Bæjarráð Hornafjarðar
1120. fundur
5. mars 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 263
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin samþykkt einróma.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 61
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin samþykkt einróma.
3.
Samgönguhátíð
Í júli verða 50 ár frá vígslu brúar yfir Skeiðará og þar með opnun hringvegarins.Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að haldið verði upp á tímamótin og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar málinu til nánari vinnu hjá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar og atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
4.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka II við fjárhagsáætlun 2024. Aukafjárveiting vegna breytinga á rekstrarleigu bifreiða hjá stuðnings- og virkniþjónustu, fjárveiting vegna ráðningar verkefnastjóra í tímabundið starf til eins árs á leikskólann Sjónarhól, hækkun heilsueflingarstyrks fyrir starfsfólk sveitarfélagsins og frír aðgangur að sundlaug Hafnar fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Viðaukinn felur ekki í sér viðbótarlántöku þar sem útgjaldaaukningu er mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka II einróma og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Styrkir bæjarráðs 2024
Styrkumsóknir til bæjarráðs lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir einróma þær úthlutanir sem hljóta styrk ráðsins að þessu sinni. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa er falið að upplýsa umsækjendur um úthlutanir og gera ráðstafanir vegna afhendingar styrkja á Menningarhátíð sveitarfélagsins sem haldin verður í Nýheimum 8. mars nk. kl. 17:00. Bæjarráð hvetur bæjarbúa til að fjölmenna á Menningarhátíðina.
6.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Uppfærð gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Málstefna
Málstefnan hefur fengið umsögn í öllum nefndum sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir málstefnuna einróma og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að vinna að aðgerðaráætlun um innleiðingu málstefnunnar ásamt öðru starfsfólki.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að vinna að aðgerðaráætlun um innleiðingu málstefnunnar ásamt öðru starfsfólki.
8.
Ósk um umsögn um drög að borgarstefnu
Drög að fyrstu borgarstefnu fyrir Ísland hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögum að borgarstefnu er lagður grunnur að umræðu um núverandi stöðu, lykilviðfangsefni og framtíðarsýn fyrir borgarsvæðin.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að koma með drög að umsögn um borgarstefnuna fyrir næsta fund bæjarráðs.
9.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Umsókn Fallastakksnafar ehf. um lóð að Sandbakkavegi 5.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Umsókn Fallastakksnafar ehf. um lóð að Silfurbraut 44.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Umsókn Fallastakksnafar ehf. um lóð að Silfurbraut 46.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Leyfisumsókn - götu- og torgsala
Götu-og torgsala er leyfisskyld og eru leyfi gefin út í tilgreindan tíma af bæjarráði. Cezary Biedrzycki óskar er eftir leyfi frá 1. apríl 2024 til að vera með 5,5 m. langa bifreið á svæði 4, (miðsvæði við Miðbæ) og selja úr henni vörur.
Bæjarráð samþykkir að veita Cezar Biedrzycki leyfi fyrir götu- og torgsölu á svæði 4, (miðsvæði við Miðbæ), frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2025.
13.
Jafnréttisáætlun 2022 - 2026
Samkvæmt jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar tekur bæjarráð saman upplýsingar um hlutfall kynja í nefndum, ráðum og stjórnum.
Bæjarráð telur hlutfall kynja í nefndum og ráðum uppfylla 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Málinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
14.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Fundargerð 944. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.