Bæjarráð Hornafjarðar
1128. fundur
7. maí 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Gamla búð - Umsókn um rekstur
Umsókn um rekstur/leigu Gömlubúðar frá Lárusi Páli Pálssyni.
Bæjarráð synjar fyrirliggjandi umsókn um rekstur/leigu Gömlubúðar samhljóða.
Forstöðumanni Menningarmiðstöðvar er falið að upplýsa umsækjanda um synjunina.
Forstöðumanni Menningarmiðstöðvar er falið að upplýsa umsækjanda um synjunina.
2.
Umsókn um lóð - Nafn lóðar
Umsókn Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. um lóð að Sæbraut 4.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutun að Sæbraut 4 til Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. sem byggingarlóð með þeim skilmálum sem um það gilda. Þar sem lóðin er í útjaðri íbúðarbyggðar tekur bæjarráð fram að þar skuli ekki vera með efnislager fyrir jarðefni.
Samþykkt samhljóða og lóðarúthlutun vísað til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða og lóðarúthlutun vísað til bæjarstjórnar.
3.
Útboð: Sindrabær - breytingar 2024
Mánudaginn 22. apríl 2024 voru opnuð tilboð í verkið "Sindrabær - breytingar 2024". Eitt tilboð barst í verkið frá Verkfærni ehf. sem hljóðar upp á 358.365.455 kr. Kostnaðaráætlun hljóðaði upphaflega upp á 266.334.376 kr. og var tilboðið því 35% yfir kostnaðaráætlun, en með leiðréttingum hljóðar kostnaðaráætlun upp á 284.534.276 kr. Villa var í excelskjali tilboðsgjafa sem hafði óveruleg áhrif á tilboðsfjárhæð. Endanleg tilboðsfjárhæð var því 357.844.136 kr. eða 26% yfir leiðréttri kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að óska eftir frekari skýringum á ákveðnum liðum í tilboðinu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands
Boð til sveitarstjórnarmanna á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) lagt fram.
5.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut styrk að fjárhæð 90.000.000 kr. til verkefnisins Múlagljúfur - uppbygging gönguleiðar og áningarstaða úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að þiggja styrk Ferðamálastofu.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúa er falið að undirbúa framkvæmd verkefnisins.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúa er falið að undirbúa framkvæmd verkefnisins.
6.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Fundargerð 947. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19. apríl 2024 lögð fram.
7.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 264
Lagt fram.
8.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 79
Lagt fram.