Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1135. fundur
2. júlí 2024 kl. 10:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 65
Málsnúmer 2406009F
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar frá fundi nefndarinnar númer 65 lögð fram til kynningar.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 266
Málsnúmer 2406006F
Fundargerð Hafnarstjórnar frá fundi númer 266 lögð fram til kynningar.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 82
Málsnúmer 2406007F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá fundi nefndarinnar númer 82 lögð fram til kynningar.
4.
Fræðslu- og frístundanefnd - 114
Málsnúmer 2406002F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá fundi nefndarinnar númer 114 lögð fram til kynningar.
5.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður í flokki IV- A Hótel - Hótel Jökulsárlón á Reynivöllum - 2524121
Málsnúmer 202406080
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi það sem óskað er eftir umsögn um útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki IV, Hótel Jökulsárlón Á Reynivöllum.
Bæjarráð veitti samhljóða jákvæða umsögn í gegnum tölvupóst með fyrirvara um að þeim skilmálum sem koma fram frá byggingarfulltrúa verða framfylgt samkvæmt áætlun og með þeim fyrirvörum sem koma fram frá slökkviliðsstjóra. Úrbótum skal lokið eigi síðar en 31. júlí 2024, lagt fram til kynningar.
6.
Endurskoðun á samning við S.S.Sport ehf
Málsnúmer 202405100
Bæjarráð fól sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að taka samtalið við rekstraraðila um framlengingu á fyrri samning. Rekstraraðili er reiðubúinn að framlengja samningnum. Bréf um tillögur rekstraraðila lagt fram.
Sviðstjóra fræðslu- og frístundarsviðs falið að vinna áfram að málinu.
7.
Ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla
Málsnúmer 202406072
Jafnréttisstofa vekur athygli á ábyrgð og hlutverki sveitarfélaga til að brúa bilið sem myndast þegar foreldrar hafa fullnýtt fæðingarorlofsrétt sinn og þangað til barn fær dvöl á leikskóla og hvetur jafnframt sveitarfélög til að vera vakandi gagnvart stöðu jafnréttismála á hverjum tíma og gæta sérstaklega að mögulegum afleiðingum.
Lagt fram til kynningar.
8.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Málsnúmer 202310161
Tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis við innkomu á Höfn, austan við Hafnarbraut lögð fram til staðfestingar. Markmið með deiliskipulaginu er að móta nýtt svæði fyrir stærri verslanir og aðra rýmisfreka verslunar- og þjónustustarfsemi á Höfn. Íbúafjölgun og vaxandi fjöldi ferðamanna hefur skapað forsendur fyrir meiri verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir þremur lóðum undir verslunar- og þjónustustarfsemi á skipulagssvæðinu. Lagður er grunnur að vönduðum frágangi byggðar og umhverfis innan skipulagssvæðisins. Tillaga að deiliskipulaginu var auglýst með athugasemdarfresti frá 8. apríl til 24. maí 2024.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.*
Samþykkt samhljóða.
9.
Hagahverfi - Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Málsnúmer 202302008
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hagahverfi, sem hefur vinnuheitið ÍB5, sem er staðsett við hlið tjaldsvæðis lögð fram til staðfestingar. Megintilgangur með deiliskipulaginu er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið aðalskipulags Hornafjarðar. Með uppbyggingunni er verið að koma til móts við íbúðaskort í þéttbýlinu á Höfn þar sem íbúum hefur fjölgað hratt undanfarin ár. Á svæðinu er gert ráð fyrir sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum ásamt fjölbýlishúsum á 2-3 hæðum auk kjallara. Alls er gert ráð fyrir um 200 íbúðareiningum á svæðinu. Tillaga að deiliskipulaginu var auglýst með athugasemdarfresti frá 8. apríl til 24. maí 2024.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hagahverfis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.*
Samþykkt samhljóða.
10.
Skaftafell III-IV - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401077
Bæjarstjórn samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér að skilmálar breytast á svæði VÞ44 sem nær bæði til Skaftafells III og IV. Byggingarheimildir skv. aðalskipulagi eru fullnýttar á Skaftafelli III. Breytingin felur í sér að skilmálar breytast þannig að sambærileg uppbygging geti einnig átt sér stað á landi Skaftafells IV og verður því um tvöföldun á uppbyggingu að ræða. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024.
Bæjarráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr skipulagslaga.*
Samþykkt samhljóða.
11.
Skaftafell III og IV - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202309100
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags Skaftafells III og IV. Í breytingunni felst að byggingarheimildir aukast úr 35 gisti- og þjónustuhúsum í 70 hús með samtals 70 gistirýmum sem jafngildir 140 gistirúmum. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024.Viðbrögð umsækjenda og ásýndarmyndir af svæðinu lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Skaftafell III og IV skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.*
Samþykkt samhljóða.
12.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401096
Skipulagslýsing lögð fram til kynningar samkvæmt 30. grein og 40.grein skipulagslaga númer 123/2010. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að í matsfyrirspurn verði reifaðir þeir valkostir sem skoðaðir voru í ferlinu, þar með talið áhrif á innviði og samfélag.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu í samræmi við 30. grein og 40.grein skipulagslaga*. Samþykkt samhljóða.
13.
Sala á 900mm rörum staðsettum í Óslandi
Málsnúmer 202405065
Hæsta tilboðið sem barst vegna sölu á rörunum var frá Rósaberg ehf. upp á 32.000 kr./m. Óskað er eftir heimild til að taka tilboðinu.
Bæjarráð samþykkir tilboð Rósabergs ehf. og felur sviðsstjóra mannvirkjasviðs að ganga frá sölu á rörunum.

