Bæjarráð Hornafjarðar
1138. fundur
13. ágúst 2024
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Gunnar Ásgeirsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Lögð fram tillaga eftir auglýsingu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7. Samhliða eru lagðar fram breytingar á skipulagsmörkum aðliggjandi svæða:Deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið við Krossey frá 2014.Deiliskipulag við Víkurbraut, Höfn-Knattleikjahús frá 2008.Deiliskipulag Hafnarvíkur-Heppa-Höfn frá 2012.Tillögurnar voru auglýstar frá 22. maí með athugasemdarfresti til 3. júlí 2024. Umsagnir bárust frá RARIK og Minjastofnun Íslands.
Gunnar Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsstjóra að leggja drög að svörum við umsögnum.*
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsstjóra að leggja drög að svörum við umsögnum.*
Samþykkt samhljóða.
2.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 6
Erindi frá Gunnari Gunnlaugssyni fyrir hönd Mikaels ehf. vegna tafa á framkvæmdum við Vesturbraut 6, en þann 1.ágúst 2024 rann út frestur til að gera húsið fokhelt. Lóðinni var úthlutað 13.01.2022 og hefur bæjarráð framlengt frest til að hefja framkvæmdir einu sinni þann 27.04.2023. Fresturinn var veittur til 1. ágúst 2023.
Bæjarráð veitir Mikael ehf. frest til 31.desember 2024 til þess að gera húsið að Vesturbraut 6 fokhelt samanber 6. grein reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.
Reglur um úthlutun lóða
Lagðar eru fram tillögur um breytingu á úthlutunarreglum lóða í sveitarfélaginu. Helstu breytingar fela í sér að skilgreina: lágmarkstíma sem lóðir skulu vera lausar áður en þeim er úthlutað, skilyrði um að í lóðarumsókn komi fram tímaáætlun framkvæmda, viðbót við ákvæði um tímamörk framkvæmda um frágang lóðar, hámark samanlagða framlengingu fresta, skýrari heimildir til álagningu dagsekta og ákvæði um lóðarvilyrði.
Bæjarráð samþykkir breytingu á úthlutunarreglum lóða í sveitarfélaginu.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Minnisblöð bæjarstjóra um stöðu málsins lögð fram.
Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um síðustu samskipti og upplýsingar um viðræður á milli Sveitarfélagsins, Vegagerðarinnar og landeiganda vegna hringtorgs.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu áfram.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu áfram.
5.
Beiðni um styrk til að halda Beint frá býli daginn
Beiðni um styrk til að halda Beint frá býli daginn 18. ágúst 2025 á Háhóli í Nesjum. Dagurinn verður haldinn hátíðlegur á sjö stöðum á landinu. Markaðsstemning með vörum og kynningu á starfsemi félagsmanna Beint frá býli og Samtaka smáframleiðenda.Óskað er eftir styrk að fjárhæð 150.000 kr. til að halda viðburðinn.
Bæjarráð fagnar framtakinu og samþykkir að veita styrk að fjárhæð 150.000 kr. til viðburðarins. Styrkveiting rúmast innan fjárheimilda.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlitssvæða
Lagt er fram bréf frá Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi vegna skipunar stýrihóps á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Matvælaráðuneytisins til að undirbúa áformaðar breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits. Hugmyndir að breyttu fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits eru viðamiklar og munu hafa töluverð áhrif á sveitarfélögin, gangi þær eftir.
Bæjarráð beinir því til stýrihópsins að fara ekki í breytingar sem snertir starfsemi sveitarfélaganna án víðtæks samráðs og greiningar á áhrifum þeirra.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi - Einkaviðburður - Viking Village
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna beiðni um tækifærisleyfi. Tilefni skemmtanahalds er einkasamkvæmi fyrir 300 gesti í Viking Village að Horni.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með sömu fyrirvörum og slökkviliðsstjóri setur.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Vatnavextir í Laxá og Hoffellsá
Greinargerð frá Eiríki og Hjalta Egilssonum vegna vatnavaxta í Laxá og Hoffellsá lögð fram til kynningar.
Það er alvarlegt að framkvæmdir við nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót hindri náttúrulegt útrennsli Hoffellsár og Laxár sem veldur því að vatn safnast fyrir ofan vegfyllinguna og kornakrar, kartöflulönd og beitarlönd bænda á svæðinu verði undir vatni með tilheyrandi tjóni.
Bæjarstjóri hefur rætt málið við Vegagerðina, sem er verkkaupi veglagningarinnar, en Ístak er verktaki verksins. Vegagerðin hefur verið í samtali við verktaka sem hefur verið í samskiptum við landeigendur vegna málsins. Að sögn Vegagerðarinnar mun verktaki kappkosta að koma í veg fyrir að atburðir sem þessir endurtaki sig.
Bæjarstjóri hefur rætt málið við Vegagerðina, sem er verkkaupi veglagningarinnar, en Ístak er verktaki verksins. Vegagerðin hefur verið í samtali við verktaka sem hefur verið í samskiptum við landeigendur vegna málsins. Að sögn Vegagerðarinnar mun verktaki kappkosta að koma í veg fyrir að atburðir sem þessir endurtaki sig.
9.
Staðan á fjármálasviði
Minnisblað bæjarstjóra um stöðuna á fjármálasviði, verkaskiptingu og fleira lagt fram en fjármálastjóri sveitarfélagsins er komin í fæðingarorlof. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir verkaskiptingu á fjármálasviði næstu mánuði.
Lagt fram til kynningar.
10.
