Bæjarráð Hornafjarðar
1137. fundur
30. júlí 2024
kl.
10:00
-
12:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hvammur, ferðaþjónustusvæði - Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram tillaga, eftir auglýsingu, að breytingu á deiliskipulagi Hvamms í Lóni. Markmið breytingarinnar er að auka umsvif ferðaþjónustu á svæðinu. Breytingin er í samræmi við gildandi aðalskipulag, landnotkunarreit VÞ34. Tillagan var auglýst 22. apríl með athugasemdarfresti til 3. júní 2024. Umsagnir bárust frá RARIK, Heilbrigiðiseftirliti Austurlands og Minjastofnunar Íslands. Auglýsingafrestur var framlengdur til 24. júlí 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvamms í Lóni skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.*
2.
Lóðir J og K, Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram tillaga, eftir auglýsingu, að breytingu Útbæjar á Höfn fyrir lóðina Ránarslóð 3 og lóð J-K. Breytingar verða á byggingarreitum og hámarkshæð hækkar úr 2 hæðum í 3 hæðir auk þess sem lóðir eru sameinaðar.Tillagan var auglýst 22. apríl með athugasemdarfresti til 3. júní 2024. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, RARIK, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Náttúrufræðistofnun Íslands og Minjastofnun Íslands. Auglýsingafrestur var framlengdur til 24. júlí 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Útbæjar á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.*
3.
Flatatún í Öræfum - Deiliskipulag
Skipulagsstofnun gerði athugasemd við birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulags fyrir Hjáleigu og Flatatún í B-deild Stjórnartíðinda. Skipulagsstofnun taldi að tillagan uppfylli ekki ákvæði í 5.3.2.5.gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, hvað varðar fjarlægð íbúðarhúsa á lóðum 1 og 3 frá öðrum vegum. Í 5. og 6. málsl. 1. mgr.42.gr.skipulagslaga 123/2010 kemur fram: "Sveitarstjórn skal taka athugasemdirnar til umræðu og gera nauðsynlegar breytingar hvað varðar athugasemdir um form deiliskipulags. Fallist sveitarstjórn ekki á athugasemdir Skipulagsstofnunar um efni deiliskipulags skal hún gera rökstudda grein fyrir ástæðum þess."
Samkvæmt orðalagi greinar 5.3.2.5., sem Skipulagsstofnun byggir athugasemd sína á, miðar 50m fjarlægð bygginga við vegi eins og þeir eru skilgreindir í aðalskipulagi. Sveitarfélagið mótmælir athugasemd Skipulagsstofnunar, og bendir á að engir vegir eru skilgreindir á aðalskipulagsuppdrætti innan við 50m fjarlægð frá byggingarreitnum lóða 1 og 3, og því uppfyllir nýtt deiliskipulag ákvæði í d-lið. 5.3.2.5.gr. skipulagsreglugerðar 90/2013.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Kosning í nefndir
Framsókn óskar eftir breytingu á varamanni í bæjarráði.
Gunnar Ásgeirsson tekur sæti Björgvins Óskars Sigurjónssonar sem varamaður.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Fleiri útfærslur á hringtorgi hafa verið unnar af Vegagerðinni fyrir sveitarfélagið. Minnisblað bæjarstjóra um stöðu málsins lagt fram á fundinum.
Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um viðræður á milli Sveitarfélagsins, Vegagerðarinnar og landeiganda vegna mögulegs hringtorgs. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu áfram.
6.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður í flokki II - G íbúðir - 2180706
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki II G íbúðir að Hafnarbraut 43A.
Eyrún Fríða Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umsögn bæjarráðs er neikvæð þar sem skilyrðum í 12.gr. og 2. og 4.mgr. 27 gr. reglugerðar nr. 1277/2016, sbr. einnig 1.a. lið 4.mgr. 10.gr. laga nr. 85/2007, hefur ekki verið uppfyllt.
Samþykkt samhljóða.
Umsögn bæjarráðs er neikvæð þar sem skilyrðum í 12.gr. og 2. og 4.mgr. 27 gr. reglugerðar nr. 1277/2016, sbr. einnig 1.a. lið 4.mgr. 10.gr. laga nr. 85/2007, hefur ekki verið uppfyllt.
Samþykkt samhljóða.
7.
Umsókn um lóð - Borgartún 5
Umsókn Klettagarða 12 ehf. um lóð Borgartún 5 í Hofi.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til Klettagarða 12 ehf.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Úthlutun lóðar Silfurbraut 46 sem úthlutuð var þann 13.06.2024 til Fallastakkanafar ehf. féll sjálfkrafa úr gildi þar sem staðfestingargjald hefur ekki verið greitt, sbr. 7.gr. reglna sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun lóða.
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að merkja lóðina sem lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins.
9.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Úthlutun lóðar Sandbakkavegur 5 til Fallastakkanafar ehf. sem úthlutuð var þann 13.06.2024 féll sjálfkrafa úr gildi þar sem staðfestingargjald hefur ekki verið greitt, sbr. 7.gr. reglna sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun lóða.
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að merkja lóðina sem lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins.
