Bæjarráð Hornafjarðar
1131. fundur
28. maí 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 80
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 80. fundi nefndarinnar lögð fram til kynningar.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 64
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar frá 64. fundi nefndarinnar lögð fram til kynningar.
3.
Starfsemi Ríkis Vatnajökuls ehf.2024
Fulltrúar frá Ríki Vatnajökuls komu fyrir bæjarráð og kynntu skýrslu stjórnar og ársreikning.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna, óskar nýrri stjórn velfarnaðar í störfum og þakkar fráfarandi stjórn fyrir samstarfið.
4.
Gamlabúð
Upplýsingar frá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar um starfsemi Gömlubúðar sem óskað var eftir af hálfu bæjarráðs lagðar fram.
Bæjarráð þakkar starfsfólki Menningarmiðstöðvarinnar fyrir vel unnin störf síðastliðið ár í Gömlubúð og felur Menningarmiðstöð Hornafjarðar að halda áfram starfsemi þar í sumar ásamt því að leggja drög að uppfærðu sýningarhaldi í húsinu.
5.
Skilti, vörumerki og fleira - Tillögur fyrir SVH
Tillaga að skilti við innkomu í sveitarfélagið lögð fram ásamt hluta af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð óskar eftir að atvinnu- og ferðamálafulltrúi vinni áfram að málinu og leggi fram fullbúna kostnaðaráætlun.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Sala á 900mm rörum staðsettum í Óslandi
Leitað hefur verið til bæjarverkstjóra um kaup á 900 mm rörum sem staðsett eru í Óslandi. Um er að ræða 29 stk af 12 m rörum, 900 mm að þvermáli, samtals 348 m. Sviðsstjóri mannvirkjasviðs óskar eftir heimild bæjarráðs til að auglýsa eftir tilboðum í öll rörin á heimasíðu og facebook síðu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að rörin verði seld og felur sviðsstjóra mannvirkjasviðs að auglýsa rörin til sölu og ganga frá sölu á þeim.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Kaup á lyftara fyrir áhaldahús
Upplýsingar um stöðu mála varðandi kaup á lyftara fyrir áhaldahúsið lagðar fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra mannvirkjasviðs að vinna áfram í málinu.
8.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Lóðarhafi lóðar að Sandbakkavegi 5, hefur óskað eftir að fá að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir skil á lóðinni og felur starfsmönnum mannvirkjasviðs að merkja lóðina sem lausa til úthlutunar á kortasjánni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Lóðarhafi lóðar að Silfurbraut 44, hefur óskað eftir að fá að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir skil á lóðinni og felur starfsmönnum mannvirkjasviðs að merkja lóðina sem lausa til úthlutunar á kortasjánni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Lóðarhafi lóðar að Silfurbraut 46, hefur óskað eftir að fá að skila lóðinni.
Bæjarráð samþykkir skil á lóðinni og felur starfsmönnum mannvirkjasviðs að merkja lóðina sem lausa til úthlutunar á kortasjánni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Ársskýrsla Slökkviliðs Hornafjarðar 2023
Ársskýrsla Slökkviliðs Hornafjarðar lögð fram til kynningar.
12.
Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi - Humarhátíð
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu tækifærisleyfis fyrir Humarhátíð.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi - Ungmennadansleikur á Hafinu
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi fyrir dansleik á Hafinu 1. júní 2024 í tilefni af skuggakosningum fyrir ungmenni.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi til áfengisveitinga - sjómannadagur
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á Sjómannadagsballi.
Bæjarráð veitti jákvæða umsögn í gegnum tölvupóst, lagt fram til kynningar.