Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1143. fundur
17. september 2024 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 116
Málsnúmer 2409002F
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 116 lögð fram til kynningar.
2.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 4
Málsnúmer 202302082
Niðurstöður útboðs vegna fráveitu áfanga 4 lagðar fram. Tilboð voru opnuð 6. september 2024.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Tvö tilboð bárust í verkið frá Gröfuþjónustu Olgeris upp á 90.585.706 krónur og frá Rósaberg sem hljóðaði upp á 54.161.897 krónur.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 65.270.300 krónur.
Bæjarráð Bæjarráð samþykkir tilboð Rósaberg sem er lægstbjóðandi.
Samþykkt samhljóða.
3.
Hönnun - Ráðhús - endurbætur 1.hæð
Málsnúmer 202309104
Umsjónarmaður fasteigna gerði grein fyrir tilboði í endurbætur á 1. hæð ráðhúss sem barst föstudaginn 13.09.2024.
Umsjónarmanni fasteigna falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
4.
Skólamáltíðir útboð 2025
Málsnúmer 202409013
Í vor rennur út samningur um skólamáltíðir við Vigdísarholt. Samningurinn var í gildi frá 01.09.2023 með framlengingarákvæði til tveggja ára sem var nýtt.Umfang samnings er þess eðlis að nauðsynlegt er að bjóða hann út á evrópska efnahagssvæðinu. Óskar starfsmaður nefndarinnar eftir því að fá að hefja undirbúning útboðs í samvinnu við ríkiskaup.Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að farið verði í undirbúning á útboði á skólamáltíðum. Málinu vísað til bæjarráðs
Bæjarráð samþykkir að farið verði í undirbúning á útboði á skólamáltíðum. Sviðstjóra fræðslu- og frístundarsviðs ásamt bæjarstjóra falið að vinna að undirbúning útboðsins.
Samþykkt samhljóða.
5.
Umsókn um um fjárveitingu til starfsemi félagasamtaka
Málsnúmer 202409037
Í ríflega 40 ár hefur Kvennaathvarfið þjónað íslensku samfélagi sem frjáls félagasamtök í náinni samvinnu við opinbera kerfið. Sú þjónusta sem Kvennaathvarfið veitir konum og börnum sem búa við ofbeldi er ómissandi og hafa okkar úrræði verið mikilvægur hlekkur í þjónustu sveitarfélaga.Sveitarfélög landsins eru öflugir stuðningsaðilar kvenna og barna sem sækja skjól til Kvennaathvarfs og er það von okkar að svo verði áfram. Kvennaathvarfið er rekið að hluta til á ríkisstyrkjum en til þess að geta viðhaldið þjónustustigi okkar þá er nauðsynlegt að fleiri aðilar styrki rekstur þess. Sveitarfélögin eru þannig mikilvægur hlekkur í rekstri Kvennaathvarfsins og í því skyni óskum við eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2025 að fjárhæð kr. 500.000.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk upp á 200.000 krónum sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Bæjarstjóra falið að koma styrknum áleiðis
Samþykkt samhljóða.
6.
Fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202408025
Framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins 2024-2027 með stöðunni í september ásamt líklegri niðurstöðu í lok árs lögð fram til kynningar. Í útgönguspá gerum við ráð fyrir að framkvæmdir í A hluta verði um 120 m.kr lægri en áætlun gerði ráð fyrir og niðurstaðan um 115 m.kr lægri í B hluta. Líkleg niðurstaða fyrir framkvæmdahluta A og B fyrir árið 2025 er því um 235 m.kr. lægri en áætlun gerði ráð fyrir.
7.
Fundir bæjarráðs og bæjarstjórnar
Málsnúmer 202209078
Rætt er um leiðir til þess að gera fundargerðir bæjarstjórnar meira upplýsandi.
Á næsta fundi bæjarstjórnar verður gerð tilraun þar sem hvert mál verður merkt með tímastimpli svo auðveldara sé að skoða þau í upptöku fundarins.
Samþykkt samhljóða.
8.
Fundartími bæjarstjórnar
Málsnúmer 202402100
Tillaga lögð fram um að færa næsta fund bæjarstjórnar til 17. október í stað 10. október vegna fjármálaráðstefnu 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu um nýjan fundartíma.
9.
Ályktanir NAUST 2024
Málsnúmer 202409029
Ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn laugardaginn 7. september, lagðar fram til kynningar.
10.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401125
Fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga númer 74 lögð fram til kynningar.
11.
Fundargerðir SASS 2024
Málsnúmer 202402028
Fundargerð stjórnar SASS númer 612 lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
Fundargerð 951. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. ágúst 2024 lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerðir HAUST
Málsnúmer 202310053
Fundargerð 180. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands frá 5. september 2024 lögð fram til kynningar.
Aðalfundur Heilbrigðeftirlits Austurlands verður haldin 6. nóvember á Höfn.
14.
Fjallamennskunám
Málsnúmer 202403080
Skólanefnd FAS fór yfir stöðu og framtíð fjallamennskunámsins.
Bæjarráð ítrekar mikilvægi fjallamennskunámsins og það verði áfram námsbraut á vegum framhaldsskólans í Austur Skaftafellssýslu. Framundan eru fundir með skólanefndinni og ráðuneytum þar sem framtíð námsins verður vonandi tryggð hér í sveitarfélaginu.