10.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Úthlutun lóðar Silfurbraut 44 til Fallastakkanafar ehf. sem úthlutuð var þann 13.06.2024 féll sjálfkrafa úr gildi þar sem staðfestingargjald hefur ekki verið greitt, sbr. 7.gr. reglna sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun lóða.
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að merkja lóðina sem lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins.
11.
Reglur um úthlutun lóða
Lagðar eru fram tillögur um breytingu á úthlutunarreglum lóða í sveitarfélaginu. Helstu breytingar fela í sér að skilgreina: lágmarkstíma sem lóðir skulu vera lausar áður en þeim er úthlutað, skilyrði um að í lóðarumsókn komi fram tímaáætlun framkvæmda, viðbót við ákvæði um tímamörk framkvæmda um frágang lóðar, hámark samanlagða framlengingu fresta, skýrari heimildir til álagningu dagsekta og ákvæði um lóðarvilyrði.
Sviðstjóra mannirkjasviðs falið að vinna áfram í málinu.
12.
Samstarfstillaga við Sveitarfélag Hornafjarðar fyrir kvikmynd Hlyns Pálmasonar
Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið STILL VIVID óskar eftir samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð vegna næsta kvikmyndaverkefni Hlyns Pálmasonar. Óskað var eftir styrk í formi fjárframlags að upphæð 6.000.000 kr. sem færu í að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til á svæðinu í tengslum við kvikmyndina Ástin sem eftir er. Bæjarráð fól bæjartjóra að vinna mat á fjárhagslegum áhrifum á þremur mismunandi útfærslum á styrk til verkefnisins. 4,5 og 6 milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita styrk til kvikmyndaverkefnisins upp á 5.000.000 kr. Fjárframlagi er mætt með lækkun á handbæru fé. Sjá dagskrárlið númer 19, viðauka V við fjárhagsáætlun 2024.
13.
Aukafjárheimild vegna kaupa á nýjum ærslabelg
16. júlí síðastliðinn vísaði bæjarráð kaupum á nýjum og stærri ærslabelg sem og uppsetningu á grindverki til mats á fjárhagslegum áhrifum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita auka fjárheimild upp á 2.700.000 kr. vegna kaupa á nýjum ærslabelg og uppsetningu á grindverki. Fjárframlagi er mætt með lækkun á handbæru fé. Sjá dagskrárlið númer 19, viðauka V við fjárhagsáætlun 2024.
14.
Framkvæmd. Álaleira Geymsla fyrir listaverk
Tilboð fékkst fyrir klefa ásamt kælikerfi og rakatæki fyrir geymslu listaverka.Um er að ræða rýmiklefa með stýribúnaði ásamt kostnaði við uppsetningu. Heildarkostnaður er 3.000.0000 kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða kaup á klefa ásamt kælikerfi og rakatæki fyrir geymslu listaverka. Fjárframlagi er mætt með lækkun á handbæru fé. Sjá dagskrárlið númer 19, viðauka V við fjárhagsáætlun 2024.
15.
Samgönguhátíð
Í júli eru orðin 50 ár frá vígslu brúar yfir Skeiðará og þar með opnun hringvegarins. Atvinnu- og menningarmálanefnd lagði til að haldið yrði upp á tímamótin og vísaði málinu til bæjarráðs. Minnisblað frá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar vegna kostnaðar vegna samgönguhátíðar lagt fram. Hátíðin verður haldin í samstarfi við Vegagerðina og deilist kostnaður við hátíðina á milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita styrk vegna samgönguhátíðar upp á kr. 1.050.000 kr. Fjárframlagi er mætt með lækkun á handbæru fé. Sjá dagskrárlið númer 19, viðauka V við fjárhagsáætlun 2024.
16.
Útboð: Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi
Niðurstöður útboðs vegna breytinga á ráðhúsi lagðar fram .
Eitt tilboð barst í verkið frá Verkfærni ehf. upp á 116.925.433 kr. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 67.284.218 kr.
Bæjarráð hafnar tilboðinu þar sem það er 73,78% yfir kostnaðaráætlun.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð hafnar tilboðinu þar sem það er 73,78% yfir kostnaðaráætlun.
Samþykkt samhljóða.
17.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 4
Útboðs- og verklýsing vegna uppbyggingu fráveitukerfisins á Höfn: Jarðvinna og lagnir 4a. áfangi.Óskað er eftir heimild til að bjóða verkið út.
Bæjarráð samþykkir heimild til þess að bjóða út verkið.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
18.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Bogaslóð 20, stækkun á bílastæði
Erindi dagsett 26.07.2024 þar sem Ægir Olgeirsson sækir um heimild til þess að stækka bílastæði við Bogaslóð 20.
Bæjarráð samþykkir tillögur umsækjenda um stækkun bílastæðis, með þeim takmörkunum að heildarbreidd fari ekki yfir 9 metra.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
19.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka V við fjárhagsáætlun 2024. Ósk um aukafjárveitingu til kaupa á nýjum ærslabelg, styrk til kvikmyndaverkefnis, klefa ásamt kælikerfi og rakatæki fyrir geymslu listaverka og vegna samgönguhátíðar. Viðbótarfjárheimildum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka V samhljóða.*