Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1145. fundur
1. október 2024 kl. 10:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 67
Málsnúmer 2409017F
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar númer 67 lögð fram til kynningar.
2.
Íbúaráð - Nes og Lón - 5
Málsnúmer 2408014F
Fundargerð íbúaráðs Nesja og Lóns númer 5 lögð fram til kynningar.
3.
Íbúaráð Öræfum - 4
Málsnúmer 2408013F
Fundargerð íbúaráðs í Öræfum númer 4 lögð fram til kynningar.
4.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 5
Málsnúmer 2408009F
Fundargerð íbúaráðs í Suðursveit og Mýrum númer 5 lögð fram til kynningar.
5.
Fjármálaráðstefna 2024
Málsnúmer 202402034
Eftirfarandi aðalfundir verða haldnir í tengslum við Fjármálaráðstefnu 2024. Aðalfundur samtaka Orkusveitarfélaga og Orkufundur 2024 verður haldin á Vox Club á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 9. október.Aðalfundur samtaka Sjávarútvegssveitarfélaga verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 9. október kl. 11:30.Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum verður haldinn í sal E á 2. hæð Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 9. október kl. 08:30-09:30.
Lagt fram til upplýsinga
6.
Forkaupsréttur sveitarfélagsins
Málsnúmer 202409094
Erindi frá Skinney Þinganes hf. þar sem tilkynnt er um samning um sölu Þóris SF-77 til Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupsstað. Skipið er selt án aflaheimilda en þær færast á önnur skip Skinneyjar-Þinganess hf. Með vísan í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða er Sveitarfélaginu Hornafirði boðin forkaupsréttur að skipinu.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að skipið sé selt, Sveitarfélagið mun ekki nýta forkaupsréttinn. Samþykkt í tölvupósti.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202408025
Rammaáætlanir deilda lagðar fram og yfirfarnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu hjá forstöðumönnum og sviðsstjórum.