Bæjarráð Hornafjarðar
1141. fundur
3. september 2024
kl.
10:00
-
11:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 83
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 83 lögð fram til kynningar.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 66
Fundargerð atvinnu- og menningarmálarnefndar númer 66 lögð fram til kynningar.
3.
Samstarfsbeiðni frá Verndarvæng fta
Félagið Verndarvængur fta. óskar eftir stuðning við félagið í formi stofnfés að upphæð 5.000.000 kr sem nýtt verður til að mæta fjárútlátum sem liggja fyrir fyrst um sinn.Frekari fjáraflanir, frá öðrum aðilum myndu þá mæta þeim málum sem gætu komið upp síðar á árinu, sem og að tryggja öruggan rekstrargrundvöll sjóðsins til frambúðar.
Bæjarráð er jákvætt fyrir samstarfi við Verndarvæng fta. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og kanna fjárhagsleg áhrif á styrk til Verndarvængs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 17 lögð fram til kynningar.
5.
Námskeið fyrir forstöðumenn og stjórnendur
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundarsviðs óskar eftir aukafjárveitingu til þess að halda námskeið fyrir forstöðumenn og stjórnendur með mannaforráð. Fjárhagsleg áhrif hafa verið metinn samanber viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að auka fjárveitingu að upphæð 4,6 milljónum. Sjá dagskrárlið númer 7, viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2024.
6.
Endurnýjun á loftpressu
Erindi frá Slökkviliði Hornafjarðar þar sem óskað er eftir aukafjárveiting til kaupa á nýrri loftpressu fyrir slökkvibifreiðar á slökkvistöðinni á Höfn þar sem núverandi pressa er ónýt. Búið er að endurskoða fyrra tilboð og til stendur að kaupa ódýrari loftpressu sem fullnægir þó þörfum og uppfyllir allar kröfur. Fjárhagsleg áhrif hafa verið metinn samanber viðauka 7 við fjárhagsáætlun 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að auka fjárveitingu að upphæð 844.000 kr. Sjá dagskrárlið númer 8, viðauka 7 við fjárhagsáætlun 2024.
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2024. Ósk um aukafjárveitingu vegna námskeiðshalds.
Bæjarráð samþykkir viðauka 6 um 4,6 milljónir kr. Viðauka er mætt með hækkun á skammtímalánum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka 7 við fjárhagsáætlun 2024. Ósk um aukafjárveitingu vegna loftpressu fyrir Slökkviliðsstöð.
Bæjarráð samþykkir viðauka 7 um 844.000 kr. Viðauka er mætt með hækkun á skammtímalánum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Útboð á flugi til Hornafjarðar
Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug til Hornafjarðar. Um er að ræða samning til þriggja ára þar sem flogið er átta sinnum í viku í 19 sæta flugvél á milli Reykjavíkur og Hornafjarðar.
Lagt fram til kynningar.
10.
Samgönguhátíð
Sveitarfélagið Hornafjörður og Vegagerðin héldu vel heppnaða samgönguhátíð þann 30. ágúst síðastliðinn. Hátíðin byrjaði með vel heppnuðu málþingi, þar sem boðið var upp á kjötsúpu. Dagurinn endaði svo undir Skeiðarábrú þar sem hátíðardagskrá hélt áfram, með ýmsum uppákomum. Vel var mætt á báða staði og gestir ánægðir með daginn.
Bæjarráð þakkar öllu starfsfólki, Vegagerðinni og atvinnu- og menningarmálanefnd kærlega fyrir vel unnin störf við undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar. Einnig þakkar bæjarráð öllum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna.
11.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Minnisblað bæjarstjóra um nýjustu vendingar í málinu lagt fram.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu máls og er falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.