Bæjarráð Hornafjarðar
1149. fundur
29. október 2024
kl.
10:00
-
11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 68
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar númer 68 lögð fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 87
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 87 lögð fram til kynningar.
3.
Umsókn um lóð - Hagaleira 1
Lóðarhafi óskar eftir framlengingu á fresti. Þann 11.10.2024 var lóðarhafa að Hagaleiru 1 send tilkynning um fyrirhugaða afturköllun lóða og gefinn kostur á að senda andmæli vegna þess til 24.10.2024. Erindi frá lóðarhafa barst 22.10.2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita frest til 1. maí 2025 til þess að hefja framkvæmdir.
4.
Ósk um framsal lóðarleiguréttinda - Ægissíða 11
Kristján V. Björgvinsson óskar eftir samþykki bæjarráðs fyrir framsali á lóðarleiguréttindum á Ægissíðu 11 til Hafsteins Elvars Aðalsteinssonar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framsal á lóðaleiguréttindum. Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við lóðarhafa.
5.
Ósk um aukafjárveitingu til að vinna úttekt á innleiðingu Barnvæns sveitarfélags
Ungmennaráð óskar eftir 1.500.000 í auka fjárveitingu vegna myndbandsgerðar um Barnvænt sveitarfélag. Myndbandið yrði hluti af úttekt sem ungmennaráð þarf að vinna en myndi síðan nýtast sem kynning á Barnasáttmálanum og Barnvænu sveitarfélagi bæði innan sýslu en einnig á landsvísu.
Verkefnið rúmast innan fjárheimilda.
6.
Opnunartími ráðhúss
Lögð er fram tillaga sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að breyttum opnunartíma ráðhúss. Tillagan felur í sér að í stað þess að ráðhúsið sé opið frá kl. 9:00-12:00 og 12:45- 15:00 alla virka daga, verði opnunartíminn frá kl. 9:00-15:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 9:00-13:00 á föstudögum.
Bæjarráð samþykkir tillögu um breyttan opnunartíma og lýsir ánægju með að ráðhúsið verði opið í hádeginu til þess að bæta þjónustu við íbúa. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 2024. Íbúum er bent á að íbúagáttin er alltaf aðgengileg og breyttur opnunartími hefur ekki áhrif á opnunartíma Svavarssafns.
7.
Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna.
Bæjarráð óskaði eftir gögnum um sölu á hluta sveitarfélagsins í Sláturfélaginu Búa sem og gögnum um úthlutanir atvinnu- og rannsóknarsjóðs síðustu ára. Umbeðin gögn lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að 10.572.306 krónur sem greitt var fyrir stofnbréf sveitarfélagsins í B-deild Stofnsjóðs Sláturfélagsins Búa svf. verði nýtt til þess að styrkja höfuðstól atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Álagningarreglur 2025
Uppfærðar álagningarreglur 2025 lagðar fram til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir álagningarreglur samhljóða og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.
9.
Samráðsfundur um landsbyggðarstrætó
Vegagerðin vinnur að endurskoðun á leiðarkerfi landsbyggðarstrætós. Verkefnið hófst á samráðsfundum með Vegagerðinni og hagsmumaaðilum landsbyggðastrætós. Niðurstöður samráðsfunda og upplýsingar um verkefnið lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
10.
Ákvörðun EBÍ um ágóðahlutagreiðslu ársins til aðildarfélaga EBÍ
Erindi frá eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem tilkynnt er ákvörðun stjórnar EBÍ um ágóðahlutagreiðslu ársins til aðildarsveitarfélaga EBÍ. Hlutdeild sveitarfélagsins er 1.608% og fjáræðin sem greidd er verður 804.000 kr.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir heilbrigðisnefndar austurlands
Fundargerð 181. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar.