Bæjarráð Hornafjarðar
1122. fundur
19. mars 2024
kl.
10:00
-
11:41
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 3
Íbúaráð sveitarfélagsins funduðu með Vegagerðinni um hin ýmsu mál sem koma að vegamálum mánudaginn 11. mars sl. á Hrollaugsstöðum. Á fundinn mættu íbúaráð ásamt fulltrúum sveitarfélagsins og bæjarstjórnar. Fundurinn var gagnlegur og umræður allt frá öryggi vegfarenda, girðingamálum, snjóruðningi, veglokunum, skiltum við heimreiðar, viðhaldi vega og nýframkvæmdum.
Bæjarráð þakkar fyrir góðan og upplýsandi fund. Umræður á fundinum munu reynast gott veganesti fyrir áframhaldandi vinnu sem snýr að vegamálum sveitarfélagsins.
Þessi bókun á einnig við um liði tvö og þrjú í fundargerð bæjarráðs.
Þessi bókun á einnig við um liði tvö og þrjú í fundargerð bæjarráðs.
2.
Íbúaráð Öræfum - 3
Vísað er til bókunar við lið 1. í fundargerð.
3.
Íbúaráð - Nes og Lón - 3
Vísað er til bókunar við lið 1. í fundargerð.
4.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Engin tilboð bárust í leigu á Gömlubúð en umsóknarfrestur um rekstur í húsinu rann út þann 1. mars sl.
Í ljósi þess að ekki hafa borist nýjar umsóknir í leigu á Gömlubúð felur bæjarráð forstöðumanni menningarmiðstöðvarinnar og atvinnu- og ferðamálafulltrúa að skoða hvaða kostir eru í boði til að tryggja áframhaldandi starfsemi í húsinu.
5.
Útboð: SINDRABÆR - BREYTINGAR 2024
Útboðsgögn vegna útboðs fyrir framkvæmdir í Sindrabæ.
Bartek Andrésson Kass og Björn Þór Imsland fóru yfir útboðsgögn fyrir breytingar á Sindrabæ (Tónskóla Austur- Skaftafellssýslu).
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa útboðið skv. umræðum á fundinum.
----
Gauti Árnason vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa útboðið skv. umræðum á fundinum.
----
Gauti Árnason vék af fundi undir þessum lið.
6.
Endurnýjun sölubása fyrir hátíðarhöld
Minnisblað frá sviðsstjóra mannvirkjasviðs. Sveitarfélaginu barst erindi varðandi varðandi endurnýjun á sölubásum sem notaðir eru til hátíðarhalda. Sölubásar sveitarfélagsins eru úr sér gengnir og þess vegna er óskað eftir að fjárfest sé í nýjum sölubásum.
Bæjarráð óskar eftir nánari skoðun á gæðum og hentugleika þeirra húsa sem lagt er til að kaupa ásamt kostnaðarmati á þeim breytingum sem gera þarf á húsunum svo þau mæti okkar þörfum.
7.
Örútboð fyrir rafmagnskaup
Rafmagnskaup sveitarfélagsins eru í útboðsferli, svokölluðu örútboði. Tilboðsfrestur er til 20. mars 2024.
Lagt fram til kynningar.
8.
80 ára afmæli lýðveldisins Íslands
Erindi frá forsætisráðuneytinu þar sem greint er frá 80 ára afmælishátíð íslenska lýðveldisins. Óskað er eftir samstarfi sveitarfélaga í tengslum við hátiðardagskrá með miðlun og hvatningu til þátttöku, eins og hentar best á hverjum stað. Vonast er til að dagskrá afmælis ársins muni höfða til sem flestra.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fundargerðir Nýheima þekkingarseturs 2024
Lagt fram til kynnningar.
10.
Umsögn um Borgarstefnu
Drög að umsögn lögð fram til umfjöllunar. Einnig er lagt fram erindi um opin kynningarfund um tillögu að borgarstefnu.
Bæjarráð sveitarfélagsins Hornafjarðar telur að ekki sé nægilega skýrt í drögum að
borgarstefnu með hvaða hætti efling borgarsvæðanna og áhrifasvæða þeirra skili sér út fyrir
þau svæði eða í þjónustu við íbúa annarra landssvæða. Lítið sem ekkert fjallað um samgöngur
til og frá höfuðborgarsvæðinu ef frá er skilið að talað er um áframhaldandi uppbyggingu
öflugra og skilvirkra almenningssamgangna innan borgarsvæðanna og á milli þeirra.
Þá er fjallað um mikilvægi þess að standa vörð um áframhaldandi uppbyggingu á
Akureyrarflugvelli, sem stuðli að því að koma á og viðhalda reglubundnu áætlunarflugi til
Akureyrar, milli landa og innanlands, allan ársins hring. Það komi til með að jafna dreifingu
ferðamanna um landið og tryggja þar með jafnari tækifæri til atvinnu. Hvergi er fjallað um
mikilvægi góðra samganga fyrir íbúa annarra landssvæða til og frá Reykjavík að öðru leyti en
því að vísa í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024 ? 2038.
Ef efling borgarsvæðanna verður með þeim hætti sem kveðið er á um í stefnunni eru allar
líkur á að það hafi áhrif á byggðaþróun og þar með þjónustu á landsbyggðinni. Því er
gríðarlega mikilvægt, eftir sem áður, að tryggja hagkvæmar almenningssamgöngur frá öðrum
landshlutum til borgarsvæðanna, þar með talið flugsamgöngur og örugga stofnvegi með
ásættanlegri vetrarþjónustu og boðlegri viðbragðsþjónustu í samræmi við þann fjölda
vegfarenda sem nýta vegina.
--------
Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að senda inn umsögn sveitarfélagsins.

11.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - C minna gistiheimili - 2503447
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við rekstarleyfi fyrir rekstur í flokki II tegund C, minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.