Ósk um stamstarf vegna uppbyggingu fráveitu á Holt og Kyljuholt
Ósk frá eigendum Kyljuholts um samstarf vegna uppsetningu hreinsivirkis. Kyljuholt liggur að landi sveitarfélagsins Holt þar sem búið er að skipuleggja svæði fyrir 2 þriggja íbúða raðhús og 6 einbýlishús. Hugmyndin felur í sér uppsetningu hreinsivirkis í landi Kyljuholts og sameina fráveitu á svæðinu.
Sviðstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna að frumhönnun og kostnaðarmati við framkvæmdina og undirbúa drög af samstarfssamningi.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Endurnýjun lóðarleigusamnings - Ægissíða 42
Örn Eriksen óskar eftir heimild sveitarfélagsins fyrir framsali á lóðaréttindum á lóð að Ægissíðu 42. Samþykki þarft samkvæmt 9.gr. lóðarleigusamnings.
Bæjarráð veitir heimild fyrir framsali á lóðarréttindum að Ægissíðu 42 en vill jafnframt vekja athygli á skipulagsskilmálum sem gilda um svæðið og þá starfsemi sem þar er heimil.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir framlengingu á lóðarúthlutun og upphafi framkvæmda á lóðum J og K í Útbæ, vegna breytinga á skipulagi lóðanna. Lóðarhafi hefur lögð fram tímaáætlun framkvæmda en arkitekt hans gerir ráð fyrir því að umsókn um byggingarleyfi berist í október.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til þess að skila inn aðaluppdráttum til 31. október 2024.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir framlengingu á lóðarúthlutun og upphafi framkvæmda á lóðum J og K í Útbæ, vegna breytinga á skipulagi lóðanna. Lóðarhafi hefur lögð fram tímaáætlun framkvæmda en arkitekt hans gerir ráð fyrir því að umsókn um byggingarleyfi berist í október.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til þess að skila inn aðaluppdráttum til 31. október 2024.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð á Silfurbraut 44.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til Fallastakkanafar ehf.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð á Silfurbraut 46.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til Fallastakkanafar ehf.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
16.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð á Sandbakkavegi 5.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til Fallastakkanafar ehf.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
17.
Umsókn um lóð Hagatún 16
Lárus Páll Pálsson sækir um framlengingu á fresti til að hefja framkvæmdir á lóð við Hagatún 16.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til þess að hefja framkvæmdir til 1. desember 2024. Þar með færist lokafrestur til þess að klára framkvæmdir til 1. desember 2026.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
18.
Styrkur til lagningar ljósleiðara í þéttbýli
Háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti hefur kynnt áform um að klára ljósleiðaravæðingu landsins. Opinbert markmið stjórnvalda um aðgengi að ljósleiðara hefur verið að allir þéttbýlisstaðir og byggðakjarnar á landinu nái a.m.k. 80% hlutfalli tengdra lögheimila fyrir árslok 2028. Því stendur sveitarfélaginu til boða að fá 80.000 kr. styrk til að kosta jarðvinnu við að tengja hvert styrkhæft heimilisfang fyrir árslok 2026. Sú upphæð jafngildir áætluðum meðaltals jarðvinnukostnaði fyrir hvert heimilisfang og er jafnframt sambærileg upphæð og fjarskiptafyrirtæki setja upp sem tengigjald fyrir lögheimili í þéttbýli á markaðsforsendum.Fjöldi styrkhæfra staðfanga í Sveitarfélaginu Hornafirði eru 312 með um 415 heimilum.
Bæjarráð samþykkir að þiggja tilboð ráðuneytisins um styrk og felur umhverfis- og skipulagsstjóra að vinna málið áfram og auglýsa könnun um fyrirhugaða ljósleiðaravæðingu í þéttbýli á Höfn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
19.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Þau leiðu mistök áttu sér stað í gögnum sem fylgdu viðauka 5 fyrir síðasta fund bæjarráðs að við skoðun á áhrifum viðaukans var því miður ekki tekið tillit til fyrri viðauka ársins 2024. Fyrir þessum fundi liggur því leiðréttur viðauki og eru áhrif hans eftirfarandi:Í viðauka 5 er gert ráð fyrir:- styrk í menningarmál að fjárhæð 5 millj. kr.- styrk vegna samgönguhátíðar að fjárhæð 1 millj. kr. - kaupum á ærslabelg að fjárhæð 2,7 millj. kr. - rýmiklefa undir listaverk keyptur og eignfærður að fjárhæð 3 millj.
Bæjarráð samþykkir viðauka 5 sem verður mætt með hækkun á skammtímalánum um 7 milljónir.*
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
20.
Verndarvængur fta, óskar eftir samtali um stofnframlag
Verndarvængur sem er styrktarfélag langveikra barna hér í Hornafirði leitast eftir því að eiga samstarf við sveitarfélagið. Tilgangur félagsins er að grípa fjölskyldur barna sem veikjast alvarlega eða þegar óvænt áföll dynja yfir fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu.Félagið vill kanna hvort Sveitarfélagið Hornafjörður sé reiðubúið til samtals um stofnframlag líkt og mörg fyrirtæki og einstaklingar á svæðinu hafa þegar samþykkt. Ef samþykki fyrir samtali um slíkt er til staðar óska forsvarsmenn Verndarvængs eftir því að koma fyrir bæjarráð síðar og gera nánar grein fyrir erindinu og þeim fjárhæðum sem um væntingar eru til.
Bæjarráð fagnar þessu framtaki og er reiðbúið að taka samtalið við forsvarsmenn Verndarvængs og bíður þeim að koma á næsta fund bæjarráðs þann 20. ágúst næstkomandi.
21.
Fjárhagsáætlun 2025
Verk- og tímaáætlun fyrir vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyirir árið 2025 er nú klár.
Lagt fram til kynningar.