Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1139. fundur
20. ágúst 2024 kl. 10:00 - 10:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 34
Málsnúmer 2408003F
Fundargerð velferðarnefndar númer 34 lögð fram til kynningar.
2.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202407009
Sveitarfélögum ber að setja sér reglur um sérstakan húsnæðisstuðning skv. lögum 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga með síðari breytingum. Núverandi reglur sveitarfélagsins voru samþykktar í lok árs 2016 þegar lögin voru samþykkt og hafa ekki verið endurskoðaðar síðan að því undanskildu að tekju- og eignamörk eru uppfærð um hver áramót. Nú er lögð fram tillaga að nýjum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem þær eru aðlagaðar að skipuriti og verkferlum á velferðarsviði, viðmið og ákvæði þeirra eru samræmd því sem tíðkast í öðrum sveitarfélögum og innleitt samræmt mat á félagslegum aðstæðum umsækjanda.- - - -Bókun velferðarnefndar:Lögð fram tillaga að nýjum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í Sveitarfélaginu Hornafirði. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna og vísar málinu áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
3.
Endurnýjun á loftpressu
Málsnúmer 202408038
Erindi frá Slökkviliði Hornafjarðar þar sem óskað er eftir aukafjárveiting til kaupa á nýrri loftpressu fyrir slökkvibifreiðar á slökkvistöðinni á Höfn þar sem núverandi pressa er ónýt. Minnisblað slökkviliðsstjóra lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa mat á fjárhagslegum áhrifum.
Samþykkt samhljóða.
4.
Stöðuleyfisumsókn Matarvagn á tjaldsvæði Hafnar
Málsnúmer 202408055
Erindi dagsett 16. ágúst frá Ioan Dragan þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir matarvagn á tjaldsvæði Hafnar.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd og atvinnu- og menningarmálanefnd.
Samþykkt samhljóða.