Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1134. fundur
18. júní 2024 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs/staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Beiðni um framlengingu á frestum vegna lóðaúthlutunar að Sandeyri 2-7
Málsnúmer 202405112
Lóðarhafa var gefinn frestur til að skila tímaáætlun framkvæmda ásamt frekari gögnum og upplýsingum um framkvæmdina þar til föstudaginn 14. júní 2024. Fullnægjandi gögn hafa borist.
Lóðarhafa er gefinn frestur til 6. október 2024 til að afla byggingarleyfis á lóðinni.

Samþykkt samhljóða.
2.
Beiðni um samþykki fyrir framkvæmdum á Stekkakletti
Málsnúmer 202406042
Hlynur Pálmason sagði frá næstu verkefnum og fyrirhuguðum framkvæmdum að Stekkakletti í tengslum við beiðni um leyfi fyrir frárennslisframkvæmdum á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða beiðni um frárennslisframkvæmdir samkvæmt framlögðum teikningum.
3.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Málsnúmer 202305064
Lóðarhafi óskar eftir fresti til að afla samþykkis byggingaráforma og leggur fram tímaáætlun.
Lóðarhafa er gefinn frestur til að afla samþykkis byggingaráforma til 30. september 2024.

Samþykkt samhljóða.
4.
Umsókn um lóð - Miðós 13
Málsnúmer 202406061
Umsókn Gunnars Gunnlaugssonar um lóð að Miðósi 13.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar að Miðósi 13 sem geymslulóð. Vakin er athygli á að lóðarhafa ber að framfylgja lögum, reglum og samþykktum sem varða lóðina og að búseta á lóðinni er óheimil.

Samþykkt samhljóða.*
5.
Beiðni um sameiginlega tilnefningu fulltrúa í hreindýraráð
Málsnúmer 202406033
Umhverfis- orku og loftslagsráð óskar eftir að sveitarfélögin Fjarðarbyggð, Fljótsdalshreppur, Múlaþing, Sveitarfélagsið Hornafjörður og Vopnafjarðarhreppur, tilnefni sameiginlega fulltrúa í hreindýraráð.
Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vera í sambandi við sveitarfélögin á Austurlandi vegna málsins.
6.
Skjöldur - upplýsingatækni öryggi
Málsnúmer 202406048
Lagt er fram tilboð frá Advania til þess að innleiða netöryggisþjónustuna Skjöldur hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða sólarhringsvöktun, alla daga ársins á Microsoft umhverfi sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar tilboði frá Advania til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum.
7.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - rekstur gististaða í flokk II - Svínafell 1 Háaleiti - 229-8924
Málsnúmer 202406046
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki II - C Minna gistiheimili. Svínafell 1, Háaleiti, 785 Öræfum, hámarksfjöldi gesta 2x3.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
8.
Umsagnarbeiðni- Tækifærisleyfi til áfengisveitinga - Humarhátíð- UMF Sindri
Málsnúmer 202406047
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu tækifærisleyfis fyrir Humarhátíð.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða.
9.
Fundargerðir - stjórn Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202303020
Fundargerðir stjórnar Nýheima vegna funda nr. 149 og 150 lagðar fram til kynningar.
10.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
Fundargerð 948. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.