Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1123. fundur
26. mars 2024 kl. 10:00 - 14:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 76
Málsnúmer 2403015F
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2.
Fræðslu- og frístundanefnd - 110
Málsnúmer 2403004F
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 62
Málsnúmer 2403011F
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
4.
Starfsemi Kátakots
Málsnúmer 202403078
Erindi vegna vinnuaðstöðu nemenda og starfsmanna í Kátakoti sem óskað er eftir að verði endurbætt.
Bæjarráð þakkar greinargóða samantekt frá skólastjóra grunnskólans.

Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna er falið að uppfæra kostnaðarmat á viðbyggingu við Kátakot samkvæmt fyrirliggjandi hugmyndum þar að lútandi.

Umhverfis- og skipulagsstjóra er falið að halda áfram með vinnu að vistgötu í Svalbarði í samræmi við bókun fræðslu- og frístundanefndar frá 21. september 2022.
5.
Endurnýjun sölubása fyrir hátíðarhöld
Málsnúmer 202403045
Sviðsstjóri mannvirkjasviðs leggur fram minnisblað um endurnýjun sölubása fyrir hátíðarhöld og óskar eftir heimild bæjarráðs til að fjárfesta í sex nýjum sölubásum. Kostnaður við básana með flutningi og breytingum yrði um 3.5 - 4 milljónir króna.
Bæjarráð er jákvætt fyrir að kaupa fjögur smáhýsi og felur fjármálastjóra að meta fjárhagsleg áhrif þess og gera viðauka við fjárhagsáætlun.
6.
Breyting á opnunartíma Áhaldahúss
Málsnúmer 202403066
Lagðar eru fram tillögur að breytingum á opnunartíma áhaldahúss. Í dag er opnunartíminn frá kl. 8:00 - 12:00 og 13:00 - 17:00 alla virka daga.
Bæjarráð felur forstöðumanni áhaldahúss að útfæra og auglýsa breyttan opnunartíma í samræmi við framlagðar hugmyndir.

Samþykkt samhljóða.
7.
Fjallamennskunám
Málsnúmer 202403080
Kynning á fjallamennskunámi við FAS.
Bæjarráð þakkar góða kynningu og samtal.
8.
Yfirtaka og uppbygging eigna - Félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202309012
Lögð er fram viljayfirlýsing um samstarf milli Bríetar leigufélags og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sviðsstjóri velferðarsviðs óskar eftir samþykki bæjarráðs til að undirrita viljayfirlýsinguna.
Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að vinna að lagfæringum á viljayfirlýsingunni.
9.
Menningarstefna 2023
Málsnúmer 202306056
Menningarstefnan hefur verið tekin fyrir í nefndum sveitarfélagsins. Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkti stefnuna einróma og vísaði henni til bæjarráðs til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir menningarstefnuna samhljóða og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2024
Málsnúmer 202403053
Breytingar á úthlutunarreglum menningarstyrkja voru samþykktar af atvinnu- og menningarmálanefnd og vísað til bæjarráðs til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir breytingar á úthlutunarreglum menningarstyrkja og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.
11.
Beiðni um afnot af Gömlubúð
Málsnúmer 202403084
Nemendur í nýsköpunar- og hönnunaráfanga í FAS óska eftir að fá afnot af Gömlubúð eina helgi til kanna viðbrögð við hugmynd um kaffihús sem þau hafa verið að vinna að í náminu.
Bæjarráð samþykkir erindið að því tilskyldu að öll skilyrði samkvæmt lögum og reglum verði uppfyllt og vísar erindinu til forstöðumanns menningarmiðstöðvar.

Samþykkt samhljóða.
12.
Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins
Málsnúmer 201711006
Uppfærðar reglur um framlag til heilsueflingar starfsmanna sveitarfélagsins lagðar fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir reglur um framlag til heilsueflingar starfsmanna. Reglunum er vísað til bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.
13.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202301058
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti tillögur um breytingar á starfsemi leikskólans Lambhaga með þeim fyrirvara að fjölgun skipulagsdaga falli að skipulagsdögum grunnskólans í Hofgarði og að dagatalið verði uppfært í samræmi við það. Nefndin vísaði tillögunum til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum á starfsemi leikskólans Lambhaga og vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykktar.
14.
Ungmennahús 2024
Málsnúmer 202403079
Kynning á hugmyndum um ungmennahús í tengslum við verkefnið Hornafjörður náttúrulega.
Bæjarráð fagnar hugmynd um ungmennahús og þakkar góða kynningu. Málinu vísað í áframhaldandi vinnu starfsmanna fræðslu- og frístundasviðs varðandi nýtingu vöruhússins.
15.
Útboð á skólaakstri 2024-2028
Málsnúmer 202312026
Niðurstöður útboðs í skólaakstur árin 2024 - 2028 lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir tilboð Fallastakks ehf., sem er lægstbjóðandi í hluta útboðsins, akstur á leiðum 2-6.

