Bæjarráð Hornafjarðar
1147. fundur
15. október 2024
kl.
10:00
-
11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2025
Rammaáætlanir deilda, launaáætlun og fjárfestingabeiðnir lagðar fram og yfirfarnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjármálasviðs við fjárhagsáætlun 2025.
2.
Kæra á ákvörðun bæjarráðs dags 16.júlí 2024 vegna uppbyggingar í landi Horn
Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamáls kom saman 11. október 2024. Fyrir var tekið mál nr. 69/2024, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 7. júní 2024 um að synja umsókn Litlahorns ehf. um leyfi til að byggja viðbyggingu veitingahúss og gistiálmu á Horni 1. Þá var einnig kærð ákvörðun bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 16. júlí s.á. um að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar á grundvelli 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Úrskurðarorð voru þessi:Vísað er frá kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornarfjarðar frá 5. júní 2024 um synjun umsóknar um leyfi til að byggja viðbyggingu veitingahúss og gistiálmu á Horni 1. Felld er úr gildi ákvörðun bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 16. júlí 2024 um að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar á grundvelli 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagt fram til kynningar.
3.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Lónið apartments (Gististaður í flokkur II - C) - (Vesturbraut 4) - (F2181376)
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki II tegund C, Lónið apartments að Vesturbraut 4.
Bæjarráð veitir samhljóma jákvæða umsögn.
4.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 13
Umsókn frá Reyni Ásgeirssyni um lóð á Hafnarbraut 13.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Ray Stays(gististaður í flokki II - B) - (Seljavellir 2E.781) - (F252-5486)
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki II tegund b, Ray Stays að Seljavöllum 2E.
Bæjarráð veitir samhljóma jákvæða umsögn.
6.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - The Greyhouse-(Gististaður í flokkur II- C) - (Seljavellir 2A) - (F2504920)-
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki II tegund C, The Greyhouse að Seljavöllum 2A.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
7.
Málþing um starf öldungaráða sveitarfélaganna
Samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við landssamtök eldri borgara heldur málþing um starf öldungaráða þann 17. október n.k. Málþingið verður haldið í Reykjavík en einnig verður boðið upp á streymi.
Lagt fram til kynningar.
8.
Skipulagsdagurinn 2024
Skipulagsstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir árlegri ráðstefnu um skipulagsmál, sem fer fram þann 17. október næstkomandi á Hilton Nordica Suðurlandsbraut 2, húsið opnar klukkan 8:30. Ráðstefnan verður einnig í beinu streymi.
Lagt fram til kynningar.
9.
Rafrænn fundur fyrir sveitarfélög- Fræðsluerindi um EKKO
Jafnréttisstofa býður upp á rafrænan fund tvisvar sinnum á ári fyrir sveitarfélögin og nú er komið að seinni fundi ársins.
Lagt fram til kynningar.
10.
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2024 verður haldin föstudaginn 1. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Dagskráin er fjölbreytt og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Lagt fram til kynningar.
11.
Ársfundur úrvinnslusjóðs
Ársfund Úrvinnslusjóðs verður haldinn fimmtudaginn 17. október næstkomandi. Fundurinn er öllum opinn. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá komu sína.
Lagt fram til kynningar.