Samþykkt samhljóða.
14.
Eignaskiptayfirlýsing vegna reiðskemmu og félagshúsnæðis
Málsnúmer 202210026
Óskað er eftir að bæjarráð samþykki skilmála lóðarleigusamnings og undirritun hans í framhaldinu eða komi með tillögur að breytingum.
Bæjarráð samþykkir skilmála lóðarleigusamnings samhljóða og felur sviðsstjóra mannvirkjasviðs að ganga frá undirritun og þinglýsingu samningsins og eignaskiptayfirlýsingar.

Samþykkt samhljóða.
15.
Horn 1 159500, viðbygging við veitingahús, ný gistiálma - krafa um endurupptöku
Málsnúmer 202406051
Beiðni um endurupptöku máls eða afturköllun ákvörðunar umhverfis- og skipulagsnefndar vegna synjunar á veitingu byggingarleyfis við Horn 1 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Sé ekki fallist á framangreint er óskað eftir heimild til að vinna að gerð deiliskipulags.
Þar sem engar nýjar upplýsingar liggja fyrir um málsatvik telur bæjarráð að skilyrði fyrir endurupptöku og afturköllun ákvörðunar samkvæmt 24. og 25. grein stjórnsýslulaga séu ekki uppfyllt. Bæjarráð veitir heimild til þess að vinna deiliskipulag fyrir svæðið.*
Samþykkt samhljóða
16.
Samningur vegna uppreksturs í Kollumúla, Lónsöræfum
Málsnúmer 202406007
Aðsent erindi: Samningur vegna uppreksturs í Kollumúla, Lónsöræfum. Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að fara með fé á milli fjallskiladeilda.
Bæjarráð heimilar handhöfum upprekstrarréttar í Kollumúla og Víðidal að ráðstafa beitarafnotum til Torfa Þorsteins Sigurðssonar út árið 2024 og þar með að flytja fé á milli fjallskiladeilda. Samhliða mun bæjarráð óska eftir mati Lands og skóga á ástandi beitilandsins.

Samþykkt samhljóða.
17.
Leyfisumsókn - götu- og torgsala
Málsnúmer 202401140
Skil á leyfi vegna götu- og torgsölu. Minnisblað atvinnu- og ferðamálafulltrúa lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða skil á leyfinu.
18.
Skilti, vörumerki og fleira - Tillögur fyrir SVH
Málsnúmer 202211067
Unnið er að uppsetningu skiltis við innkomuna í Sveitarfélagið. Frekari gögn lögð fram.
Bæjarráð hefur farið yfir þau gögn sem lögð voru fram og hefur ákveðið að fresta afgreiðslu málsins að sinni.
19.
Héðinn Sigurðsson tannlæknir hættir starfsemi í Hornafirði
Málsnúmer 202406105
Héðinn Sigurðsson tannlæknir hyggst hætta starfsemi í Hornafirði næsta vor. Minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslusviðs vegna málsins lagt fram.
Bæjarráð þakkar Héðni Sigurðssyni fyrir óeigingjarnt starf í sveitarfélaginu. Bæjarráð felur sviðstjóra stjórnsýslusviðs að vinna áfram að málinu og afla frekari upplýsinga.
20.
Auglýsing frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Málsnúmer 202406106
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Lagt fram til kynningar.
21.
Umsögn vegna draga að flokkun fimm virkjunarkosta, mál nr.1142024
Málsnúmer 202406081
Óskað var eftir umsögnum frá sveitarfélögum á Austurlandi vegna tillögu um að Hamarsvirkjun verði sett í verndunarflokk.
Umsögn var samþykkt samhljóða í gegnum tölvupóst. Lagt fram til kynningar
22.
Umsagnarbeiðni- tækifærisleyfi til áfengisveitinga- Humarhátíð. UMF Sindri.
Málsnúmer 202406079
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á Humarhátíð.
Bæjarráð veitti samhljóða jákvæða umsögn í gegnum tölvupóst, lagt fram til kynningar
23.
Umsagnarbeiðni- Tækifærisleyfi - Ungmennadansleikur á Hafinu
Málsnúmer 202406110
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir ungmennadansleik á Humarhátíð.
Bæjarráð veitti samhljóða jákvæða umsögn í gegnum tölvupóst, lagt fram til kynningar.