Ríkiskaup hafa þegar óskað eftir skýringum vegna tilboðs í akstur á leið 1. Bæjarráð frestar ákvörðun um þann hluta þar til skýringar hafa borist.

Samþykkt samhljóða.
16.
Nýjar heimasíður fyrir sveitarfélagið og stofnanir
Málsnúmer 202402020
Í framhaldi af tilkynningu frá Hugsmiðjunni um að þróun og þjónustu á vefumsjónarkerfinu Eplica er hætt (End-of-life), sem núverandi vefur sveitarfélagsins er hýstur í ásamt vef Grunnskóla Hornafjarðar og vef Menningarmiðstöðvar, skoðaði verkefnastjóri stafrænna lausna og tækni möguleika varðandi nýtt vefumsjónarkerfi.Verk- og verðáætlun frá Stefnu vegna nýrrar vefsíðu í vefumsjónarkerfinu Moya er lögð fyrir bæjarráð. Áætlað er að nýr vefur fari í loftið næsta haust.
Verðáætlunin rúmast innan fjárhagsáætlunar. Verkefnastjóra stafrænna lausna og tækni er falið að samþykkja verk- og verðáætlun frá Stefnu og hefja vinnu við innleiðingu á nýjum vef fyrir sveitarfélagið.
17.
Rekstur útstöðva og notendaþjónusta hjá Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202403077
Advania hefur lagt fram verðtilboð í notenda- og útstöðvaþjónusta sem innifelur fjaraðstoð við starfsmenn sveitarfélagsins, þjónustu, leyfisumsjón og aðgangsstýringu við Microsoft 365 umhverfi og rekstur á útstöðvum sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að meta fjárhagsleg áhrif samningsins og leggja fyrir bæjarráð.
18.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Í bréfi Innanríkisráðuneytisins frá 6. mars. sl. kemur fram að þeim fyrirmælum sé beint til sveitarfélagsins að fella úr gildi ákvörðun bæjarráðs frá 6. janúar 2021 um að hafna beiðni málshefjanda um niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11 á Höfn og taka beiðni málshefjanda til lögmætrar meðferðar.
Bæjarráð fylgir fyrirmælum Innviðaráðuneytisins og mun taka beiðni málshefjanda til lögmætrar meðferðar og ákvörðunar á næsta fundi bæjarráðs þann 9. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður málshefjendum og ráðuneyti tilkynnt um nýja ákvörðun bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.
19.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 13 og 15
Málsnúmer 202106060
Frestur til að skila inn verk- og tímaáæltun vegna framkvæmda er liðinn. Óskað er eftir að bæjarráð taki afstöðu til afturköllunar lóða eða veiti lokafrest.
Bæjarráð veitir lóðarhöfum tveggja vikna frest til að senda inn tímaáætlun vegna framkvæmda. Ef tímaáætlun berst ekki verða lóðirnar afturkallaðar að þeim tíma liðnum.

Samþykkt samhljóða.
20.
Umsókn um lóð - Borgartún 3 og 5
Málsnúmer 202108114
Frestur til að skila inn verk- og tímaáæltun vegna framkvæmda er liðinn. Óskað er eftir að bæjarráð taki afstöðu til afturköllunar lóða eða veiti lokafrest.
Bæjarráð veitir lóðarhöfum tveggja vikna frest til að senda inn tímaáætlun vegna framkvæmda. Ef tímaáætlun berst ekki verða lóðirnar afturkallaðar að þeim tíma liðnum.

Samþykkt samhljóða.
21.
Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi til áfengisveitinga Árshátíð sveitarfélagsins
Málsnúmer 202403083
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi, fyrir árshátíð sveitarfélagsins í íþróttahúsinu.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.

22.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
Fundargerðir funda Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 945 og 946 lagðar fram til kynningar.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.