Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1119. fundur
27. febrúar 2024 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 109
Málsnúmer 2402010F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin samþykkt einróma.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 74
Málsnúmer 2402012F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin samþykkt einróma.
3.
Opnunartími sundlaugarinnar
Málsnúmer 202402073
Að frumkvæði ungmennaráðs leggur fræðslu- og frístundanefnd til að lengja opnunartíma Sundlaugar Hafnar frá kl. 17:00 til 19.00 um helgar næsta vetur og endurskoða opnunartímann eftir þann tíma með tilliti til nýtingar.
Bæjarráð samþykkir einróma að lengja opnunartíma sundlaugarinnar yfir vetrartímann frá kl. 17:00 - 19:00 fram til áramóta 2024/2025 og taka stöðuna á nýtingunni þá áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.
4.
Hleðslustöðvar - hugsanlegar staðsetningar við stofnanir sveitarfélagsins
Málsnúmer 202309041
Lagt fram minnisblað um uppbyggingu innviða sem styðja við orkuskipti í samgöngum.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsstjóra og umsjónarmanni fasteigna að leggja fram tillögur að staðsetningum rafhleðslustöðva við stofnanir sveitarfélagsins bæði í dreifbýli og þéttbýli og kostnaðarmeta verkefnið.
5.
Styrkir bæjarráðs 2024
Málsnúmer 202401097
Styrkumsóknir liggja fyrir og eru lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð óskar eftir að stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi taki saman þá styrki sem hafa borist í nefndir sveitarfélagsins.
6.
Nýr bíll Scanía frá WiSS
Málsnúmer 202402066
Óskað er eftir að bæjarráð taki afstöðu til tafabóta sem voru boðnar vegna tafa á afgreiðslu slökkvibifreiðar.Lagt er til að nýta bæturnar upp í stofnbúnað fyrir nýju slökkvibifreiðina hjá framleiðendanum.
Bæjarráð samþykkir einróma tafabætur samkvæmt framlagðri tillögu slökkviliðsstjóra. Umræddar bætur eru í formi úttektar á búnaði fyrir slökkvibifreiðina. Bæturnar eru samtals 20.000 evrur.
7.
Jafnréttisáætlun 2022 - 2026
Málsnúmer 202402033
Samkvæmt jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2022 til 2026 er á ábyrgð bæjarráðs að taka saman upplýsingar um hlutfall kynja í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins og skal því, ásamt leiðréttingu ef kynjahlutfallið uppfyllir ekki 28. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lokið í apríl ár hvert. Þá er á ábyrgð bæjarráðs, bæjarstjórnar og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að uppfæra mannauðsstefnu sveitarfélagsins fyrir árslok 2024 samkvæmt jafnréttisáætlun.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að taka saman upplýsingar um hlutfall kynja í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins.
8.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202401050
Uppfæra þarf gjald vegna leigu á húsnæði með tilliti til starfsemi í húsunum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að gera endurbætur á gjaldskránni.
9.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 943 lögð fram til kynningar.
10.
Umsögn um Borgarstefnu
Málsnúmer 202402132
Erindi frá Innviðaráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn um drög að borgarstefnu.
Drög að borgarstefnu lögð fram til kynningar og undirbúnings umsagnar.
11.
Umsögn Búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum
Málsnúmer 202402101
Ósk um umsögn við tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar-og hjúkrunarrýmum.
Bæjarráð gerir athugasemdir við að verið sé að velta ábyrgð yfir á sveitarfélögin þegar verkefnið er á ábyrgð ríkisins en tekur undir að ekki sé ásættanleg sú bið sem er eftir hjúkrunarrýmum víða á landinu.