Bæjarráð Hornafjarðar
1133. fundur
11. júní 2024
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 81
Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefnd lögð fram til kynningar.
2.
Íþróttahús - hönnun
Gerð var grein fyrir fundargerð stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss, einnig voru lögð fram frekari gögn.
Lagt fram til kynningar.
3.
Aukin eftirspurn umfram framboð á flugsætum til Hafnar.
Innsent erindi vegna aukinnar aðsóknar og uppbókaðra flugvéla á flugleiðinni Reykjavík-Höfn í sumar. Ljóst er að takmarkað framboð af flugsætum hefur áhrif á grunnþjónustu sveitarfélagsins sérstaklega í tengslum við heilbrigðisþjónustu en bæði þurfa sérfræðingar að koma frá Reykjavík til Hafnar, sem og þurfa íbúar að sækja þjónustu til Reykjavíkur.
Bæjarráð hvetur flugfélagið Erni til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir flugsætum með viðbótarflugi sé þess þörf. Þá vill bæjarráð einnig hvetja Vegagerðina til þess að ganga frá samningum og tryggja áframhaldandi flug til Hafnar sem allra fyrst, enda er um mikilvægt byggða- og öryggismál að ræða. Samþykkt samhljóða.
4.
Beiðni um framlengingu á frestum vegna lóðaúthlutunar Sandeyri 2-7
Lóðarhafa var veittur frestur til mánudagsins 10.06.2024 til þess að skila inn tímaáætlun framkvæmda.
Bæjarráð telur tímaáætlun sem borist hefur vera ófullnægjandi. Lóðarhafa er veittur lokafrestur fram til kl.15:00 föstudaginn 14. júní næstkomandi til þess að senda inn rökstudda beiðni um framlengingu á fresti, uppfærða tímaáætlun og skýringar á töfum sem orðið hafa á verkefninu. Þá verður beiðnin tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs, þann 18. júní næstkomandi, og næsta fundi umhverfis- og skipulagsnefndar, þann 19.júní næstkomandi. Samþykkt samhljóða.
5.
Hönnun - Ráðhús - endurbætur 1.hæð
Minnisblað um áskoranir og tillögur að lausnum vegna áhrifa framkvæmda á 1.hæð ráðhúss á starfsemi Menningarmiðstöðvar lagt fram.
Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits-, og ábyrgðarmanni fasteigna að vinna áfram að málinu. Samþykkt samhljóða.
6.
Beiðni um samþykki fyrir framkvæmdum á Stekkakletti
Beiðni frá leigutaka á Stekkakletti um leyfi til framkvæmda
Bæjarráð felur sviðstjóra Mannvirkjasviðs að vinna áfram að málinu. Samþykkt samhljóða.
7.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Lóðarhafi hefur óskað eftir fresti til þess að skila inn gögnum vegna framkvæmda á lóð að Álaugarvegi 12.
Lóðarhafa er veittur frestur til kl. 15:00 föstudaginn 14.júní næstkomandi til þess að skila inn tímaáætlun og rökstuddri beiðni á framlengingu á framkvæmdum, sem tekin verður fyrir á næsta fundi bæjarráðs þann 18. júní. Samþykkt samhljóða.
8.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður II - C Minna gistiheimili - 2180677
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við rekstrarleyfi að Hafnarbraut 24 fyrir rekstur í flokki II tegund C minna gistiheimili. Hámarksgestafjöldi 10 gestir.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð á Silfurbraut 46
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
10.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð á Silfurbraut 44
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
11.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð á Sandbakkavegi 5
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
12.
Ný urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni
Miðvikudaginn 05.júní 2024 voru opnuð tilboð í verkið "Ný urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni". Þrjú tilboð bárust í verkið. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 32.754.500 kr. Tilboðsfjárhæð frá Litlahorni er 22.996.644 kr. (70,21% af kostnaðaráætlun), tilboðsfjárhæð frá Jökulfelli er 16.632.419 kr.(50.78% af kostnaðaráætlun) og tilboðsfjárhæð frá Rósabergi er 16.762.463 kr. (51.18% af kostnaðaráætlun).
Bæjarráð felur sviðstjóra Mannvirkjasviðs að yfirfara tilboðin og ganga til samninga við lægstbjóðenda. Samþykkt samhljóða.
13.
Beiðni frá Orkufjarskiptum um kaup á ljósleiðarastreng Hestgerði - Hrollaugsstaðir
Orkufjarskipti hafa óskað eftir að fá að kaupa hlut sveitarfélagsins í stofnstreng sem liggur á milli Hestgerðis og Hrollaugsstaða, en Orkufjarskipti eiga hinn hlutann.
Bæjarráð heimilar sölu á hlut sveitarfélagsins í stofnstrengnum með því skilyrði að sveitarfélagið hafi áfram afnot af honum og að salan rýri ekki þjónustu við sveitarfélagið. Samþykkt samhljóða.
14.
Rekstraryfirlit til 30.04.2024
Fjármálastjóri fór yfir uppgjörstölur fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins.
Lagt fram til kynningar. Staða sveitasjóðs er í jafnvægi.