarfélög eru hvött til þess að skila inn umsögn eða taka undir umsögn samtakanna.
Bæjarráð tekur heilshugar undir umsagnir Samtaka orkusveitarfélaga og felur starfsmanni að koma því á framfæri.
11.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401125
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir þorrablót í Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 202401124
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi fyrir þorrablót í Hrollaugsstöðum.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
13.
Bygginganefnd um nýtt íþróttahús
Málsnúmer 202401091
Erindisbréf byggingarnefndar um nýtt íþróttahús til yfirferðar og samþykktar.
Sveitarfélagið leitaði til Jafnréttisstofu vegna tilnefninga í starfshóp um byggingu íþróttahúss. Jafnréttisstofa bendir á að tilnefningar í starfshópinn þurfi að uppfylla kynjahlutföll skv. 2. mgr. 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafnan stöðu og jafnan rétt kynjanna. Auk þess stangast tilnefningin á við 43. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011.
Í ljósi ofangreinds falla tilnefningar frá 1013. fundi bæjarráðs niður. Skipað verður á ný í þriggja manna starfshóp um byggingu íþróttahúss á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram með erindisbréfið í samræmi við umræður á fundinum.
14.
Skipulag - Stækkun á lóð Hótel Jökull
Málsnúmer 202312091
Eigendur Hótels Jökuls ehf. óska eftir stækkun á lóð í kring um hótelið skv. uppdrætti.
Starfsmönnum falið að funda með umsækjendum og greina frá spurningum bæjarráðs.
15.
Skipurit 2024
Málsnúmer 202401128
Tillaga að skipulagsbreytingum.
Bæjarstjóri fór yfir þær breytingar sem lagðar eru til á umhverfis- og skipulagssviði þar sem sviðinu verður skipt upp í tvö svið umhverfis-og skipulagssvið og mannvirkjasvið.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir mun áfram leiða umhverfis og skipulags hluta sviðsins, en Bartek Andresson Kass mun taka við nýju starfi sem sviðsstjóri mannvirkjasviðs og er breytingin gerð til eins árs.

Með breytingunni færist starfsemi byggingarfulltrúa, öll rekstrarverkefni og umsjón verklegra framkvæmda, ásamt Hornafjarðarhöfn og slökkviliði, af umhverfis og skipulagssviði á nýtt mannvirkjasvið.

Bæjarráð samþykkir breytinguna á skipuriti sveitarfélagsins og tímabundna ráðningu Barteks í nýtt starf sviðstjóra mannvirkjasviðs.

Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.