Bæjarráð Hornafjarðar
1116. fundur
6. febrúar 2024
kl.
10:00
-
11:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 3
Umsókn Steinar Resort ehf. um lóð að Sandbakkavegi 3.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
2.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 1
Umsókn Steinar Resort ehf. um lóð að Sandbakkavegi 1.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
3.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Umsækjandi hefur fallið frá umsókn sinni um rekstur í Gömlubúð af persónulegum ástæðum.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúa er falið að auglýsa húsið til leigu. Núverandi starfsemi upplýsingamiðstöðvar í rekstri Menningarmiðstöðvar verður í húsinu á meðan auglýsingaferli stendur yfir. Umsóknir skulu berast fyrir 1. mars 2024 og allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um.
4.
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss
Tilnefningar í stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss og erindisbréf til umsagnar.
Erindisbréf fyrir stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss í Hornafirði lagt fram.
Tilnefnd eru:
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir (K)
Björgvin Hlíðar Erlendsson (D)
Björgvin Óskar Sigurjónsson (B)
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið einróma og vísar því og tilnefningum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Starfsmaður stýrihópsins er umsjónar- og eftirlitsmaður fasteigna.

5.
Erindi frá Umf. Sindra vegna stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss.
Bæjarráð þakkar UMF Sindra fyrir erindið.
Bæjarráð áréttar að samkvæmt erindisbréfi er stýrihópnum falið að leita ráðgjafar hjá þeim sem hafa sérþekkingu eða reynslu af viðfangsefni hópsins á hverjum tíma auk þess sem hópnum er gert að hafa víðtækt samráð við hagsmunaaðila í sinnu vinnu og upplýsa þá um stöðu vinnunnar. Þá segir jafnframt í bréfinu að hópurinn skuli eiga reglulegt samtal við hagsmunaðila og kalla þá til sín til kynningar og ráðgjafar eftir þörfum. Með framangreindu er tryggt að sjónarmið hagsmunaaðila komist á framfæri í vinnunni og vonast bæjarráð eftir góðu samstarfi stýrihópsins og Umf. Sindra sem og annarra hagsmunaaðila.
Á vef sveitarfélagsins má sjá afrakstur þeirrar vinnu sem þegar hefur farið fram og verður lagt til grundvallar vinnu hópsins: https://www.hornafjordur.is/thjonusta/ithrottir-og-tomstundir/uppbyging-ithrottamannvirkja/

6.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka I við fjárhagsáætlun 2024. Aukafjárveiting vegna ráðgjafar og þjálfunar fyrir sérfræðing í málefnum fatlaðra í Grunnskóla Hornafjarðar og fjárveiting í þróunarverkefnið Ungt fólk og efling byggðar. Viðaukinn felur ekki í sér viðbótarlántöku þar sem útgjaldaaukningu er mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka I einróma og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Auglýsing um framboð í stjórn Lánasjóðs Sveitarfélaga
Auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir aðalfund sem haldinn verður 14. mars næstkomandi.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Melatangi ehf. óskar eftir fresti til að koma með áætlun um uppbygginu á lóð að Álaugarvegi 10.
Bæjarráð þakkar erindi lóðarhafa og býður þeim til samtals við umhverfis- og skipulagsnefnd á fundi nefndarinnar þann 21. febrúar 2024. Umhverfis- og skipulagsstjóra er falið að boða lóðarhafa til samtals.