Bæjarráð Hornafjarðar
1146. fundur
8. október 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2025
Rammaáætlanir deilda lagðar fram og yfirfarnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
2.
Álagningarreglur 2025
Uppfærðar álagningarreglur lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir álagningarreglur samhljóða og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.
3.
Fasteignir / viðhaldsáætlun fasteigna sveitarfélagsins
Viðhalds- og endurbótaáætlun fyrir árið 2025 lögð fram
Vísað til áframhaldandi vinnu.
4.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka 8 við fjárhagsáætlun 2024. Ósk um aukafjárveitingu vegna kaupa á nýrri bifreið fyrir Áhaldahús.
Bæjarráð samþykkir viðauka 8 um 5,5 milljónir krónur. Viðauka er mætt með hækkun á skammtímalánum.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
5.
Ósk um kaup á bifreið- Áhaldahús
Áhaldahús óskar eftir aukafjárveitingu til þess að kaupa nýja bifreið í stað þeirrar sem fyrir er sem verður seld. Áhrif hafa verið metinn samanber viðauka 8 við fjárhagsáætlun 2024.
Bæjarráð samþykkir að veita aukafjárveitingu fyrir kaup á nýrri bifreið.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Ófeigstangi 18 - úthlutun lóðar
Erindi dagsett 23. september 2024 þar sem Skinney-Þinganes óskar eftir að lóð nr. 18 við Ófeigstanga verði stofnuð og úthlutað til félagsins. Skinney-Þinganes hefur talið sig vera lóðarhafa að óstofnaðri lóð nr. 18 við Ófeigstanga en lóðin hefur að öllum líkindum verið tekin með í stærð og flokkuð með Ófeigstanga 17.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindi umsækjanda. Lóðar sem hér um ræðir, þ.e. Ófeigstangi 18, hefur verið skipt upp í gildandi deiliskipulagi úr lóð Ófeigstanga 17 og því alveg ljóst að Skinney-Þinganes er lóðarhafi þessarar lóðar. Starfsmönnum falið að ganga frá skráningu lóðar og gera lóðarleigusamning við Skinney-Þinganes.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Ófeigstangi 12 - skil á lóð
Erindi dagsett 23. september 2024 þar sem Skinney-Þinganes óskar eftir að skila lóð nr. 12 við Ófeigstanga á Höfn til sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða skil á lóðinni. Sviðstjóra mannvirkjasviðs falið að auglýsa lóðina lausa til úthlutunnar á kortasjá sveitarfélagsins.
8.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Sótt er um framlengingu á fresti til að afla samþykkis byggingaráforma sem gefinn var til 30. september. Hönnunarvinna er hafin en lóðarhafi óskar jafnframt við sveitarfélagið um stækkun lóðarinnar í samræmi við afmörkun úr eldri tillögum af deiliskipulagi svæðis.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita frest til 31.desember 2024. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
9.
Ósk um framsal lóðarleiguréttinda
Arnór Kristjánsson óskar eftir samþykki bæjarráðs fyrir framsali á lóðarleiguréttindum á Ægissíðu 6, sem hann á 25% hlut í, til Erlu Berglindar Antonsdóttur og Sigurbjörns Árnasonar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framsal á lóðaleiguréttindum. Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við lóðarhafa.
10.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi - Seljavellir - F2180691
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki II tegund C, Erobik Apartments að Hafnarbraut 34.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
11.
Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur
Niðurstaða jarðvegsrannsókna á ÍB5 liggur fyrir. Dýpi á fastan botn er allt frá 1,5 m til 7,5 m undir yfirborði. Vatnsborð svæðisins hefur ekki verið mælt en það getur veitt mikilvægar upplýsingar þegar valið er aðferð til grundunar.
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum mannvirkjasviðs falið að vinna áfram í málinu.
12.
Útboð: Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi
Yfirfarin og uppfærð kostnaðaráætlun liggur fyrir.
Lagt fram til kynningar.
13.
Tillaga um kaup á listaverki eftir Guðrúnu Benediktu.
Fráfarandi safnvörður Svavarsafns leggur til að Sveitarfélagið kaup verk Guðrúnar Benediktu Áhrifavaldur sem var hluti af sýningunni Umhverfing. Safnavörður lagði til að bæjarráð bjóði 4.000.000 krónur í verkið.
Bæjarráð vísar málinu til vinnslu fjárhagsáætlunnar.
14.
Flugáætlun til Hafnar
Mýflug hefur lagt fram tillögu að breyttri flugáætlun til Hafnar frá Reykjavík. Eingöngu er um að ræða breytingu á þeim dögum sem flogið er tvisvar. Ferð fer þannig fyrr á morgni og kemur fyrr heim. Áætlað er að breytingin taki gildi um mánaðarmótin október - nóvember.
Bæjarráð fagnar því að áætlað sé að flýta ferðum að morgni en bendir á að æskilegt er að seinka seinna flugi þann daginn eins og kostur er.
15.
Árlegur alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa
Árlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 7. nóvember 2024. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert og tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í umferðarslysum. Að þessu sinni verður kastljósi dagsins beint að hættunni sem getur skapast við að sofna eða dotta undir stýri vegna þreytu ökumanna.Táknrænar minningarstundir verða haldnar víða um landið sem félög og sveitir íSlysavarnafélaginu Landsbjörgu skipuleggja. Streymt verður frá viðburðum í beinnivefútsendingu á samfélagsmiðlum eftir því sem kostur er.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga númer 76. frá 24. september 2024, lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
17.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Fundargerð 952. fundar stjórnar Sambandsins frá 27. september 2024 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
18.
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 44.gr laga um útlendinga nr 80/2016.
Erindi frá Dómsmálaráðuneytinu þar sem sveitarfélaginu er boðið til samráðs í máli númer 199/2024. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 (fjöldaflótti).
Lagt fram til kynningar
19.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 86
Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar númer 86 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
20.
Umsögn um drög að reglugerð um framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk
Sviðstjóri velferðarsviðs leggur fram umsögn um drög að reglugerð um framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.
Bæjarráð samþykkir umsögnina samhljóða og sviðstjóra velferðarsviðs falið að senda hana inn.