Bæjarráð Hornafjarðar
1124. fundur
9. apríl 2024
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 77
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - 2024
Endurnýjun samnings um barnaverndarþjónustu á milli Fjarðabyggðar og Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða endurnýjun samnings um barnaverndarþjónustu á milli Hornafjarðar og Fjarðabyggðar og vísar til bæjarstjórnar.
3.
Öruggara Suðurland - Svæðisbundið samráð
Öruggara Suðurland er samráðsvettvangur gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurlandi milli Sýslumannsins á Suðurlandi, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Lögreglustjórans á suðurlandi og sveitarfélaga á Suðurlandi. Markmið samráðsins er að auka markvisst þekkingu á málaflokkum samstarfsaðila á afbrota- og forvarnarvinnu á Suðurlandi og á þeirri þjónustu sem verið er að veita borgurum í landshlutanum, kynna nýjungar og þjónustu í málaflokknum, styrkja undirstöður til framtíðar fyrir svæðisbundið samstarf gegn ofbeldi og öðrum afbrotum, efla samvinnu við úrlausn mála, ásamt því að efla samstarfsaðila í að takast á við málefni jaðarsettra hópa, ofbeldi og önnur afbrot.Bæjarstjóri og sviðsstjóri velferðarsviðs óska eftir heimild til að undirrita samstarfsyfirlýsingu um svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á vinnudegi sem fram fer í Þorlákshöfn 18. apríl 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs heimild til að undirrita samstarfsyfirlýsingu um svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og öðrum afbrotum og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar í kjölfar undirritunar samningsins.
4.
Áskorun til sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024
Fjármálastjóri leggur fram samantekt á breytingum á gjaldskrám sem áttu sér stað um áramót vegna áskorunar til sveitarfélaga um að taka þátt í og sýna samtillt átak til að liðka fyrir gerð langtímakjarasamninga og kveða niður vexti og verðbólgu.
Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina og vísar málinu til áframhaldandi vinnu hjá fjármálastjóra.
5.
Skipurit 2024
Minnisblað um kostnaðarmat á breytingu á skipuriti á fjármála- og stjórnsýslusviði lagt fram til kynningar.
Farið yfir minnisblað fjármálastjóra og málinu er vísað til áframhaldandi vinnu hjá bæjarstjóra.
6.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka III við fjárhagsáætlun 2024. Ósk um aukafjárveitingu til kaupa á nýjum sölubásum. Viðbótarfjárheimildum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka III samhljóða og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
Gögn vegna umsókna í framkvæmdasjóð ferðmannastaða lögð fram til kynningar. Sótt var um vegna Múlagljúfurs og Leiðarhöfða.
Lagt fram til kynningar.
8.
Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Lagt er fyrir að nýju erindi frá kjörstjórn sem tekið var fyrir á 1044. fundi bæjarráðs í júlí 2022 varðandi sameiningu kjörstaða. Kjördeildarkerfi lokar fyrir breytingar 22. apríl.
Bæjarráð leggur til að við forsetakosningar 2024 verði kjörstaðir í Hofgarði, Hrollaugsstöðum og á Höfn. Með þeirri tillögu er kjörstöðum fækkað um tvo, þ.e. í Nesjum og á Mýrum. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa er falið að óska eftir umsögn íbúaráða sveitarfélagsins. Kjördeilarkerfið lokar fyrir breytingar 22. apríl nk. og þarf umsögn íbúaráða því að liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs þar sem ákvörðun um málið verður tekin.
9.
Grunnskóli Hornafjarðar - húsnæði
Upplýsingar um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð þakkar góða yfirferð og samantekt á húsnæðismálum Grunnskólans. Málinu er vísað til frekari vinnu hjá sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs.
10.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Endurupptaka ákvörðunar bæjarráðs, dags. 6. janúar 2021, vegna erindis lóðarhafa að Hagaleiru 11 frá 22. desember 2020. Endurupptaka málsins fer fram í ljósi bréfs Innviðaráðuneytisins, dags. 6. mars 2024, sem ber yfirskriftina: Fyrirmæli innviðaráðuneytisins skv. 3. tölul. 2. mgr. 112. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í niðurlagi bréfsins koma fram þau fyrirmæli ráðuneytisins að fella úr gildi ákvörðun bæjarráðs frá 6. janúar 2021 um að hafna beiðni málshefjanda um niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11 á Höfn, og taka beiðni málshefjanda til lögmætrar meðferðar.
Bæjarráð er einhuga um að fella úr gildi fyrri ákvörðun frá 6. janúar 2021 um að hafna beiðni lóðarhafa að Hagaleiru 11 um niðurfellingu gatnagerðargjalda og taka málið til lögmætrar málsmeðferðar.
Til grundvallar nýrri ákvörðun hefur bæjarráð þau gögn sem lóðarhafar hafa sent inn til sveitarfélagsins og ráðuneytisins auk þess sem að nýju var leitað óháðrar lögfræðiráðgjafar.
Að öllu framangreindu virtu telur bæjarráð sér ekki heimilt, á grundvelli þeirra laga og reglna sem málið byggir á, að samþykkja beiðni lóðarhafa að Hagaleiru 11 um niðurfellingu gatnagerðargjalda.
Erindi um niðurfellingu gatnagerðargjalda af lóðinni Hagaleiru 11 er því hafnað, með vísan til gjaldskrár embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa, sem í gildi var við úthlutun lóðarinnar þann 6. október 2020 og hjálagðrar greinargerðar, þar sem gerð er ítarleg grein fyrir sjónarmiðum sveitarfélagsins í málinu.
Með hliðsjón af framangreindu er kröfu um málskostnað jafnframt hafnað.
Til grundvallar nýrri ákvörðun hefur bæjarráð þau gögn sem lóðarhafar hafa sent inn til sveitarfélagsins og ráðuneytisins auk þess sem að nýju var leitað óháðrar lögfræðiráðgjafar.
Að öllu framangreindu virtu telur bæjarráð sér ekki heimilt, á grundvelli þeirra laga og reglna sem málið byggir á, að samþykkja beiðni lóðarhafa að Hagaleiru 11 um niðurfellingu gatnagerðargjalda.
Erindi um niðurfellingu gatnagerðargjalda af lóðinni Hagaleiru 11 er því hafnað, með vísan til gjaldskrár embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa, sem í gildi var við úthlutun lóðarinnar þann 6. október 2020 og hjálagðrar greinargerðar, þar sem gerð er ítarleg grein fyrir sjónarmiðum sveitarfélagsins í málinu.
Með hliðsjón af framangreindu er kröfu um málskostnað jafnframt hafnað.
11.
Beiðni um endurskoðun gatnagerðargjalda fyrir Álaleiru 15
Erindi frá lóðarhöfum að Álaleiru 15 þar sem óskað er eftir enduskoðun bæjarráðs á beiðni þeirra um niðurfellingu gatnagerðargjalda frá 15. febrúar 2023. Þá telja lóðarhafar fullvíst að þegar lóðinni hafi verið úthlutað í fyrsta og líklega annað skipti, hafi hún notið kjara niðurfellingar gatnagerðargjalda, og óska útskýringa á því hvers vegna gatnagerðargjöld hafi verið innheimt þegar byggt var á lóðinni. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um fjölda byggðra og óbyggðra lóða á Leirusvæðinu sem njóti afsláttarkjara og hversu margar lóðir á svæðinu njóti ekki afsláttarkjara.
Bæjarráð hefur núna farið ítarlega yfir beiðni lóðarhafa að Álaleiru 15. Álganing gatnagerðargjalda fyrir Álaleiru 15 er í samræmi við þær reglur sem voru í gildi á þeim tíma sem lóðinni var úthlutað, þann 9. júní 2022. Beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda er hafnað þar sem tímabundnar reglur um niðurfellingu gatnagerðargjalda féllu úr gildi 9. maí 2019 en úthlutun lóðarinnar fór fram 9. júní 2022.
Spurt er um hversvegna umrædd lóð falli ekki lengur undir reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda, þrátt að hún hafi fallið undir þær við fyrstu úthlutun.
Lóðinni hafði verið úthlutað áður og voru gatnagerðargjöld í hvert sinn ákveðin út frá gildandi reglum á hverjum tíma. Reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda tóku gildi árið 2015 og áttu að gilda í tvö ár. Markmið reglanna var að auka nýframkvæmdir við íbúðarhúsnæði þar sem lóðaframboð var nægt en ekki hófust nægilegar framkvæmdir til að anna húsnæðisþörfinni.
Reglurnar voru framlengdar tvisvar um eitt ár í senn og féllu endanlega úr gildi 9. maí 2019.
Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um fjölda lóða á Leirusvæðinu sem hafa notið afsláttarkjara, með vísan í reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda, sem og fjölda byggðra og óbyggðra lóða á svæðinu. Þeirri ósk er vísað til samantektar hjá starfsmönnum Mannvirkjasviðs sem er falið að upplýsa lóðarhafa um niðurstöður samantektar.
12.
Umsagnarbeiðni - Tækifærisleyfi til áfengisveitinga - sjómannadagurinn
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi, fyrir sjómannadagsskemmtun í íþróttahúsinu.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
13.
Flugáætlun til Hafnar
Kynning á hugmyndum Flugfélagsins Ernis um að breyta flugáætlun til Hafnar. Breytingin felur í sér að fella niður hádegisflug á sunnudögum og fimmtudögum og setja í staðinn á morgun- og kvöldflug á fimmtudögum.
Verði flug á sunnudögum fellt niður, telur bæjarráð nauðsynlegt að flýta morgunflugi á mánudögum til að koma til móts við þá sem annars hefðu nýtt sér flug á sunnudegi og þurfa að vera fyrri part mánudags í Reykjavík.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga lagður fram til kynningar.
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
15.
Fundartími bæjarstjórnar
Umfjöllun um fundartíma bæjarstjórnar að því er varðar apríl- og maífundi.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn haldi aukafund 24. apríl vegna fyrri umræðu ársreiknings. Þá er lagt til að maífundur bæjarstjórnar verði haldinn 8. maí í stað 9. maí, sem er uppstigningardagur. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.